Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Qupperneq 34
þar sem kostur er á að fá fagmenn til
þeirrastarfa. Þaðeránægjulegfrarm
för, og þá starfsemi þyrfti að auka
verulega. Öll hreyfing er öldruðum
nauðsynleg, en flestir þurfa hvat-
ningu og oft og tíðum kennslu eða
leiðbeiningar.
Rétt er að taka fram, að fjöldi
vistrýma (rúma) í þessari grein er sá
fjöldi rúma, sem heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið hefur
gefið rekstrarheimildir fyrir. Þar með
er ekki sagt, að þau séu öll í notkun.
Því miður, því að nóg er þörfin.
A töflu 1 má sjá, að um 1.483 vist-
rými aldraðra eru í Suðurlands-
héraði. I þeim vistrýmum dvelst
fjöldi Reykvíkinga eða þeirra, sem
lögheimili eiga í Reykjavík. Má þar
nefna, að meiri hluti vistmanna í
Kumbaravogi við Stokkseyri (74
rúm), Asi/Asbyrgi í Hveragerði
(194rúm) ogBlesastöðumáSkeið-
um (12 rúm) kemur frá Reykjavík.
Ef litið er á vistrými - hj úkrunarrými
og þjónusturými'aldraðra í dvalar-
heimilum og sjúkrastofnunum í
Reykj avík og gerður samanburður á
tölum frá 1. j anúar 1981 og 1. j anúar
1991 kemur í ljós, að vistrýmum
hefur fjölgað um 264, þar af
hjúkrunarrýmum um 123 og
þjónusturýmum 141.
Tala íbúa í Reykjavík var hinn 1.
des. 1980 83.766 og l.des. 1990
97.569.
Miðað við fj ölgun á öldruðum Reyk-
víkingum er fjölgun á vistrýmum
þar engan veginn næg.
Margir hafa álitið, að ný dvalar-
heimili, sem tekin hafa verið í
notkun á undanförnum árum hafi
verið hrein viðbót við það sem fyrir
var. Því fer víðs fjarri. Eins og sjá
má á töflu 2 hefur orðið veruleg
fækkun á rúmafjölda hinna stóru
og fjölmennu heimila Grundar og
Hrafnistu. Þarhefurorðiðaðfækka
vistrýmum, einkum vegna aukinna
krafna frá vistmönnum sjálfum,
aðstandendum þeirra og starfsliði.
Þessi heimili bjuggu við afar mikil
þrengsli og gátu því ekki sinnt vist-
mönnum sínum sem skyldi. Kröfur
um aðbúnað allan í dvalarheimil-
um hafa aukist ár frá ári. Það er vel,
en það kostar aukna fjármuni.
Ef litið er til baka um tvo áratugi -
til 1. janúar 1971 - voru vistrými í
Grund 380 og í Hrafnistu 418,
samtals 798 rúm. 1. janúar 1991
voruþausamtals627. Þaðerfækkun
um 171 rúm og j afngildir rúmafj ölda
í Droplaugar stöðum og Skjóli
samanlagt.
I þessu stutta yfirliti hefi ég gert
vistrýmum aldraðra nokkur skil og
langar í lokin að gera smáútúrdúr.
Mér finnst illa komið fyrir hinu
góða og hljómfallega orði ELLI í
máli okkar Islendinga. Dvalar-
heimili, sem hefur þó ekki hlaupið
eftir tísku og óþarfa viðkvæmni í
orðavali, er Elli- og hjúkrunar-
heimilið Grund. Það heldur sínu
virðulega heiti. ■
32