Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
LÍF&STARF
Hrafninn – þjóðin, sagan, þjóðtrúin:
Einstakur karakter og bráðgreindur
Hrafninn eftir séra Sigurð
Ægisson er ein af áhugaverðari
bókunum sem komið hafa út
á þessu ári. Í bókinni rekur
höfundur sögur af hrafninum
með þjóðinni allt frá því að hann
leiddi Flóka Vilgerðarson upp að
Íslandsströndum.
Sigurður segir að svo langt sem
hann muni hafi hann haft áhuga á
fuglum og í seinni tíð þjóðfræði
þeim tengdri og ekki síst hrafninum,
sem hefur fylgt þjóðinni allt frá
landnámi og jafnvel fyrr. „Ég hef
lengi haft áhuga á krumma, því
mér hefur alltaf fundist hann bera
af öðrum fuglum að svo mörgu leyti.
Einstakur karakter og bráðgreindur.
Jón, bróðir minn, og vinir hans
voru með nokkra hrafnsunga í haldi
á Siglufirði þegar ég var krakki og
þá komst ég nær þeim og fékk að
kynnast þeim betur en úr fjarlægð.
Það var eftirminnilegt og kveikti
í raun það bál sem síðan hefur
logað í hjarta mínu fyrir þessum
einstaka fugli og ég hef í mörg
ár gefið hröfnum reglulega yfir
vetrartímann.“
Tíunda bók höfundar
Sigurður Ægisson er guðfræðingur
og þjóðfræðingur að mennt. Hann
hefur í gegnum tíðina skrifað jöfnum
höndum greinar í blöð og tímarit, hér
á landi sem erlendis, um guðfræði,
náttúrufræði, sagnfræði og þjóðfræði
og margt fleira. Hrafninn – þjóðin,
sagan, þjóðtrúin, er tíunda bók hans.
Á meðal gáfuðustu dýra
Að sögn Sigurðar var það,
samkvæmt rituðum heimildum,
hrafn sem leiddi Flóka Vilgerðarson
upp að Íslandsströndum og því til
sögur og sagnir um krumma allt
frá níundu öld. „Ég hef unnið að
söfnun heimilda fyrir þessa bók í
aldarfjórðung og safnað ýmsum
upplýsingum af þessum blakka
spekingi á þeim tíma.“
Krummi veit lengra nefi
sínu og löngum tengdist hann
myrkraöflunum og ekki var laust
við að galdramenn notuðu parta
úr búki hans í kukli sínu. Vísindin
telja hann reyndar á meðal gáfuðustu
dýra sem þessa reikistjörnu byggja
og þjóðtrúin segir hann geta orðið
900 ára.
Hrafnaþing og bæjarhrafnar
Sagt er að hrafnar haldi hrafnaþing á
haustin og skipi sér niður á bæi yfir
veturinn og leita því á náðir manna
þegar hart er í ári og jarðbönn eru.
Í bókinni kemur fram að
samkvæmt sumra manna sögn
haldi hrafnar þing tvisvar á ári, vor
og haust. Á vorþingum semja þeir
sín á milli hvernig skuli hegða sér
á sumrin, en almenn sögn er það
að þeir haldi reglulegt hreppamót
á haustin. „Á haustþingum skipa
þeir sér niður á bæi tveir og tveir,
karlhrafn og kvenhrafn, og er það
kallað að þeir „setji niður“ eins og
sveitanefndir skipa hreppsómögum
í niðursetu um hreppinn. En fari svo
að ekki verði jafnmargir karlhrafnar
og kvenhrafnar á sama hrafnaþingi
er sagt að hinir hrafnarnir leggist
allir á hinn staka að þinglokum, elti
hann og drepi hvort sem nokkur
bær er til fyrir hann til niðursetu
eða ekki. Hrafnar þeir sem niður
eru settir á hvern bæ eru ýmist
kallaðir „heimahrafnarnir“ eða
„bæjahrafnarnir“.
Fugl Óðins og hrafnamál
Sigurður rifja upp í bókinni að
hrafninn sé fugl Óðins. „Hrafninn var
fugl Óðins og var helgaður honum;
því er Óðinn kallaður hrafnaguð.
Huginn og Muninn sitja á öxlum
honum, og segja í eyru honum öll
tíðindi, er þeir sjá og heyra.“
Hann segir einnig að sú hafi
verið tíðin að mönnum hafi þótt
hámark mannlegrar speki að skilja
hrafnamál, enda urðu hinir vísu
menn, er það höfðu numið, margs
áskynja um orðna hluti og óorðna,
sem öðrum voru huldir.
Hrafninn frá mörgum hliðum
Í bókinni Hrafninn – þjóðin, sagan,
þjóðtrúin fjallar Sigurður um
hrafninn frá mörgum hliðum og
leitar víða fanga og niðurstaðan er
sú að hrafninn er engum öðrum fugli
líkur.
Í einum af þremur viðaukum
bókarinnar er svo að finna allar
íslenskar þýðingar sem vitað er um,
sjö að tölu, á hinu magnaða kvæði
Edgars Allans Poes, The Raven.
Útgefandi er Bókaútgáfan Hólar.
/VH
„Hvort ert þú svartur fugl eða fljúgandi myrkur?“ spyr Kristján frá Djúpalæk hrafninn í einu ljóða sinna. Krummi á
ferð um vetur. Mynd / Sigurður Ægisson
Sigurður Ægisson, guðfræðingur og þjóðfræðingur. Mynd / Mikael Sigurðsson
Hrafnar komu við sögu þegar taka átti Svein Björnsson (um 1596–1648) af lífi
í Rauðsdalsskörðum á Barðaströnd á 17. öld, fyrir galdra og annað misjafnt.
„Þetta eru vinir mínir,“ er haft eftir Sveini. En þegar hrafnarnir fóru allt í einu
að krunka einni röddu: „Tág, tág“, á Sveinn að hafa sagt: „Nú ætla þeir að
svíkja mig.“ Skildu böðlar hans þá krunkið og sendu eftir viðartágum þeim,
sem hinn dæmdi var loks hengdur í. Pennateikning eftir Ragnar Lárusson
(1935–2007), frá 1961. Mynd / Timarit.is
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf