Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Minkur á Íslandi
Minkur, Neovison vison, er rándýr
af marðarætt sem uppruninn er
í Norður-Ameríku.
Fullorðnir minkar eru um 40
sentímetrar að lengd, langir
og grannir og með lítið höfuð.
Í náttúrunni lifir hann aðallega á
fiski og fuglum.
Fyrstu minkabúin í Evrópu voru
sett á laggirnar árið 1927 í Noregi
og árið 1928 í Svíþjóð.
Minkar voru fyrst fluttir til Íslands
haustið 1931. Þrjú dýr voru keypt
af norskum loðdýrabændum
og flutt að Fossi í Grímsnesi.
Nokkrum mánuðum síðar voru
75 minkar fluttir á nýstofnað bú
á Selfossi. Minkabúum fjölgaði
á næstu árum og var meðal
annars stofnað bú að Selási við
Reykjavík. Þegar mest var héldu
yfir hundrað aðilar mink hér á
landi á misstórum búum.
Verð á minkaskinnum var hæst
2013 en lækkaði 2014 og hefur
verið lágt síðan þá og er í dag
undir framleiðsluverði.
Átta minkabú eru á landinu í
dag en eitt mun hætta starfsemi
fljótlega.
Áætlaður fjöldi skinna í
framleiðslu á ári er um 65
þúsund skinn.
Minkar sluppu fyrst úr haldi hér
á landi haustið 1932 og gerðist
það á Grímsnesbúinu. Á næstu
árum sluppu minkar einnig úr
öðrum búum, meðal annars úr
Selásbúinu. Minkur hafði breiðst
út um land um 1975 þegar hann
hann fannst í Öræfasveit.
nauðsyn þess að leggja stund á
lífræna framleiðslu. Í umræðunni er
litið framhjá öllu örplastinu í hafinu
sem er tilkomið vegna notkunar á
gerviefnum við framleiðslu á fatnaði.
Skinn sem eru afurð minkaeldis
eru 100% náttúrulegar vörur sem
brotna hratt niður sé þeim fargað og
menga ekki en endast í áratugi sé vel
með þau farið og geta jafnvel verið
erfðagripir. Fatnaður úr gerviefnum
endist aftur á móti illa og veldur
mikilli mengun þar sem hann brotnar
hægt ef þá nokkurn tíma niður að
fullu.
Að mínu mati byggir andstaða á
skinnaframleiðslu á misskilningi og
því nauðsynlegt að útskýra hana fyrir
fólki og fá það til að skoða málið í
víðu samhengi.“
Ásgeir segir að ekki sé nóg með að
það finnist mikið af örplasti í hafinu
því það finnist einnig í grunnvatni
og að það sé farið að valda dauða
ánamaðka og þannig hafa slæm áhrif
á frjósemi jarðvegs.
„Svo segist fólk ekki vilja
ganga í pels og kýs gerviefni
á þeim forsendum að það sé
umhverfisverndarsinnar og á móti
loðdýraeldi, sem er bæði fáránlegt
og galið.“
Öfugsnúin náttúruvernd
Ásgeir segir að því miður sé það
staðreynd að minkaeldi hafi á sér
slæmt orð enda hafi áróður gegn
greininni verið mikill síðustu
áratugi. „Árið 1988 var ég á stórri
ráðstefnu í Kanada um framtíð
loðdýraeldis og þar kom fram að
hópar náttúruverndarsinna hafi haft
samband við stór olíufyrirtæki og
fyrirtæki sem framleiddu gerviefni
fyrir fataiðnaðinn og hótað að birta
myndir sem sýndu fyrirtækin í slæmu
ljósi nema þau veittu fjármagni
í baráttuna gegn seladrápi og
loðdýraeldi.
Í framhaldi af því er það að
banna selveiðar og loðdýraeldi og
nota gerviefni í staðinn orðið að
náttúruvernd sem er þverstæða sem
margir vilja ekki skilja.“
Innlent fóður
„Annað sem vert er að hafa í huga er
að fóðrið sem notað er til eldisins er
úrgangur sem annars þyrfti að farga
með ærnum kostnaði. Það er 99,6%
innlent hráefni en 0,4% er vítamín
og sýra sem er innflutt. Við breytum
úrganginum í lífrænan áburð sem
notaður er í túnrækt og bændur mjög
ánægðir með.“
Vel hugsa um dýrin
„Dýrin hafa það gott í eldinu og
vel hugsað um þau og eldið undir
eftirliti dýralæknis. Hingað hefur
komið dýralæknir frá Brussel til að
skoða aðbúnaðinn og hafði ekkert út
á eldið að setja.
Ég man vel að þegar hún sá kettina
sem við höfum til að veiða mýs að
hún horfði á mig og sagði: „Þið notið
lífrænar aðferðir til að halda niðri
músum,“ og bætti við, „það er bannað
í löndum Evrópusambandsins og þar
verður að nota eitur.“
Ég hef því oft velt því fyrir mér hvað
er dýravernd og hvað er náttúruvernd
og hvort umhverfisverndarsinnar
séu í raun helstu óvinir jarðarinnar?
Því miður er það svo að í dag er ég
kominn á þá skoðun að svo sé,“ segir
Ásgeir Pétursson loðdýrabóndi að
lokum.
Minkar í eldi.
Pétur Ásgeirsson við pelsunar-
róbótinn.
Minkaskinn tilbúin til útflutnings.
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
VH
/2
2-
03
GARÐHÚS 4,7m²
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
45% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustustöð-
var Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
Nánari upplýsingar
á heimasíðu okkar
volundarhus.is
og í síma 864-2400.
HAUSTTILBOÐ
Rýmingarsala · Allt á að seljast!
20% afsláttur af öllum garðhúsum og
15% afsláttur af völdum gestahúsum á meðan byrgðir endast.
Takmarkað magn · Ekki missa af þessu · Fyrstur kemur fyrstur fær
www.volundarhus.is