Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Page 93
tekin verða fyrir í A.R. 1994-2014.
Fyrir borg, sem vex jafnhratt og
Reykjavík, er mikilvægt, að aðal-
skipulagið sé í stöðugri endur-
skoðun. Til þess að það sé mögu-
legt, þarf að einfalda hið formlega
aðalskipulag og koma ítarefni í
fylgiskjöl.
Þetta er í fullu samræmi við þróun
í gerð aðalskipulagsáætlana í ná-
grannalöndum okkar. Þau tvö ár,
sem líða milli þess, að unnið er að
endurskoðun aðalskipulagsins,
verða notuð til rannsókna á helstu
þáttum, sem aðalskipulagið grund-
vallast á.
Mikilvægustu þættirnir sem vinna
þarf að fram að næstu endurskoðun
aðalskipulagsins eru umhverfis- og
umferðarmál. Dæmi um atriði sem
kanna þarf nánar og kortleggja er
Aimferðarhávaði á helstu götum
borgarinnar. A því sviði þarf að
móta stefnu og koma með tillögu til
úrbóta. Annað dæmi er geymsla og
ekki síður flutningar mengandi og
hættulegra efna um borgina.
I endurskoðuðu aðalskipulagi þarf
að kortleggja æskilegar leiðir með
slík efni t.d., bensín. Áður hefur
verið minnst á könnun á nýjum
kostum í almenningssamgöngum og
einnig þarf stöðugt að leita leiða til
að bæta núverandi almennings-
vagnakerfi. Að lokum þarf að skoða
raunhæfni ýmissa stórfram-
kvæmda í stofnbrautarkerfinu sem
hafa verið á aðalskipulagi, sumar í
áratugi, en ekki komið til fram-
kvæmda vegna ónógs fram-
kvæmdafjár frá ríki og borg. I því
sambandi þarf að gera umferðarspár
til styttri tíma en 20 ára, t.d. 5-10
ára til að undirbyggj a framkvæmda-
röð í uppbyggingu stofnbrautar-
kerfisins.
Meginatriðið er að kanna hvort
hægt er með skipulagsaðgerðum að
stytta akstursvegalengdir og draga
úr orkunotkun og mengun vegna
einkabílaumferðar.
Af þessari upptalningu má vera ljóst
hve mikilvægt það er að Aðalskipu-
lag Reykjavíkur sé í stöðugri
endurskoðun.
HELSTU HEIMILDIR:
Gaardmand, Arne, 1991:
Plan og Metode, Arkitektens forlag og
Planstyrelsen.
Hass. Klau, Carmen, 1988:
New Life for City Centres, Plann-
ing,transport and conservation in British
and German Cities. AngloGerman
foundation.
Hall, Thomas, 1991:
Planning and Urban Growth in Nordic
countries. Chapman & Hali.
Larsen, Flemming, 1992:
„Sporbunden Trafik som en mulighed i
den koliektive trafik”. Erindi á ráðstefnu
SATS um vegasamgöngur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Newman, Peter og Jeffery Kenworthy,
1991: Towards a more sustainable
Canberra, Murdoch University.
Newman, Peter og Kenworthy, Jeffery
1989: Cities and automobile depend-
ence: An International sourcebook.
Gover Technical.
Golffatnaður
fra
LACOSTE
UTIUF
SÍMI 91-812922
H
91
L