Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 18

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 18
18 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021 Mikilvægt að viðra tilfinningar eftir erfiða atburði ,,Orðið defusing, eða viðrun eins og það er nefnt á íslensku, merkir það atferli að gera eitthvað skaðlaust áður en það getur valdið skaða. Í orðabókum er það meðal annars þýtt með þeim hætti að virðun er líkt við það að gera sprengju óvirka; að aftengja áður en sprengjan getur valdið skaða. Það er að segja, að þegar alvarlegir atburðir verða, til að mynda alvarleg slys eða veikindi, er nauðsynlegt fyrir starfsfólk deilda sem að málinu koma, að hafa tækifæri á því að koma saman og fara yfir reynslu sína. Að viðra tilfinningar sem fyrst eftir atburðin til að reyna að koma í veg fyrir að reynslan hafi langvarandi áhrif á líðan. Ef ekki er hægt að gera aðstæður skaðlausar, svo við höldum okkur við það orð, þá er að minnsta kosti reynt að minnka líkurnar á hugsanlegum skaða; draga úr einkennum, ” útskýrir Rósa. Í stuttu máli má segja að viðrun sé það þegar lítill hópur fólks kemur saman eftir erfiða reynslu, sem er það áhrifamikil að hætta er á að hún hafi áhrif á hæfni okkar til halda stjórn. Nauðsynlegt að viðrun eigi sér stað sem fyrst Viðrun, (defusing), er styttri og að vissu leiti einfaldari útgáfa af kerfisbundinni úrvinnslu, (debriefing). Rósa segir mikilvægt að viðrun sé unnin fyrr en þegar um úrvinnslu sé að ræða:,,Nauðsynlegt er að viðrun eigi sér stað sem fyrst eftir erfiðan atburð. Og vegna þess að viðrun á sér stað svo fljótt er ekki farið eins djúpt í tilfinningarnar eins og þegar úrvinnslu vinna fer í gang. Viðrun gerir fólki, sem lendir í erfiðum aðstæðum, fært að tala um reynsluna áður en það hefur í raun tíma til að Á heimasíðu Landspítala má finna upplýsingar um áfallahjálp og eru þar taldir upp sex þættir sem áfallahjálp samanstendur af. Þessir þættir eru sálræn skyndihjálp, upplýsingar og fræðsla, viðrun, úrvinnsla, virkjun stuðningskerfis fyrir þolendur áfalla og að lokum mat á áhættuþáttum og eftirfylgd. Við ætlum að staldra við þriðja þáttinn; VIÐRUN, og fengum Rósu Kristjánsdóttur, deildarstjóra sálgæslu djákna og presta á Landspítala, til að fræða okkur. Texti og mynd: Sigríður Elín Viðrun

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.