Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Heimild: The World Bank.
Commodity Markets Outlook.
October 2022.
Verð á hrávörumörkuðum enn í hæstu hæðum
Góð uppskera
ástæða verðlækkunar
Verð á kornvörum lækkaði um
12% á þriðja ársfjórðungi 2022
en er áfram næstum 20% hærra
en fyrir ári síðan. Lækkun á
hveitiverði er einkum vegna
góðrar uppskeru á heimsvísu
og samninga SÞ og Rússlands
um útflutning á kornvöru frá
Úkraínu um Svartahaf. Gert
er ráð fyrir því að birgðir á
kornvörum dragist saman á
þessu ári vegna samdráttar í
framleiðslu. Markaðir gera ráð
fyrir því að framboð á soja verði
minna en verið hefur, sem hefur
sett þrýsting á verð.
Hveiti
61 kr/kg
23%
Maís
48 kr/kg
43%
Soja
76 kr/kg
20%
Áburðarhráefni
Verð í október ásamt
12 mánaða verðbreytingu
Köfnunarefni
(Urea)
89 kr/kg
-8%
Fosfór
(TSP)
95 kr/kg
9%
Kalí
(Potassium chlo.)
79 kr/kg
155%
Fóðurhráefni
Verð í október ásamt 12 mánaða
verðbreytingu
0
20
40
60
80
100
120
140
160
180
200
Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt
2021 2022
Ja
nú
ar
20
21
=
1
00
Heimsmarkaðsverð á fóðurhráefnum
Hveiti Maís Soja
0
50
100
150
200
250
300
350
400
Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt
2021 2022
Ja
nú
ar
20
21
=
10
0
Heimsmarkaðsverð á áburði
N (Urea) Fosfór Kalí
Áburðarverð lækkar
Þróun á heimsmarkaði með
áburð sýnir lækkun á þriðja
ársfjórðungi 2022, eftir að
áburður náði sögulega hæsta
verði í apríl. Verðlækkun er
fyrst og fremst knúin áfram
af minni eftirspurn, þar sem
bændur hafa einfaldlega dregið
úr notkun eða ekki haft tök á því
að kaupa áburð. Þá ríkir enn þá
mikil óvissa með framboð vegna
viðskiptaþvingana gegn Hvíta-
Rússlandi og Rússlandi. Þá
hefur ríkisstjórn Kína takmarkað
útflutning á áburði.
Innflutningur á hráefnum til
fóðurframleiðslu 2020-2022
Magn, tonn Verðmæti, millj. Kr Einingaverð, kr/kg
2020 2021 2022 2020 2021 2022 2020 2021 2022
Harðhveiti til fóðurs 21.055 20.343 17.942 695 784 960 33 39 54
Hveiti til fóðurs 5.480 5.355 4.084 188 218 222 34 41 54
Bygg til fóðurs 12.035 11.905 8.921 358 443 431 30 37 48
Annar maís til fóðurs 20.533 19.249 15.130 730 803 835 36 42 55
Sojabaunamjöl 2.535 2.626 2.240 152 182 177 60 69 79
Olíukökur (soja) 14.197 13.199 10.501 865 917 826 61 69 79
Annað dýrafóður 17.475 17.083 12.831 1.061 1.193 969 61 70 76
Í kjölfar heimsfaraldurs Covid-19 og
innrásar Rússa í Úkraínu urðu hækkanir á
hrávörumörkuðum sem varla eiga sér hliðstæðu.
Þrátt fyrir að greina megi nokkra verðhjöðnun
á hrávörumörkuðum, síðustu misserin, er
verð enn í hæstu hæðum. Verðhjöðnun á
hrávörumörkuðum er einkum knúin áfram af
miklum samdrætti í hagvexti á heimsvísu og
áhyggjum af yfirvofandi samdrætti í alþjóðlegum
viðskiptum. Þróun verðlags næstu mánuðina
ræðst að miklu leyti af stöðu á orkumörkuðum.
Líkur eru á því að orkuverð fari lækkandi með
tilheyrandi verðhjöðnun á hrávörumörkuðum.
Allir greinendur eru sammála um að mikil óvissa
ríki á öllum mörkuðum. Verð á Brent hráolíu
lækkaði verulega á þriðja ársfjórðungi 2022 og
var verðið í september 2022 að meðaltali 25
prósentum undir því sem það var í júní. Fallið
endurspeglar áhyggjur af yfirvofandi samdrætti
í alþjóðlegum
v i ð s k i p t u m ,
áframhaldandi
t a k m a r k a n i r
vegna útbreiðslu
Covid-19 í Kína
og ákvörðun
olíuríkja um aukna
framleiðslu. Verð
á jarðgasi í Evrópu
náði sögulegu
hámarki í ágúst
2022. Síðan þá
hefur verð farið
lækkandi, m.a. vegna bættrar birgðastöðu, sem
m.a. er tilkomin vegna fyrirhugaðra áforma
nokkurra Evrópuríkja um að flytja inn fljótandi
jarðgas. Spár gera ráð fyrir að verð á gasi muni
lækka árið 2023 vegna minni eftirspurnar.
Horfur í orkuverði munu þó ráðast af því hversu
kaldur veturinn í Evrópu verður. Hækkanir á
hrávörumörkuðum eru þegar komnar fram í verði
hér á landi og allt eins víst að meiri hækkun sé
í kortunum.
Heimild: Hagstofa Íslands. Október 2022. Tölur fyrir 2022 eru fyrir jan-okt.