Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Samtök fyrirtækja í landbúnaði:
Fagna frumvarpi um heimild
kjötafurðastöðva til samvinnu
– Telja að eitt brýnasta verkefnið fram undan sé að laga brotalamir í tollamálum
Samtök fyrirtækja í landbúnaði
(SAFL) undirbúa nú að stilla
upp sinni starfsemi fyrir næstu
vikur og mánuði – og manna
samtökin í samræmi við hana.
Verkefnin munu felast í því að laga
umgjörðina utan um landbúnaðinn
og úrvinnslu landbúnaðarafurða
á Íslandi, til dæmis í tollamálum
og varðandi mögulega samvinnu
kjötafurðastöðva til hagræðingar
í greininni.
„Matvælaráðherra setti nýlega
inn á Samráðsgátt stjórnvalda drög
að frumvarpi til laga um breytingu
á búvörulögum varðandi aukna
tímabundna heimild til handa aðilum
í slátrun og vinnslu kjötafurða til
að stofna með sér samstarf. Við
fögnum þessu frumkvæði ráðherra
og þeim skilningi sem hún sýnir
greininni en slík breyting færir
okkur nær því sem þekkist í Noregi
og innan Evrópusambandsins
(ESB),“ segir Sigurjón R. Rafnsson,
aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga og stjórnarformaður
SAFL.
Góður grunnur að
heimild til hagræðingar
„Frumvarpsdrögin eru í umsagnarferli
og vonandi verða þau samþykkt á
Alþingi á vorþingi. Fyrr er ekki hægt
að ræða neina möguleika á hagræðingu
í rekstri afurðastöðva í kjötiðnaði.
Við fyrstu sýn virðast frumvarps
drögin geta orðið góður grunnur
að heimild til hagræðingar í rekstri
afurðastöðva í kjötiðnaði. SAFL
vinnur nú að því að skila umsögn um
frumvarpsdrögin.“
Einbeitum okkur
að eigin starfsemi
SAFL voru stofnuð í marsmánuði með
20 fyrirtæki innanborðs, en formleg
starfsemi hófst í júní. Sigurjón segir
að lítið sé að frétta af mögulegri aðild
að Samtökum atvinnulífsins (SA).
„Samtalið heldur áfram á næstu vikum
og jafnvel mánuðum, ekki síst vegna
þess að kjarasamningsviðræður taka
mikinn tíma stjórnenda SA um þessar
mundir.
Aðild okkar samtaka að SA er
ekki lykilatriði og þar sem ljóst er
að það muni ekki skýrast á næstunni
erum við bara að undirbúa að stilla
starfsemi okkar upp á næsta ári og
manna samtökin í samræmi við það
skipulag.“
Landbúnaðurinn er
grunnatvinnuvegur
Að sögn Sigurjóns hafa SA ekki verið
móttækileg fyrir breytingum á sinni
formgerð.
„SA hafa frá stofnun samtakanna
ekki verið tilbúin til að breyta og
aðlaga sína uppstillingu til að halda
atvinnulífinu í einum samtökum og
mörg félög hafa staðið utan samtaka.
Þessi stefna mun á endanum bara
enda á einn veg að mínu mati.
Skilningur er hins vegar að aukast
á því að landbúnaðurinn er einn af
grunnatvinnuvegum þjóðarinnar og
þarf rödd sem slíkur.
