Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Blaðsíða 81
Eisenstadt. Skipulagsnefnd og skipulagsstjóri við stærstu bjórnámu í heimi.
lausan og gersamlega úr samhengi
við umhverfið.
Um kl. 12.00 var lagt af stað til
Frankfurt og tók ferðin lengri tíma
en ráðgert hafði verið vegna mikillar
umferðarteppu á mótorveginum. I
bílnum var haldinn óformlegur
fundur og þar reifuð ýmis mál sem
nánar er fjallað um í fundargerð.
Eftir að búið var að koma sér fyrir á
hótelinu var ákveðið að fara að
borða í Saxenhausen-hverfinu sem
frægt er fyrir sérstæðan karakter og
tugi eða hundruð bjór- og matstaða
á litlu svæði.
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER
FRANKFURT■ KEFLAVÍK
Ekki var um að ræða neina
skipulagða dagskrá þennan síðasta
dag ferðarinnar, en lítill kjarni úr
hópnum undir leiðsögn Ingimundar
Sveinssonar fór í gönguferð um
miðbæjarkjarna þar sem liggja
hvoru tveggja megin árinnar Main
öll helstu listasöfn borgarinnar
ásamt ráðhúsi o.fl. Fengum við
nokkra nasasjón af hverfinu en
sérstaklega leituðum við uppi nýjar
safnbyggingar reistar á síðastliðnum
áratug. Söfn þar sem ekkert hefur
verið til sparað og hönnuð af
valinkunnu liði arkitekta.
Ahugavert var að sjá hversu arki-
tektar taka mismunandi á svona
verkefni, ýmist með sjálfstrausti og
vissum hroka eða auðmýkt og
tillitssemi yfirburðalistamanna við
umhverfið - og svo allt að ósjálf-
stæðri hermilist.
Það safh sem við gátum skoðað best
var þýska póstsafnið. Falleg og létt
bygging, skemmtilegt efnisval og
vel leystir sérhlutar. Innanhúss var
gott andrými, nánast kímni. I miðju
hjarta borgarinnar á svæði frá
dómkirkjunni að Römertorgi
(Ráðhústorgi) þar sem mikil spjöll
urðu í loftárásum bandamanna hefur
nú verið reist listamiðstöð, „Kunst-
halle skchirn”, tengd íbúðabyggð
og stórbyggingum sem mynda nýja
hlið að gamla ráðhústorginu.
Er hér nánast um uppbyggingu
borgarhluta að ræða sem hannaður
er sem ein heild með hliðsjón af
eldri byggð og hefð í íbúðarhúsum.
En í listamiðstöðinni má sjá samspil
framtíðarsýnar og tilvitnana í þekkt
eldri verk og stefnur. Þetta eru verk
sem þarf að skoða betur.
Við gengum einnig um fallega nýja
hengigöngubrú yfir ána Main.
SÖFNIN SEM SKOÐUÐ VORU
Safn fy rir nútímalist. Hans Hoilein (byggt
1987-91).
Gyðingasafnið. Ante Josip Kostelac
(byggt 1985-89).
Listasalur Schirn. Rangert, Jansen,
Scholz og Schultse (byggt 1983-85).
Listiðnaðar- og heimilisiðnaðarsafn.
Richard Meier (1982-85 og hluti 1991).
Þýska kvikmyndasafnið. Helge Bofinger
og Parners (1981-84).
Þýska arkitektúrsafnið. O.M. Ungers
(1981-84).
Þýska póstsafnið. Gúnther Behnisch og
Partn. (1984-90).
Stadel listagalleríið. Gustav Peichl (1988-
90).
Síðan var haldið af stað út á flugvöll
þar sem bílstjóri okkar frá Lux-
emburg var kvaddur og hans ágæti
bíll.
79