Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 72
Rigning í Regensburg. Forn virkismúr frá Rómarveldi.
samstarf um skipulag strand-
lengjunnar frá Orfirisey að Korpu.
Arangurinn kemur skýrast fram í
nýja aðalskipulaginu 1990 - 2010
þar sem hluti hafnarsvæða við
miðborgina er orðinn að miðbæj ar-
svæði, hafnarsvæði í Grafarvogi að
íbúðahverfi með smábátahöfn og
nýju athafna- oghafnarsvæði ætluð
framtíð í Eiðsvík. Ný áhrif í íbúða-
hverfum með meiri fjölbreytni í
uppbyggingu og útliti.
Innsýn í mörg athyglisverð ákvæði
í amerískri skipulagslöggjöf og
stjórnun landnotkunar (zoning).
T.d. ívilnanir og hvatar, til að ná
fram betra umhverfi.
Dæmi: Aukin nýting (fleiri hæðir)
ef bílar eru neðanjarðar eða innan-
húss. Aukin nýting ef hluti af lóð er
opinn almenningi sem garður, torg
eða yfirbyggt innrými o.fl.
Sérstaklega voru skoðaðar fram-
kvæmdir þar sem áhersla var lögð á
að endurlífga miðborgir og tengja
þær hafnarsvæðum, s.s. í Baltimore,
South Street Seaport í New York
og einnig Faneuil Hall í Boston og
fleira athyglisvert í þeirri borg. Þessi
atriði hafa haft áhrir' á umræðuna
um uppbyggingu og endurlífgun í
Kvosinni og miðbænum,þ.ám.
hugmyndir að glerbyggingum í
Austurstræti og/eða Vallarstræti
ásamt nýsamþykktum tilraunum
með glerþök, „regnhlífar” ,yfir gang-
stéttir á Laugavegi.
Frá USA-ferðinni er til skýrsla í
bókarformi ásamt myndefni, bæði
á pappír sem og skyggnur og video.
Ymis gögn er einnig að finna sem
hópurinn tók með heim. Haldinn
var kynningarfundur og sýning á
Kjarvalsstöðum þar sem allir þátt-
takendur tjáðu sig um það sem ferðin
gaf hverjum og einum. Sagt var frá
ferðinni í Arkitektúr og skipulag.
FERÐ SKIPULAGSNEFNDAR TIL MIÐ-
EVRÓPU 22. SEPT. TIL 3. OKT. 1991.
(Kjörtímabilið 1990 - 1994.) Ferð
þessi var undirbúin í samvinnu við
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur en
sendiráð viðkomandi ríkja og
ræðismenn aðstoðuðu við að koma
á tengslum við embættismenn í
stórborgunum þremur. Staðarvalið
tengdist umræðunni um framtíð
miðborgarinnar og eldri hverfa, frá-
gangi gatna og torga ásamt
skipulagsvinnu á framtíðarbyggðar-
svæðum. Um er að ræða elstu borgir
í Mið-Evrópu með aldagamla
borgamenningu og sögu.
Hér var að opnast að hluta til nýr
heimur sem hefur verið undir oki
alræðisvalds en er nú að taka á
vandamálunum á nýj an hátt. Þessar
borgir geyma perlur í húsagerðarlist
tengdar mörgum öldum og lista-
stefnum og einnig götu- og
torgmyndanir sem hafa orðið
fyrirmynd að uppbyggingu margra
miðborga.
Mikil endurbygging hefur farið fram
í þessum borgum sem hefur tekist
misjafnlega. I Vín eru nýlega byggð
70