Nauðsynlegt er að rétta þann
halla sem orðið hefur á umgjörð
landbúnaðarins í samanburði
við okkar nágrannaríki á síðustu
tveimur áratugum – slíkt gerist
ekki með aðild að SA í gegnum
önnur aðildarfélög SA. Hagsmunir
hinna ýmsu atvinnugreina eru oft
mjög ólíkir og erfitt að samræma. Í
Danmörku eru til dæmis engin virk
regnhlífarsamtök atvinnulífsins,
heldur stendur iðnaðurinn sér og
það sama á við um landbúnaðinn
og sjávarútveginn, verslunina
og orkumálin – og það er
umhugsunarefni fyrir okkur.“
Samvinna með
Bændasamtökum Íslands
Sigurjón segir að ekki hafi komið til
tals að SAFL verði einhvers konar
aukaaðili að Bændasamtökum
Íslands, en yfirstandandi séu
viðræður við þau um hvernig
samstarf þeirra í hagsmunagæslu
fyrir landbúnaðinn geti verið sem
mest og best. „Mikilvægt er að
þessir aðilar vinni þétt saman þegar
kemur að samtali við stjórnvöld um
umgjörð landbúnaðar og úrvinnslu
landbúnaðarafurða á Íslandi.“
Sigurjón nefnir tollamálin
sem mikilvægt sameiginlegt
hagsmunamál sem brýn þörf sé á að
taka til endurskoðunar við stjórnvöld.
„Í þeim málum og tollaeftirliti
með innflutningi landbúnaðarvara
er ljóst að um miklar brotalamir
hefur verið að ræða lengi. Það
sýna best fréttir sem birst hafa í
fjölmiðlum undanfarin misseri um
að skatturinn hafi endurákvarðað
tolla svo nemi hundruðum milljóna
króna á erlendar landbúnaðarvörur.
Fjárhæðir í þeim málum benda til
þess að verulegur innflutningur
hafi átt sér stað á vitlausum
tollskrárnúmerum.
Á þetta var bent af hagsmuna aðilum
í landbúnaði og hefur sú vinna skilað
miklum ávinningi fyrir bændur.“
Líklega eina Evrópuríkið án
verðjöfnunargjalda
„Það er líka staðreynd að við erum
líklega eina Evrópuríkið sem leggur
ekki verðjöfnunargjöld á unnar
landbúnaðarafurðir sem innfluttar
eru sem hluti af öðrum matvælum, til
dæmis ostur eða skinka á innfluttum
frosnum pitsum, smjör í súkkulaði og
svo framvegis.
Það er líka skoðun mín
að við gerð tollasamninga á
undanförnum áratugum erum við
að hleypa hlutfallslega meira af
landbúnaðarvörum inn til Íslands
heldur en viðsemjendur okkar hleypa
inn á sín markaðssvæði. Menn verða
að meta þetta heildstætt. Það er
vont ef íslensk stjórnvöld semja um
tollalækkanir við önnur ríki, til dæmis
ESB, en leggja ekki á verðjöfnunargjöld
líkt og viðsemjandinn,“ segir Sigurjón.
Taka verður á tollaframkvæmd
Hann segist í raun ekki hafa neina
skoðun á því hvort að tollar eða
verðjöfnunargjöld séu af hinu góða
eða vonda.
„Ég hins vegar veit að hjá öllum
þeim vestrænu þjóðum sem við
viljum bera okkur saman við – og
vera í samstarfi við – er mun fastar
tekið á eftirliti með innflutningi og
tollframkvæmd landbúnaðarvara.
Markmiðið er mjög skýrt – að
tryggja innlenda framleiðslu
landbúnaðarvara. Hér nægir að vísa til
inngangskafla í reglugerðum ESB um
verðjöfnunargjöld og afstöðu til dæmis
Noregs og Sviss hjá EFTA samtökunum
um álagningu verðjöfnunargjalda. Við
getum ekki spilað eftir öðrum reglum
í þessum málum ef við viljum gæta
þjóðarhagsmuna.
Mér sýnist einnig í ljósi þess sem
verið hefur að gerast í heiminum á
undanförnum árum og misserum
að ríki heimsins herði enn meira
utanumhald sitt um innlenda
matvælaframleiðslu og fæðuöryggi
sinnar þjóðar. Það sama á við um
Ísland sem betur fer. Þörf er á
hugarfarsbreytingu embættismanna
og líklega aukinn starfskraft við
tollaframkvæmd og tollaeftirlit, það
hafa dæmin sýnt.“
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Samtök fyrirtækja í landbúnaði voru stofnuð í mars og þar innanborðs eru allar stærstu kjötafurðastöðvar landsins. Mynd / Bbl
FRÉTTASKÝRING