Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Á FAGLEGUM NÓTUM
Hin heimsfræga þýska
landbúnaðarsýning, EuroTier,
var haldin um miðjan nóvember
síðastliðinn en þessi sýning er
venjulega haldin annað hvert ár.
Árið 2020 var það þó ekki hægt
þar sem heimsfaraldurinn geisaði.
Þessi sýning, sem er sérhæfð í
búfjárrækt og þá sérstaklega í
nautgripa-, svína- og alifuglarækt,
er sú stærsta sinnar tegundar í
heiminum og þar er aðaláherslan
lögð á tækni og þjónustu við
búgreinar en einnig eru haldnar
hefðbundnar kynbótasýningar
á sýningunni. Alls sýndu 1820
fyrirtæki vörur sínar og þjónustu á
henni. EuroTier hefur þá sérstöðu
meðal landbúnaðarsýninga að flest
fyrirtæki í þessum megingeirum
landbúnaðarins reyna yfirleitt að
nota sýninguna til þess að frumsýna
nýjungar í von um að vinna til
heiðursverðlauna sýningarinnar.
Sýningin í ár stóð svo sannarlega
undir nafni og var sérstök fyrir
þær sakir að þrjú fyrirtæki fengu
gullverðlaun sýningarinnar fyrir
heimsfrumsýningu á nýjungum
sem þykja skara fram úr. Sýninguna,
sem stóð í fjóra daga, sóttu rúmlega
100 þúsund gestir og þar af nokkrir
Íslendingar. Að vanda var ótal margt
áhugavert sem fyrir augu bar og hér
má sjá nokkur dæmi um slíkt.
Að vanda var hægt að sjá marga
fallega kynbótagripi á sýningunni.
Eitt spenagúmmí fyrir allar kýr
Ein af framannefndum þrennum
gullverðlaunum voru gefin til
fyrirtækisins Siliconform Vertriebs
fyrir einstaka nýjung en það er
spenagúmmí, reyndar úr sílikoni,
sem er með sérstaklega hannað
op sem gerir það að verkum að
það mjólkar allar kýr jafn vel
óháð spenastærð. Þetta hefur verið
vandamál frá upphafi vélmjalta
enda kýr með ólíka spena að stærð
og lögun og hafa bændur því þurft
að vera með spenagúmmí sem
henta flestum kúm en þá eru s.s.
alltaf einhverjar kýr sem mjólkast
verr vegna þess að þeirra spenar
passa í raun ekki almennilega í
spenagúmmíið. Þessi nýjung er því
einstök og verður einkar fróðlegt
að fylgjast með því hvort stóru
aðilarnir á markaðinum komi ekki í
kjölfarið með einhvers konar nálgun
að svipaðri hönnun. Það mun koma
í ljós á næstu misserum.
Hin nýja hönnun auðveldar
góðar mjaltir fyrir allar kýr óháð
spenastærð.
Hreinsar sjálfkrafa útigerðið
Önnur gullverðlaun sýningarinnar
féllu í skaut fyrirtækisins
Wasserbauer sem kynnti hreint
magnaða nýjung en um var að
ræða þjarka sem ekur um útigerði
hrossa og tekur upp hrossaskít!
Þetta undratæki vinnur út frá
staðsetningarbúnaði og notkun
stafrænna myndavéla sem umlykja
útigerði hrossanna. Þessi búnaður
„veit“ hvernig hreint gerði lítur
út og ef hross skítur úti, þá getur
tölvubúnaðurinn staðsett skítinn
og sent þjarkann á staðinn. Hann
er svo útbúinn þéttriðnum gaffli og
mokar hreinlega skítnum upp og
setur í sérstakan kassa. Svo keyrir
þjarkinn með skítinn á þann stað
sem eigandinn vill að skítnum sé
ekið til og losar kassann. Eiginlega
hálf ótrúleg tækni!
Þjarkinn safnar upp sjálfkrafa
hrossaskít í útigerðinu.
GEA geldir kýrnar betur upp
Þriðju og síðustu gullverðlaun
sýningarinnar féllu svo mjalta-
tækjaframleiðandanum GEA í skaut
en fyrirtækið hefur hannað sérstakan
hugbúnað, fyrir mjaltaþjóna
fyrirtækisins, sem geldir kýrnar
sjálfkrafa upp með betri hætti en
hingað til hefur verið mögulegt.
Búnaðurinn sér sjálfur um að mjólka
kýrnar að hluta til, þ.e. tekur af þeim
áður en þær eru tómar 10 dögum
fyrir ætlaðan geldstöðudag og
gerir þetta alla daga fram að burði
í hlutfalli við ætlaða framleiðslugetu
kúnna. Þetta er áhugaverð nýjung
sem GEA hefur útbúið þarna en
oftar en ekki gelda bændur kýrnar
mun hraðar upp en GEA gerir hér
og margir hætta hreinlega að mjólka
frá einum degi til annars.
