Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
BORGARPLAST hefur framleitt rotþrær, skiljur
og geyma sem hafa margvísleg notagildi fyrir vatn,
efnavöru og fleira, í yfir 50 ár.
BORGARPLAST sérmíðar risarotþrær,
-skiljur og -vatnsgeyma fyrir sveitarfélög
og sumarhúsafélög.
Borgarplast.is
borgarplast@borgarplast.is
ROTÞRÆR,
VATNSTANKAR
OG SKILJUR
– MARGAR STÆRÐIR OG TEGUNDIR
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Í YFIR 50 ÁR
Ísland
Zetor Forterra HSX 140
ALÖ QZ5S ámoksturstæki m. rafmagnsstýripinna
30/30 gírkassi með 3 vökvamilligírum og ECO gír
4 hraða aflúrtak 540/540E/1000/1000E
136 hestafla sparneytinn Zetor mótor
Uppfyllir stage V mengunarstaðla
350 kg þyngingar í afturfelgum
Dekk 480/65R24 og 600/65R38
Vökva- og loftvagnbremsur
Gott sæti m. loftfjöðrun • Flott hús m. fjöðrun
3 vökvasneiðar • 8 LED vinnuljós
Loftkæling • Sótsía • AdBlue
Verð 13.640.000.- + vsk
Til afhendingar strax!
facebook.com/zetorisland LCI Lely Center Ísland
Heyrið í sölumönnum okkar
Jóhannes 822-8636 / johannes@lci.is
Jón Stefán 822-8616 / jonstefan@lci.is
bændahópunum þakka þennan góða
árangur m.a. aukinni meðvitund um
ólíka kosti fræblandna, betri nýtingu
áburðarefna, notkun skjólsáningar
og ísáningar við endurræktun
og einnig auknum sýnatökum úr
jarðvegi og fóðri. Rétt er að taka
fram að margir hóparnir halda áfram
ár eftir ár sem er mikilvægur hluti
af því að ná svo góðum árangri.
Vegna þessa góða árangurs hefur
Anu verið fengin til að þjálfa
ráðunauta víða um heim. Hún hefur
m.a. þjálfað ráðunauta í Noregi þar
sem þessi þjónusta hefur verið í boði
undanfarin ár og skilað þarlendum
bændum miklum ávinningi í
búrekstri.
Hóparnir skila þátttakendum
miklum árangri í öllum búrekstri
en hafa einnig félagslegt gildi.
Þegar bændahópar halda saman í
mörg ár verður þróun og breyting
á viðfangsefnum auk þess sem þá
er gjarnan farið í ferðir til annarra
svæða eða landa til að afla frekari
þekkingar og læra af reynslu
annarra. Þátttaka í hópunum hefur
líka sýnt sig að vera jákvæð félagsleg
upplifun en fátt er skemmtilegra en
að grúska í því sem maður hefur
áhuga á í góðum félagsskap.
Bændahópar eru fyrir alla
bændur sem vilja ná árangri í
búrekstri og auka uppskeru og
afurðir.
Áætlað er að fyrstu bændahópar
RML komi saman um miðjan
febrúar nk. Eins og fyrr segir mun
viðfangsefni sem unnið verður með
í þessum hópum snerta jarðrækt
og bætta nýtingu áburðarefna.
Atriði sem falla hér undir eru t.d.
áburðarnýting, kölkun, aukinn
þéttleiki svarðar, tegundir og yrki,
heilbrigði jarðvegs, fóðurgæði
og framleiðslukostnaður út frá
áburðarkostnaði. Hópurinn hefur
áhrif á hvar áherslurnar eiga að vera
og getur það tengst markmiðum sem
bændur hafa sett sér.
Alla jafna samanstendur hver
bændahópur af 10 bændum og
tveimur starfsmönnum RML en
nú í okkar fyrstu skrefum munu
ráðunautarnir vera þrír með hverjum
hóp. Ef fleiri en einn aðili kemur að
búrekstri á búi geta báðir aðilar tekið
þátt og þá með þeim hætti að sami
aðilinn mæti alltaf eða báðir en ekki
er leyfilegt að skiptast á að mæta.
Verkefnið er ársverkefni og hist er
sex sinnum nú þetta fyrsta ár, auk
þess sem sambandi er haldið þess á
milli í gegnum netið.
Á fyrsta fundi er ákveðið hvaða
þætti skuli lögð áherslu á það árið,
hver markmið hópsins eru, auk
þess sem hópurinn setur sér reglur
varðandi t.d. símanotkun, stundvísi
og hvaða gögnum menn ætli að
deila með hópnum. Fyrsti fundur
er í fundarsal, eða sambærilegri
aðstöðu. Næstu fundir þar á eftir
eru á bæjum einhvers úr hópnum
og koma þátttakendur í hópnum
sér saman um fyrirkomulag og
staðsetningar. Dagskrá funda fer
bæði fram innan- og utandyra eftir
eðli verkefna sem tekin verða fyrir
hverju sinni.
Við bindum miklar vonir við
þetta nýja verkefni og teljum að
það geti verið bændum til mikilla
hagsbóta. Búið er að opna fyrir
umsóknir á heimasíðu RML.
Sigurður Torfi Sigurðsson,
ráðunautur á rekstrar- og
umhverfissviði
Þórey Gylfadóttir,
ráðunautur á rekstrar- og
umhverfissviði
Ráðunautarnir í Finnlandi.