Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 10
10 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021 ,,Ég tek vaktir á sjúkrabílnum og hendist í útköll um fjöll og firnindi ef því er að skipta …“ Einstaklega fjölbreytt og ófyrirsjáanlegt starf Árið 1985 réðu þau Sigurgeir sig til starfa á Heilsugæslustöðinni í Vík og hefur það verið þeirra starfs- og lífsvettvangur síðan, eða í hart nær 40 ár. Vík er H1 -stöð samkvæmt gamalli skilgreiningu. Af fagfólki eru þar fastráðinn einn hjúkrunarfræðingur og einn læknir. Síðan eru ritari, ræstir í hlutastörfum og sjúkraflutningamenn á bakvöktum. Helga segir að stöðin sinni allri almennri heilsugæslustarfsemi sem snertir lífsferil íbúanna frá vöggu til grafar. Einnig sinnir stöðin þeim bráðatilvikum sem upp koma í héraðinu og aðliggjandi héruðum ef þörf krefur, vaktsíminn er því aldrei langt undan. Helga segist fara um héraðið í vitjanir, til að hitta nýfædd börn og fjölskyldur þeirra, eldra fólkið sem þarf þjónustu heim og svo hefur líknandi meðferð í heimahúsum verið þáttur í starfinu í gegnum tíðina. „Ég tek blóðprufur, gef lyf, er í heilsueflandi og almennri móttöku, sinni ungbarnavernd, hitti fólk í viðtölum, hef samvinnu við grunn- og leikskóla og einnig hjúkrunarheimilið. Bólusetningar gegn covid-19 og sýnatökur eru líka hluti af starfinu mínu um þessar mundir og það má segja að fjölbreytnin sé í raun óendanleg og ófyrirsjáanleg. Ég tek vaktir á sjúkrabílnum og hendist í útköll um fjöll og firnindi ef því er að skipta,“ segir Helga. Alltaf í hlutverki hjúkrunarfræðings En hverjir eru kostir og gallar þess að vinna í svona litlu samfélagi eins og í Mýrdalshreppi? „Þjónustusvæði stöðvarinnar spannar Mýrdalshrepp og nær aðeins út í nærliggjandi sveitir. Það eru margir kostir við að vinna í þessu dásamlega umhverfi. Hvítfyssandi öldur við svartan sandinn, græn fjöllin, hvítur jökullinn, fossar og fleira fallegt. Við höfum verið lánsöm og átt afar góð samskipti við íbúa héraðsins. Það er ekki hlaupið að því að við hjónin getum bæði komist í burtu með litlum fyrirvara og það hefur komið fyrir að það hafi verið verulega bagalegt. Aðgengi að ýmiss konar sérfræðiþjónustu hefur aukist hér en gæti verið betra,“ segir Helga og bætir við: „Mér finnst nálægðin við fólkið í héraðinu vera kostur frekar en galli og það er ekki oft sem mér hefur fundist hún erfið. Ég er Helga og ég er hjúkrunarfræðingur hvar sem ég kem og mér finnst vandræðalítið að skilja að vinnu og önnur samskipti í héraði.“ Það er óneitanlega svolítið sérstakt að hjúkrunar- fræðingur og læknir Mýrdalshrepps séu hjón og eyði öllum tímum saman, í vinnunni og á heimilinu. Ætli það sé flókið? „Nei, nei,“ svarar hún brosandi. „Það vita það allir sem hafa unnið með Sigurgeiri að það er einstaklega gott og eflandi að vinna með honum. Við þekkjumst orðið ansi vel og lesum hvort annað. Við höfum það eins og trén sem dafna, við stöndum þétt saman en þó ekki í skugga hvort annars. Ég hef notið þessarar teymisvinnu öll þessi ár. Við höfum líka alltaf verið einstaklega heppin með annað samstarfsfólk á stöðinni.“ Oft fjöldi útkalla á sólarhring yfir sumartímann Samfélagið í Mýrdalshreppi byggist fyrst og fremst á ferðaþjónustu og ferðamönnum. Það er því gríðarlegt álag á Helgu og Sigurgeiri þegar svæðið er allt fullt af ferðamönnum, sérstaklega yfir sumartímann. „Ferðaþjónustan er undirstöðuatvinnugrein á okkar svæði og margir vinsælustu ferðamannastaðir landsins eru hér. Þegar ferðamannastraumurinn var hér í algleymingi var rosalega mikið að gera hjá okkur gömlu hjónunum. Tugir þúsunda á svæðinu og stundum fjöldi útkalla á sólarhring, hvort sem var í sjúkraflutningum eða á stöðina. Svo kom covid og eins og hendi væri veifað hurfu ferðamennirnir og útköllum fækkaði Hér er verið að skíra León Inga, son Hörpu Elínar, dóttur Helgu og Sigurgeirs, sem hefur verið búsett í Chile síðastliðinn áratug. Presturinn er Haraldur M. Kristjánsson. Helga prjónaði skírnarkjólinn en barnabörnin hafa öll verið skírð í honum. Viðtal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.