Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Japanski bílaframleiðandinn
sem var frumkvöðull í þróun
rafmagnsbíla fyrir áratug var að
kynna sitt nýjasta útspil: Nissan
Ariya – jeppling sem þróaður var
frá grunni sem rafaflsbifreið.
Bíllinn í þessum prufuakstri var
framhjóladrifinn, en Nissan mun
síðar bjóða bifreiðina með drifi á
öllum hjólum. Hér er komið öflugt
útspil á móti keppinautum eins og
Hyundai Ioniq 5, Volkswagen ID.4,
Kia EV6 og Skoda Eniaq. Helstu
kostir Ariya eru stór rafhlaða, hröð
hleðsla og vönduð innrétting. Ókostir
eru lágt þak og stíf fjöðrun.
Fyrsta hugsunin sem bíllinn
vekur hjá blaðamanni er hversu
fríður sýnum hann er. Greinilegt
er að hönnuðir Nissan hafa farið í
vandaða hönnunarvinnu því hvergi
er hægt að benda á ófríðan blett.
Gott samræmi er á milli allra hliða
og sver hann sig í ætt við aðra bíla
frá sama framleiðanda. Myndirnar
tala sínu máli, en ef á að nota
einhver lýsingarorð þá má segja að
hann sé rennilegur og nútímalegur.
Í fegurðarsamkeppni við Tesla Y og
Volkswagen ID.4 myndi Nissan Aryia
hafa vinninginn. Þetta tiltekna eintak
var kopargyllt að lit með svörtu þaki
sem fer honum vel.
Innrarými nútímalegt
Jákvæða upplifunin heldur áfram
þegar sest er um borð. Innréttingin er
öll stílhrein og sérstaka athygli vekur
viðarlíkið sem notað er hér og þar.
Hluti af viðarlíkinu er með innbyggðan
snertiskjá sem er áhugaverð nýjung.
Þeir fáu hnappar sem ökumaðurinn
þarf að nota eru þéttir viðkomu og
skýrir í notkun. Stýrið sjálft er klætt
mjúku leðri.
Kerfi skýrt
Tveir skjáir eru í innréttingunni – annar
fyrir hraðamæli og akstursupplýsingar
og hinn fyrir útvarp og margmiðlun.
Upplausnin er skýr og björt og er
stýrikerfið að flestu leyti gott. iPhone
eigendur geta fagnað því að hægt er
að tengja símann þráðlaust í gegnum
Apple CarPlay, en Android-notendur
þurfa að tengjast Android Auto í
gegnum snúru.
Einn ókostur við að halda hnöppum
í lágmarki er að sumar skipanir eru
grafnar inni í kerfinu. Til að mynda
getur leiðin að sætishitaranum krafist
nokkurra smella. Þegar bakkað er í
stæði birtist bæði skýr mynd aftur fyrir
bílinn og „loftmynd“ sem sýnir allt
umhverfið mjög vel.
Þeir sem eru óöruggir við að
leggja í stæði fá alla þá aðstoð sem
tæknin býður upp á (myndavélar og
fjarlægðarnemar á öllum hliðum) og
sést vel hvernig umhorfs er á skjánum.
Flestir nýir bílar eru útbúnir
akstursaðstoð og er Nissan Ariya
engin undantekning. Í þjóðvega-
og stofnbrautaakstri er auðvelt að
kveikja á akreinastýringunni sem
heldur bílnum á beinu brautinni og
hraðastillirinn passar upp á að halda
hæfilegu bili frá bílnum fyrir framan.
Oft eru þessi kerfi ófullkomin, en í
þessum bíl virkar allt eins og í sögu.
Þetta minnkar álag í löngum akstri og
getur ökumaðurinn látið hugann reika.
Aflið dugar
Eins og við er að búast af
rafmagnsbíl þá er akstursupplifunin
góð. Nær ekkert hljóð berst inn í
ökumannshúsið og fjaðrar hann
vel yfir stærri ójöfnur eins og
hraðahindranir. Fjöðrunin ræður þó
illa við að mýkja kvikar hreyfingar
sem verða við akstur á þjóðvegum.
Þegar hausnum er hallað að
höfuðpúðanum hristist maður allur
og skelfur og kvörtuðu farþegar í
þessum reynsluakstri yfir bílveiki.
Aflið í bílnum er nokkuð gott
og er hann fljótur að bregðast við
þegar þess þarf. Auðvelt er að
stinga sér inn í hringtorg og taka
fram úr á þjóðvegum. Þó er hann
ekki það kraftmikill að ökumaður
og farþegar fái fiðring í magann
þegar inngjöfin er sett í botn.
Lágt til lofts
Sætin eru mjúk og auðvelt að stilla
með rafmótorum. Flestir ættu að
geta komið sér þægilega fyrir,
en þar sem lágt er til lofts geta
hávaxnir ökumenn vænst þess að
hárgreiðslan spillist. Fótarýmið
er drjúgt fyrir öll fimm sætin, en
aftur í er lofthæðin enn verri og
því ekki hægt að bjóða fullorðnum
farþegum í langa bílferð nema í
framsætinu.
Afturhlerinn er stór og skottið
rúmgott. Ef plötunum í gólfinu er
lyft upp leynist þar lítið hólf undir
hleðslukapla og er jafnvel hægt að
nota plöturnar til að hólfa skottið
niður. Það er hentugt til að koma í
veg fyrir að innkaupapokarnir fari
út um allt. Þegar aftursætin eru lögð
niður flútta þau við gólfið og liggja
nánast flöt.
Tölur
Helstu mál eru: Lengd 4.595
mm, breidd 2.172 mm og hæð
1.660 mm. Eigin þyngd er 2.000
kílógrömm, en ekki eru upplýsingar
um heildarþyngd.
Bíllinn í þessum prufuakstri var
með 87 kWst rafhlöðu og heldur
framleiðandinn því fram að hann
komist allt að 530 kílómetra á fullri
hleðslu. Við venjulegar íslenskar
aðstæður er raunhæft að áætla
450 kílómetra drægni. Á öflugum
hraðhleðslustöðvum er hægt að
fara frá 20 upp í 80% hleðslu á 45
mínútum.
Umboðið getur ekki gefið upp
nákvæmt verð á bílnum fyrr en
eftir áramót. Blaðamanni er þó
tjáð að það verði mjög svipað og
hjá sambærilegum bílum, eins og
VW ID.4 o.fl.
Þessi bíl er að mjög mörgu
leyti öflugur keppinautur á
rafmagnsbílamarkaðnum og
fagnaðarefni að Nissan bjóði upp
á fleiri valkosti en Leaf. Í stuttu
máli: Vel heppnaður bíll – en skarar
ekki fram úr.
VÉLABÁSINN
– Nýr rafmagnaður jepplingur frá Nissan
Nissan Ariya er einn fríðasti rafmagnsbíllinn á markaðnum í dag. Framleiðandinn gefur upp allt að 530 km drægni, en raunhæft er að áætla að komast 450
km. Myndir / ÁL
Kopargulur liturinn og svart þakið fara bílnum sérstaklega vel.
Innréttingin er smekkleg. Athygli vekur að hluti viðarlíkisins er í raun hnappar.
Mikið fótapláss er í öllum fimm sætum bílsins. Hávaxnir munu hins vegar
finna fyrir lágri lofthæð – sama hvar setið er.
Mikið fótapláss er með öllum fimm sætum bílsins. Hávaxnir munu hins vegar
finna fyrir lágri lofthæð – sama hvar setið er.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is