Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 76
Búdapest. Séð frá Búda yfir á Pest.
spurnum svarað. Ingimundur
Sveinsson þakkaði fyrir hönd
hópsins á skínandi þýsku og sagði
nokkuð frá okkar háttum í
Reykjavík. Skipst var á gjöfum og
fengum við ýmis gögn um skipulags-
og menningarmál í Vín.
Eftir hádegi var stigið upp í hóp-
ferðabifreið og ekið í úthverfi
borgarinnar þar sem skoðuð voru
nokkur dæmi um nýja íbúðabyggð.
Alls staðar var lögð rík áhersla á
vandað og mannlegt umhverfi. I
einu hverfinu hafði verið sóttst eftir
fjölbreytileika í húsformum, sem
náðst hafði fram með því að ráða
fleiri en einn arkitekt til lausnar á
hverri þyrpingu fyrir sig. Utivistar-
svæði voru rífleg, snyrtilega útfærð
með gróðri ásamt leiksvæðum fyrir
ung börn. Bílastæði voru að mestu
leyti sameiginleg neðanjarðar, auk
nokkurra innbyggðra bílskúra. Lítið
var um stæði ofanjarðar.
Um kvöldið fór hópurinn í Ríkis-
óperuna, sem er hin fegursta bygg-
ing, og naut þess að sjá og heyra
óperuna La Bohéme eftir Giacomo
Puccini. La Bohéme var frumflutt í
Torino 1896 undir stjórn Toscan-
inis. Operuhúsið var vígt 25. maí
1869 en gereyðilagt í seinni heims-
styrjöldinni. Húsið varsíðanendur-
byggt og endurvígt 1955.
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER
VÍN
Dagurinn hófst með því að haldið
var til fundar við dr. Schober
forstjóra, „Wiener Bodenbereit-
stellungs- und Stadterneuerungs-
fonds”, þar sem okkur var kynnt
hvernig staðið er að endurupp-
byggingu gamalla húsa í borginni af
hálfu einstaklinga og bygginga-
verktaka með aðstoð og undir umsj á
stofnunar hans. Ekki varð okkur
fullkomlega ljóst hvernig stofnun
hans var rekin en um var að ræða
ráðgjöf og fjármögnun á endur-
nýjunarverkefnum í gömlum
hverfum, sérstaklega við að gera
gömlu hverfin íbúðarhæf miðað við
nútímakröfur. Fram kom að enn
eru til hverfi í Vín þar sem 40%
íbúða þurfa að notast við útikamra.
Ef leigjendur standa að viðgerðum
eða endurgerð íbúða hindra þeir að
eigandi fái leyfi til hækkunar leigu.
En standi eigendur að endurgerð
geta þeir hækkað leigu í hlutfalli
við kostnað. Stofnun dr. Schober
aðstoðar við miðlun þessara mála
og er ráðgj afiog að hluta til verktaki
og stjórnandi, að okkur skildist.
Síðan voru skoðuð nokkur dæmi og
rætt við byggingaverktaka á bygg-
ingarstað. A leiðinni bar ýmislegt
áhugavert fyrir augu, svo sem vel
útfærð umferðarmerki og athyglis-
verðar einfaldar útfærslur á
götuþrengingum. Frágangur yfir-
borðs gatna og gangstétta var til
fyrirmyndar. Athyglisvert var að sjá
74