Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Evrópa:
Erfitt uppdráttar hjá
hunangsframleiðendum
Hunangsframleiðendur í Evrópu
horfðu fram á sögulega lélegt
framleiðsluár í fyrra og nú lítur
út fyrir að árið í ár muni litast af
miklum andstæðum í álfunni.
Í Norður-Evrópu var framleiðsla
yfir meðallagi góð á meðan
suðurhluti álfunnar, þar sem mesta
framleiðslan á sér stað í venjulegu
ári, varð fyrir alvarlegum þurrkum,
svo framleiðsla þar var allt að 80%
minni en í meðalári.
Síðastliðið sumar í Norður-
Evrópu einkenndist af blómstrandi
vori með nægri nektarframleiðslu
þar sem rigndi reglulega á meðan
Suður-Evrópa glímdi við eina verstu
þurrka í áratugi sem hafði áhrif á getu
býflugnanna til að framleiða hunang.
Enn fremur hefur orkukreppan og
almenn verðbólga haft alvarlegar
afleiðingar á afkomu evrópskra
býflugnaræktenda svo margir
hverjir óttast um framtíðarstöðu
greinarinnar. Sem dæmi má nefna
hækkun á verði umbúða, þar með
talið á glerkrukkum, sem hefur
verið á bilinu 15-60% eftir löndum,
eldsneyti upp undir 40% hækkun,
rafmagn á bilinu 50-150% hækkun
ásamt fóðri fyrir býflugur, sem
hefur hækkað um allt að 70%. Með
hliðsjón af því að birgðir hunangs frá
2021 til 2022 hafa verið mjög litlar
og eftirspurn haldist stöðug þá sýnir
núverandi staða nokkurt ósamræmi
á evrópskum markaði.
Krefjast aðgerða
Stanislav Jaš, formaður vinnuhópsins
Hunang, hjá Evrópusamtökum
bænda, Copa Cogeca, vakti máls
á vandanum á dögunum og lét
eftirfarandi ummæli falla:
„Evrópskir býflugnaræktendur
eru að ganga í gegnum mjög
mikilvægt tímabil. Ég hef á
tilfinningunni að ég sé að endurtaka
mig ár eftir ár en sjálfbærni evrópskrar
framleiðslu og nauðsynleg
frjóvgunarþjónusta er í húfi. Við
erum að missa framleiðslumöguleika
á mörgum lykilsvæðum í Evrópu,
aðallega vegna loftslagsbreytinga
og efnahagsástands sem ógnar
hagkvæmni býflugnaræktar alls
staðar í ESB. Meira en nokkru sinni
fyrr verðum við að sjá gagnsæi á
hunangsmarkaði. Í samræmi við
víðtæka stefnumótun um sjálfbærni
samkvæmt evrópska græna
samningnum, eins og Farm to Fork-
stefnunni, getur framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, ásamt
evrópskum höfuðborgum, komið
á fót áþreifanlegum verkfærum og
aðferðum sem gætu hjálpað bæði
framleiðendum og neytendum. Við
biðjum um raunverulegar aðgerðir!“
Fleiri bú en minni framleiðsla
Vegna stöðunnar hefur Copa
Cogeca ítrekað ákall sitt um
endurskoðun á hunangstilskipun
ESB, sem á meðal annars að
styrkja upprunamerkingar ásamt
því að bæta reglur um rekjanleika
til að berjast gegn viðskiptum
með falsað hunang. Nauðsynlegt
þykir að framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins leggi til
lagabreytingar og eftirlitskerfi
sem styður við afkomu
hunangsframleiðenda, tryggi aðgang
neytenda að ósviknum og vönduðum
mat og geri aðildarríkjunum kleift að
berjast gegn svikum.
Hunangsframleiðendur í
Evrópusambandinu framleiða um
60% af því sem neytt er í álfunni.
Samkvæmt Matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO), dróst
framleiðslan í ESB saman um 16%
milli áranna 2015-2020 en fjöldi
býflugnabúa jókst um 16% á sama
tíma. Frá árunum 2016-2021 hefur
innflutningur á hunangi frá Kína
til ESB verið stöðugur en á sama
tíma hefur meðalinnflutningsverð
lækkað um 21%. Hins vegar hefur
innflutningur frá Úkraínu aukist á
sama tíma um 47% og er núverandi
meðalverð á evrópsku hunangi sem
selt er í lausu á bilinu 3-5 evrur á
kílóið. /ehg
Hunangsframleiðendur í Evrópu-
sambandinu framleiða um 60% af
því sem neytt er í álfunni.
Mynd / Aaron Burden
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
SERES 3 kemur
vel útbúinn.
Verð kr. 5.350.000
VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
Eitt verð fyrir alla pakka undir 45 kg að þyngd og 505050 cm
að stærð — aðeins 1.500 kr. Það sama gildir um jólamatinn,
við erum sérfræðingar í flutningi á kæli- og frystivöru.
Skráðu þína sendingu á eimskip.is
Það er einfaldast og fljótlegast að skrá sendinguna á eimskip.is
áður en þú kemur með pakkann til okkar. Þú færð svo tilkynningar
um stöðu sendingarinnar beint í símann.
Sendu jólapakkana
hvert á land sem er
AMMANN
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Í MIKLU ÚRVALI
GÆÐI SEM ENDAST
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is