Verðlaun sýningar sem ekki varð
Á sýningunni í ár mátti reyndar sjá
fleiri verðlaun, svo sem í öðrum
flokkum auk þess frá sýningunni sem
var frestað. Það ár var verðlaunum
úthlutað til nokkurra fyrirtækja,
sem sóttu um og kynntu tækni
sýna án þess þó að sýningin væri
haldin vegna heimsfaraldursins.
Þessi fyrirtæki gátu svo í ár kynnt
sig sem „verðlaunafyrirtæki“ og eitt
þeirra var með áhugaverða tækni
en um var að ræða sérstakan búnað
sem fylgist með heilsufari kálfa í
einstaklingsstíum.
Víða erlendis er mjög algengt
að smákálfar séu hafðir í
einstaklingsstíum fyrstu vikurnar
eftir burð, til þess að gefa þeim
færi á að ná styrk og þreki áður
en þeir eru færðir í hópstíur. Þetta
er einnig gert til þess að auðvelda
umsjónarfólki að sinna kálfunum
s.s. við mjólkur- og kjarnfóðurgjöf
svo dæmi sé tekið. Búnaður
fyrirtækisins Futuro Farming felst í
því að sérhönnuðum hreyfiskynjara
er komið fyrir á framhlið stíunnar
og fylgist búnaðurinn með atferli
kálfsins, þ.e. hreyfingu og legu.
Svo er sérstakur hugbúnaður sem
reiknar út fyrir hvern kálf, út frá
mældum gögnum, hvort líkur séu
á því að kálfurinn sé að veikjast
eða ekki. Búnaðurinn þykir einkar
nákvæmur og getur fundið merki um
slappleika vegna lungnaveiki allt
að þremur dögum áður en verulega
sýnileg einkenni koma fram. Þá
getur búnaðurinn numið merki um
að kálfurinn sé að fá skitu allt að
12-24 tímum áður en kálfurinn fær
raunverulega skitu. Fyrir vikið er
hægt að grípa mun hraðar inn í og
beita mótvægisaðgerðum svo draga
megi úr veikindunum eða jafnvel
koma í veg fyrir þau.
.
Alls konar kæling kúa
Þeir sem fara reglulega á fagsýningar
vita að þær eru einstaklega góður
vettvangur til þess að fylgjast með
þróun tækni og búnaðar í landbúnaði.
Þannig má nefna sem dæmi þróun
velferðarherðakambssláa sem fyrir
áratug eða svo var lausn sem einungis
eitt fyrirtæki bauð upp á en í dag eru
allir framleiðendur innréttinga með
svona lausn. Á sýningunni í ár mátti
sjá nokkur dæmi um svona þróun og
þá sérstaklega á sviði kælinga á kúm.
Kýr í hárri nyt innbyrða mikið magn
af fóðri og þegar örverurnar í vömb
þeirra brjóta það niður myndast
mikill umfram hiti sem kýrnar þurfa
að losa sig við. Ef úti er kalt er þetta
ekkert vandamál en ef útihitastigið
er komið vel yfir 20 gráðurnar fer
kúnum að líða illa og bitnar það þá
beint á bæði mjólkurframleiðslunni
og frjósemi þeirra. Vegna þessa
þurfa bændur í heitari löndum að
velja hvort þeir ætli að vera með
lágmjólka kýr, sem þá þarf ekki að
kæla, eða hámjólka kýr og þá vera
með kælingu fyrir kýrnar.
Á sýningunni núna voru einmitt
ótal fyrirtæki með allskonar lausnir
til þess að kæla kýrnar, bæði með
viftum og vatnsúðakerfum, en á fyrri
EuroTier sýningum hefur svona
búnaður vart verið sjáanlegur svo
nokkru nemi. Skýringin á þessari
breytingu núna er bæði hitnandi
veðurfar í Evrópu ásamt hækkandi
afurðasemi kúnna sem hefur leitt til
snaraukinnar eftirspurnar kúabænda
eftir lausnum til þess að gera
umhverfi kúnna betra.
Ótal fyrirtæki buðu upp á ólíkar
leiðir til þess að kæla kýr, bæði
viftur, úða- og vökvunarkerfi.
Lambafóstrur
Undanfarin ár hafa fleiri og fleiri
fyrirtæki komið með áhugaverðar
Landbúnaðarsýningar:
Margar nýjungar á EuroTier 2022
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Að vanda var hægt að sjá marga fallega kynbótagripi á sýningunni.
Hin nýja hönnun auðveldar
góðar mjaltir fyrir allar kýr óháð
spenastærð.
Þjarkinn safnar sjálfkrafa upp hrossaskít í útigerðinu.
Búnaður Futuro Farming lætur ekki mikið yfir sér en getur þó vaktað atferli
kálfsins með miklu öryggi. (Mynd: Futuro Farming)
Ótal fyrirtæki buðu upp á ólíkar leiðir til þess að kæla kýr, bæði viftur, úða-
og vökvunarkerfi.
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is