Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
fullkomlega um félagana - hver bás
4x4 fm að stærð. Rennibekkirnir
eiga sér þar allir sinn stað og þó
stærð þeirra sé mismunandi er nægt
rými fyrir eigendurna til að snúa sér í
hring. Taka jafnvel nokkur dansspor.
Stærðin og þá verðbilið á bekkjunum
er frá um 100 þúsund krónum upp í
1,5 milljón króna. Fer þá í raun eftir
hvort eigandinn sér fyrir sér að gera
smáa og fínlega hluti eða þá sem
meiri eru um sig. Geymslurými má
svo finna fyrir ofan hvern bás þar
sem sést glytta í efniviðinn.
Einn er þó básinn sem ekki
hýsir rennibekk, en þar hefur
aðsetur hún Anna Lilja Jónsdóttir,
útskurðarmeistari staðarins. Gaman
er að sjá hvernig listrænir hæfileikar
hennar fá að njóta sín frá teikningu
að fullgerðu verki og greinilegt að
þarna er um reglulega listakonu að
ræða.
Allir eru sammála um að
félagsskapurinn sé góður en hann
hófst fyrir tíu árum og hefur haldist
jafn og þéttur síðan. Kaffistofan er
á sínum stað, allir með eigið pláss,
geta verið í sínu en einnig rabbað
við næsta mann ef svo ber undir. Í
Snúið og skorið eru allir með lykil
og leigunni skipt bróðurlega á milli.
Að lokum
„Í augnablikinu eru félagsmenn
í Félagi trérennismiða alls
248 yfir landið, flestir á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir Örn.
„Hafa félagsmenn aðgang að
skemmtilegu fólki á mánaðarlegum
fundi sem haldinn er í smíðadeild
Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Til
viðbótar við skemmtilega fólkið
hafa nokkrar verslanir gefið okkur
afslátt á verkfærum og slíku,“ bætir
hann við.
„Stefnt er að því að taka upp
fundina og deila yfir netið svo þeir
sem búa utan höfuðborgarsvæðisins
geti notið þeirra líka. Við erum alltaf
með fræðslu og sýnum rennsli.
Nú, farin er ein dagsferð að vori,
rennismiðatengd. Síðast fórum við
á Stykkishólm og á Ólafsvík og
heimsóttum félaga þar, til að styrkja
böndin. Svo stefni ég að því að halda
svokallaða rennimessu úti á landi.
Við héldum eina hér í Reykjavík, en
stefnum á Eyjafjörðinn. Rennimessa
er í raun þannig að þá koma
áhugasamir með bekkina sína og við
rennum saman auk þess sem gestum
og gangandi er boðið að líta inn og
kynna sér hvað við höfum upp á að
bjóða. Hvatning inn á við og út á
við. Ég get ekki sagt annað en að
hagurinn af því að vera í félaginu sé
augljós og öllum velkomið að kíkja
á mánaðarlegu fundina okkar,“ segir
Örn Ragnarsson, formaður Félags
trérennismiða, brosandi.
Anna Lilja Jónsdóttir, útskurðarmeistari staðarins er sú eina sem mundar
ekki rennibekkinn í Snúið og skorið.
Úrval af þægilegum og endingagóðum sokkum.
40 sölustaðir, hafðu samband til að fá upplýsingar um
sölustað í nágrenni við þig.
Sokka Kompaníið ehf. 230 Reykjanesbær - info@socks2go.eu - gsm: 831 8400 - www.socks2go.is
Óskað er eftir tilboðum
í rekstur fjallaskála
Bláskógabyggð auglýsir eftir tilboðum í rekstur fjallaskála á
Kili. Nánar tiltekið er um að ræða hálendismiðstöðina Árbúðir
og fjallaselið Gíslaskála í Svartárbotnum, ásamt tilheyrandi
mannvirkjum, og nánar tilgreindum hesthúsum og hestagerðum á
svæðinu.
Óskað er eftir tilboði í rekstur fjallaskálanna til fimm ára frá 1. janúar
2023 til 31. desember 2027. Nýta skal hina leigðu aðstöðu til reksturs
ferðaþjónustu.
Þeir sem hafa áhuga á að fá verðfyrirspurnargögn sendi beiðni þess
efnis á blaskogabyggd@blaskogabyggd.is.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Bláskógabyggðar eigi síðar en
miðvikudaginn 7. desember n.k. kl. 11:00 þar sem þau verða opnuð að
viðstöddum þeim sem þess óska.