Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Síða 13
BYGGINGAR FYRIR
ALDRAÐA HJÁ
REYKJAVÍ KU RBORG
STEFÁN HERMANNSSON
aðstoðarborgarverkfræðingur
Byggingarnefnd aldraðra,
sem fjallar um byggingu
stofnana, íbúða og
þjónustuhúsnæðis fyrir
aldraða hj á Reykj avíkurborg og gerir
um það tillögur til borgarráðs, hefur
starfað samfellt alla tíð frá því að
hún var fyrst sett á laggirnar 1975.
Félagsmálaráð fjallar hins vegar um
rekstur þessara stofnana, svo og um
heimilishjálp og félagsstarf fyrir
aldraða. Núverandi formaður
Byggingarnefndar aldraðra er Páll
Gíslason læknir, borgarfulltrúi og
varaforseti borgarstjórnar, en
núverandi formaður félagsmálaráðs
er Guðrún Zoéga verkfræðingur og
borgarfulltrúi.
Samband milli þessara aðila og
samstarf er með ágætum og hefur
félagsmálastjóri Sveinn Ragnarsson
setið fundi Byggingarnefndar
aldraðra frá upphafi. Þó er það
ákveðinn ókostur að sami aðili skuli
ekki fara með yfirstjórn reksturs og
bygginga, því athyglin þarf alltaf að
beinast að þessu hvoru tveggja
samtímis, en auðvitað má segja að
yfirstjórn borgarinnar, borgarráð og
borgarstjórn, hafi þessa yfirsýn.
Ekki eru þó allar þær byggingar,
sem Byggingarnefnd aldraðra hefur
mælt með fjármögnun á eða séð um
bygggingu á, í rekstri hjá Félags-
málastofnun. Þannigeru hjúkrunar-
heimilin Skjól og Eir bæði sjálfs-
eignarstofnanir og á sínum tíma
hafði nefndin afskipti af B-álmu
Borgarspítalans og hjúkrunardeild
í Fíafnarbúðum.
Fyrstu íbúðirinar sem reistar voru
eftir 1975 voru þjónustuíbúðir við
Lönguhlíð 3 og við Dalbraut 21-
27, en íbúðirnar í Furugerði 1 voru
áður hannaðar og voru á fram-
kvæmdastigi 1975. Síðan komu
Droplaugastaðir, þjónustuíbúðirog
hjúkrunardeild, og þar næst
Seljahlíð sem tekin var í notkun
1986. Það varbyggt semvistheimili
fyrir 80 vistmenn en hefur síðar
verið breytt þannig að komin er
hjúkrunardeild fyrir 13 manns, en
vistmenn eru 70. Síðar var bætt við
eignaríbúðum í raðhúsum við
Seljahlíð og voru það fyrstu
íbúðirnar sem sérhannaðar eru fyrir
aldraða sem Reykjavíkurborg hefur
sjálf byggt og selt.
A Vesturgötu 7 var byggt hús sem
að ýmsu leyti var óvenjulegt í
hönnun og byggingu. I fyrsta lagi
vegna þess að á húsinu er ferns
konar notkun. Efst eru 27 söluíbúðir,
síðan heilsugæslustöð meðfram
Garðastræti og félags- og þjónustu-
miðstöð aldraðra í álmunni með-
fram Vesturgötu og inn með
Mjóstræti og loks bílakjallari opinn
almenningi undir öllu saman. I
öðru lagierhúsiðóvenjulegtvegna
staðsetningar og skipulagsaðstæðna
og loks er þetta fyrsta húsið sem
Reykjavíkurborg hefur byggt með
einangrun utan á burðarveggjum.
Næstu stóru verkefnin sem nú eru í
gangi eru annars vegar hjúkrunar-
heimilið Eir við Hlíðarhús í Grafar-
vogi og hins vegar þjónustuíbúðir
við Lindargötu. Eir er ætlað að
rúma um 100 hjúkrunarpláss líkt og
Skjól sem þegar er tekið í notkun.
Þó sér borgarverkfræðingsemb-
ættið ekki um framkvæmdir enda
er um að ræða sjálfseignarstofnanir
með þátttöku ýmissa annarra aðila
bæði sveitarfélaga og stéttarfélags.
Til að gefa hugmynd um stærð þessa
verkefnis má geta þess að heildar-
stærð byggingarinnar er um 6700
m^ og heildarkostnaður áætlaður
840 millj. kr. Það kann að þykja
mikið, éða um 8,5 millj. kr. pr.
pláss, en athyglisvert er að
rekstrarkostnaður nemur sömu
upphæð á rúmlega þremur árum.
Við Lindargötu er verið að reisa 94
íbúðir í alls 15 turnum í stíl Skúla-
götuskipulagsins. Ná byggingarnar
eða byggingin allt frá Vitatorgi við
Hverfisgötu og niður að Skúlagötu.
Mjög stórt þjónusturými er svo á
neðstu hæðum ásamt sérstakri
dagvistardeild. Undir öllu saman er
svo bílastæðakjallari fyrir 225 bíla.
11