Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 43

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 43
rökgreiningar á mannlegum þáttum sem húsið ber merki um auk tæknb legs og formfræðilegs frumleika. • Það væri því ekki úr vegi að rekja helstu hugmyndafræðileg atriði bak við gerð ráðhússins til að skilja þann langa og flókna veg er oftar en ekki liggur til hönnunar fullbúinna hluta. Eitt aðalsmerki byggingarinnar og það er helst greindi hana frá öðrum tillögum samkeppninnar er greining hennar í tvo hluta, annars vegar skrifstofulengju og hins vegar borg- arstjórnarhús jafnframt tjarnar- myndun á norðvesturhluta lóðar- innar. Þessi greining hússins í að- skilda hluta gerir auðveldara að skilja virkni þess og eykur birtuflæði um bygginguna þar eð ummálið eykst. Skrifstofubyggingin í suðri er síðan brotin upp í fjórar einingar til að fá nálgun við stærðarhlutföll húsa í nærliggjandi umhverfi og þá eink- um Tjarnargötu. Það er afar lýð- ræðislegt að starfsfólki og gestum hússins er gefið besta útsýnið til suðursyfirTjömina. Hinnipólitísku miðstöð valdsins, borgarstjórnar- byggingunni er fengin hlutlausari staðsetning. Skrifstofubyggingin er sveigð í boga og myndar sér- kennilega hrynjandi er horft er til vesturs, undir súlnagöngin að framanverðu og má segj a að þar sem víðar í byggingunni noti arkitekt- arnir aðferðir kvikmyndaleikstjóra til að afmarka sjónarhorn er hverfa og klippast eins og hillingar eða myndskeið í upplausn og skörun. Bogadregin göngubrúin heldur áfram ferð hringsins og ef hug- myndinni um óendanleika hrings- ins er haldið áfram í huganum má segja að skrifstofubyggingin séhluti að ferli radíus sem tengir saman höfn og tjörn og er það einkar við- eigandi þar sem hún markar með því það svæði er telja má upphaf byggðs bóls í Reykjavík, þ.e. Kvos- ina. Ráðhúsið dregur dám af samtíð sinni og óstöðugleika tungumálsins og menningarheimsins. Það semereitt í dag er annað á morgun og marg- ræðni augnabliksins og afstæður sannleikurríkjaíþessumnýjaheimi sem er oft svo undraflókinn, marg- þættur og ótryggur. Hinarfjölmörgu táknlíkingar frá nálægum og fj arlægum stöðum gefa byggingunni gildi sem hlutar sem þarfnast sífelldrar endurskoðunar. Ráðhúsið er ekki eitt valdsamlegt allegorískt tákn sem mönnum ber að virða fyrir sér á gamaldags hátt líkt og kon- ungshallir til forna heldur röð tákn- mynda og ljóðrænna launvísana brota sem ber að skoða og endur- skoða, raða og endurraða, en það er oft aðalsmerki listrænna hluta að þeir örva meðvitundina en njörva hana ekki niður til einsýni og undir- gefni. Byggingin er umflotin vatni sem er allsstaðar nálægt, úti sem inni, og aðskilin frá landi með brúm líkt og draumanökkvi úr eldgömlu Kjar- valsmálverki og ljóð Steins Steinars um tímann og vatnið líkt og holdgerist í beinagrind burðar- virkisins. Hönnuðirnir minnast á 41

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.