Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Page 25
Þessi tvö 13 hæða hús eru núna í byggingu á vegum Félags
eldri borgara í Reykjavík. I hvoru húsinu eru 50 íbúðir.
Þjónustumiðstöð, llOOm2, á vegum Reykjavíkurborgar verður
sambyggð húsunum.
Síðan er ætlunin að byggja hjúkrunarheimili með 120
sjúkrarúmum á svæðinu.
t#d Þ5 rvyk/
að steyta á slíkum skerjum í
sambandi við hönnun. An efa
mættum við eignast fleiri arkitekta
sem legðu sig sérstaklega eftir að
hanna húsnæði fyrir aldraða.
HVAÐBERAÐGERA?
Samfélag okkar hefur breyst á
ótrúlega skömmum tíma eins og
alkunna er. Við lifum í raun í
stöðluðu þj óðfélagi með sérhæfingu
og verkaskiptingu. Einkenni
þéttbýlisfjölskyldunnar er að
foreldrarnir vinna utan heimilis og
börnin eru annað tveggj a í dagvistun
eða í skólanum. Aldrað fólk fellur
illa inn í slíkt lífsmynstur
heimilanna.
Við þessar aðstæður er án efa best
fyrir alla aðila að eldra fólkið búi
útaf fyrir sig í íbúðum sem því
henta og þar sem fyrir hendi er
eftirlit og hægt að veita aðstoð ef
með þarf. Þetta er í raun sú stefna
sem fylgt hefur verið í húsnæðis-
málum aldraðra hin síðari ár. Hinn
1. desember s.l. voru 11.456
Reykvíkingar sem náð höfðu 67 ára
aldri eða um 11.5% íbúanna. Þetta
ervænnhópur og án efa misjafn-
lega á vegi staddur varðandi
húsnæðismál og efnahag. Fyrir þá
Að hinu leytinu finnst eldra fólki
visst öryggi í því að flytja í þetta
sérhannaða húsnæði þar sem
margvísleg þjónusta er til staðar,
fylgst með líðan þess og aðstoð
veitt ef þörf krefur.
Háhýsi Félags eldri borgara í
Reykjavík í Suður - Mjódd.
sem átt hafa hús eða íbúð skuldlitla
ætti að vera auðvelt að eignast íbúð
í húsum sem reist hafa verið fyrir
aldraða. Ekki er samt svo með alla.
Því er nauðsynlegt að finna
fjármögnunarleið þannig að hægt
sé að eignast hluta í íbúð,
misjafnlega stóran eftir því hvernig
fjárhagur hvers og eins er. Með því
móti mundu fjármunir þessa fólks
nýtast því sjálfu til að tryggja sér
húsnæði og öryggi. Fyrir þá sem
ekki hafa tök á eða vilja til að búa í
sjálfseignaríbúðum á efri árum er
vart um annað að ræða en
dvalarheimili. Slíkum stofnunum
hefur fjölgað mjög síðustu árin fyrir
tilstuðlan ýmissa félagasamtaka og
sveitarfélaga.
L0KA0RÐ
Hvort sem aldrað fólk býr í heima-
húsum, sérhönnuðum íbúðum eða
er á dvalarheimilum rekur að því
hjá mörgum að meiri umönnunar
og hjúkrunar er þörf. Á sumum
dvalarheimilanna eru hjúkrunar-
deildir en ekki öllum. Brýnasta
verkefnið í byggingarmálum fyrir
aldraða nú sem stendur er bygging
hjúkrunarheimila. I það verkefni
verður að ganga af fullri alvöru
næstu árin. ■
23