Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 57

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 57
til að veita almenningi aðgang að þessari algeru afslöppun og því er ekki að neita að vel tókst til. EINFALDUR EN ÞÓ MEÐ MIKIÐ NOTAGILDI Hægindastóllinn Chaise-Longue er hannaður eftir slagorði hönnuðarins því hann er hið fullkomna „tæki til að hvílast í”. Hann er hugvitsamleg blanda af tveim gullnum megin- markmiðum í hönnun, þ.e. að ná fram ýtrustu þægindum og eigin- leikum sem tryggja vandaða fjölda- framleiðslu. Stóllinn er byggður upp af einfaldri, frístandandi burðargrind sem stendur á gólfinu og bogadreginni grind sem lögð er ofan á hana og sessan sjálf er fest á. Auðveldlega er hægt að draga bogagrindina fram og aftur og finna þannig þægilegustu stellingu fyrir hvern einstakling og hverja stund. Höfuðpúðann má líka draga upp og niður til að vel fari um þann sem situr eða liggur í stólnum. Þegar hver og einn hefur fundið sína óskastellingu er ekkert annað að gera en að koma sér vel fyrir, því stóllinn er búinn þeim ótvíræða kosti að þyngd þess sem situr í honum er nægjanleg til að halda stellingunni óbreyttri. NÚTÍMALEG KLASSÍK Chaise-Longue var hannaður árið 1928 og öðlaðist ótrúlega fljótt vinsældir sem hann hefur haldið allt til þessa dags. Utlitið er klassískt og stóllinn hefur þann eiginleika að fara vel innan um flest önnur húsgögn hversu ólík sem þau eru. Hann er ekki fyrirferðarmeiri en gerist og gengur um hægindastóla, 160cm langurogum56cmbreiður, en vegna lögunar setunnar er hann þó nógu stór tíl að jafnvel hinir stærstu og þreknustu karlmenn geti látið fara vel um sig í honum. Vinsældir stólsins má þó örugglega frekar rekja til þægindanna en útlitsins, margir bakveikir og fótaveikir eigendur sem og stálhraustur almúginn hafa átt ótal sælustundir í honum þá röska sex áratugi sem hann hefur verið á markaðinum og svo verður örugglega áfram meðan enginn finnur upp nýjan hægindastól sem slær honum við. ■ Qrðið „antík” hefur ekki sömu þýðingu í allra eyrum. Það er ekki undarlegt pott oroið hafi ekki fasta merkingu í málinu, því jafnvel þeir sem þykj ast sérfróðir á þessu sviði eru ekki sammála um merkingu þess. HVAÐERANTÍK? Flestir leggja þann skilning í orðið antík, að þar sé um að ræða muni sem orðnir eru meira en aldargamlir og nógu verð- mætir og vandaðir til að vera enn eigulegir og jafnvel auka gildi sitt eftir því sem lengra líður. Verðmætamat er mismunandi hjá einstaklingum, sumir vilja að hluturinn eigi sér langa sögu, Hún er óneitanlega glæsileg gamla, enska klukkan. Talið er að hún hafi verið smíðuð árið 1910 og gangverkið í henni er enn í góðu lagi. Hér á landi voru slíkar klukkur nokkuð algengar í byrjun aldarinnar. sem helst er kunn. Aðrir vilja að einhver tilfinningatengsl séu milli hlutarins og þess sem á hann (t.d. ættargripir), og enn aðrir telur aðalverðmætin liggj a í sölu verði (fj árfestingu). Söfnunargildi hlutanna er líka stór þáttur í verðmæti þeirra sem antík. Hópur manna, þar með taldir margir sérfræðingar, telja að antík hafi ekkert með aldur að gera. Antík sé einfaldlega sá hlutur sem er klassískur, hætt er að framleiða og mun þótt síðar verði lenda í fyrrgreinda flokkinum. Flestir eru þó sammála um að hlutir sem hafi verið fjölda- framleiddir geti aldrei fallið undir antík.

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.