Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 16
Yfírlit yfír söluíbúðir og þjónustuhúsnæði
FRET TATIL KYN N I N G
Aflagrandi 40 61 eignaríbúð Félags- og þjónustumiðstöð
Vesturgata 7 27 eignaríbúðir Félags- og þjónustumiðstöð
Furugerði 1 Leigufbúðir Félagsmiðstöð
Bólstaðarhlíð 43 66 eignaríbúðir Félags- og þjónustumiðstöð
Langahlíð 3 Leiguíbúðir Félagsmiðstöð
Norðurbrún 1 Leiguíbúðir Félags- og þjónustmiðstöð
Hvassaleiti 56-58 60 eignaríbúðir Félags- og þjónustumiðstöð
Gerðuberg Seljahlíð Þjónustuhúsn. Félagsmiðstöð Félags- og þjónustumiðstöð
Dalbraut 18-20 Eignaríbúðir Þjónustusel
Sléttuvegur Eignaríbúðir Þjónustusel
Hraunbærl03-105 46 eignaríbúðir Félagsmiðstöð
Hæðargarður 31 41 eignaríbúðir Félagsmiðstöð
Hæðargarður Lindargata 2) 18 eignaríbúðir 47 leiguíbúðir Félags- og þjónustumiðstöð
Lindargata 2) 47 hlutdeildar- Félags- og þjónustumiðstöð
Suðurgata 1) Suðurmjódd 2) íbúðir 101 eignaríbúð Þjónustusel Félags- og þjónustumiðstöð
í hönnun
2) í byggingu
FélagS' og þjónustumiðstöðvarnar
eru flestar um 100 m2, svo sem
Bólstaðarhlíð, Aflagrandi og
Vesturgata 7. Næst stærsta „teg-
und” miðstöðva, félagsmiðstöð, er
500-600 m2 svo sem Hraunbær og
Hæðargarður. Þjónustuselin eru
200 -300 m2.
Þessi mannvirki gefa öll mjög góða
möguleika á að stundað sé ýmiss
konar félagsstarf og veitt þjónusta
þeim sem ekki þurfa mikla hjálp
eða hjúkrun. Æskilegt væri að
lóðirnar og teikningarnar væru
þannig að auðvelt sé að stækka og
breyta síðar, en það er því miður
sjaldnast. Verður þá að miða við að
fólk flytjist um set eftir þjónustu-
þörf.
Sem betur fer eru íbúðir þessara
húsa brey tilegar að stærð en að öðru
leyti tiltölulega keimlíkar, einkum
þær söluíbúðir sem félagasamtökin
hafa látið byggj a, þar sem turnformið
er ráðandi, nema hjá V.R. í
Hvassaleiti.
Hinnmiklifjöldi íbúðasembyggður
hefur verið og bæst við markaðs-
framboð í þessu formi hefur ýmsa
kosti. Endurnýjun verður meiri í
eldri hverfum og fólk getur flutt úr
stórum húsum sem erfitt er orðið og
kostnaðarsamt að halda við. Telja
má eðlilegt að framboð af slíkum
íbúðum verði um það bil 100 íbúðir
á ári. Þá ber nauðsyn til að þessum
húsum verði fundinn staður í nýjum
hverfum eins og raunar er gert við
skipulagningu þeirra. Skemmtilegt
væri að meiri nýbreytni og
fjölbreytni kæmi fram í gerð
húsanna. ■
NÝTT!
ókeypis
róðgjöf!
Ákveðið befur verið að bjóða
áskrifendum tímaritsins Arkitektúr
og skipulag ókeypis ráðgjöf um
byggingarlist, skipulagsmál,
innanhússarkitektúr, landslags-
arkitektúr ofl. Þessi ráðgjöf verður
veitt einu sinni í viku, áföstudögum
milli 13 og 16,entalsverterumþað
að fólk lendi í miklum vandræðum
með fasteignir sfnar og fram-
kvæmdir, sem einföld ráðgjöf hefði
getað komið í veg fyrir.
Þeir sem vilja færa sér í nyt þessa
þjónustu geta skrifað tímatritinu
eðapantaðtímaísíma616577 -fax
616571.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún
Sæmundsdóttir, Arkitektúr og
skipulag, Garðastræti 17 Rvk. sími:
616577 -fax 616571
Áskriftarverðlaun tímaritsins voru
nýlega veitt og hlaut Ágúst
Birgisson byggingatæknifræðingur
málningu frá Hörpu hf á íbúð sína í
verðlaun. Guðjón Bjarnason arki-
tekt mun aðstoða við litaval og
verður sagt frá því í tímaritinu
hvernig til tókst.
OG SKIPULAG
14