Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 23
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 23
,,Reynslan hefur sýnt sig að handleiðsla skiptir máli
fyrir starfsfólk til að takast á krefjandi verkefni og
koma í veg fyrir kulnun í starfi.“
fyrir að skoða og vill tala um. Ég sem handleiðari
hlusta og kem síðan með endurgjöf, einhverjar
hugmyndir, einhver verkfæri inn í samtalið, sem þá
vonandi nýtist viðkomandi handleiðsluþega. Það
sem handleiðsla felur í sér er að þú ert alltaf að
skoða sjálfsímyndina þína. Þú ert að skoða hvaðan
þú kemur og skoða hliðstæð ferli, sem eiga sér oft
orsakir og rætur í fortíðinni, og eru að keyra einhver
viðbrögð sem þú ert að sýna í dag. Flestir sem koma
til mín eru í krefjandi starfi hvort sem það tengist
stjórnun starfsmanna eða umönnun skjólstæðinga
og oft í yfirþyrmandi, streituvekjandi aðstæðum.
Þannig er fókusinn oft til að byrja með, eins og í
áfallafræðunum í dag, á að draga sem mest úr spennu
og skoða hvar þolmörkin þín liggja. Þú byrjar á að
kortleggja, vinna úr upplýsingum, tengja og setja á
rétta staði og færa svo út kvíarnar. Handleiðslan getur
þannig verið vettvangur til að hjálpa fólki að komast
aftur inn í þolmörkin sín og til grundvallar liggur
efling á sjálfsmeðvitund, sjálfstrú og styrkleikum.
Oftast er handleiðslan að fókusera á vinnusvæðið
þitt eða vinnusjálfið en óhjákvæmilega skarast þetta
oft mikið við einkasjálfið, það sem fólk er að upplifa
persónulega í sínu einkalífi. Í handleiðslu ertu að nota
þekkinguna þína. Þú ert staddur einhvers staðar og
ert með einhverjar pælingar og þú færð tækifæri til að
víkka út það sem þú ert að hugsa um. Auðvitað getur
það alveg eins verið eitthvað jákvætt frekar heldur en
að það sé alltaf eitthvað að. Þú þarft að vera tilbúinn
til að fara inn á við, að skoða sjálfan þig og stundum
er fólk tilbúnara til þess ef það er í krísu eða finnur
eitthvað trufla daglegt líf. Þá er fólk oft tilbúnari að
fara meira inn á við og fá aðstoð við að leysa úr því
sem það er að takast á við,“ segir Unnur.
Hún bætir við að þegar hún byrjaði í handleiðslu-
náminu hafi verið gerður greinarmunur á samtals-
meðferð og handleiðslu og segir að margt sé klárlega
sameiginlegt. ,,Það sem er mikilvægt er að þú hafir
viðeigandi hugmyndafræði, þekkingu og þjálfun og
vitir á hvaða svæði þú ert að vinna með viðkomandi
sem handleiðari eða meðferðaraðili.“
Hvaða ástæðu þarf maður að hafa til að sækja um að fara í handleiðslu?
,,Ástæðan getur til dæmis verið sú að það er eitthvað sem truflar þig, þú vilt skoða
sjálfan þig aðeins betur og fá tækifæri til þess að fá nýja sýn, eða þú vilt kryfja
eitthvað til mergjar, og fá tækifæri til að læra meira. Handleiðsla getur líka verið
tækifæri til að efla styrkleika, fá staðfestingu á því að þú ert á réttri leið.“
Hvert er hlutverk handleiðara?
,,Ég myndi segja að hlutverk handleiðara sé að mynda traust og skapa vettvang til
þess að sá sem sækir handleiðsluna geti komið með sín viðfangsefni inn í samtal.
þú ert að bjóða viðkomandi velkominn og þetta er alltaf samvinna. Fólk þarf að
upplifa að þú hafir einlægan áhuga á því að verða að liði og að þú hafir áhuga á
því sem viðkomandi er að segja. Bæði það sem er truflandi og viðkomandi vill
skoða hjá sjálfum sér, eða í þeim verkefnum sem viðkomandi er að sinna. Þetta
er þematengt. Þú kemur ekki í handleiðslu þar sem handleiðari segi þér um hvað
þú átt að tala. Þú sem handleiðsluþegi verður að koma með það. Handleiðari og
handleiðsluþegi kynnast í fyrsta tímanum og ef grundvöllur næst fyrir samvinnu
koma fram aðalatriðin sem viðkomandi vill ræða í handleiðslunni og svo þróast
það í samtalinu. Handleiðsla er vettvangur til að heyra sjálfan þig tala um það sem
skiptir máli fyrir þig; hafa vetttvang til að ræða það og fá endurgjöf á umræðuefnið
sem skiptir þig máli. Þú getur svo fengið hugmyndir, leiðbeiningar og tilvísanir í
einhvers konar lausnir sem þú hefur áhuga á að samþykkja eða vísa frá. Það er
bara opið. Handleiðsla á að vera styðjandi og öruggt svæði fyrir þetta samtal.“
Hverjir þurfa á handleiðslu að halda?
,,Flestir geta nýtt sér handleiðslu. Alls staðar í starfi, til dæmis innan spítala
þar sem er mikið álag, miklar kröfur og flókin vandamál og verkefni sem fólk
er að glíma við, og þarf stuðning með. Bæði í tengslum við veikindi sjúklinga
en líka varðandi samskipti innan fagstétta, teyma og almennt í starfi. Ég er til
dæmis oft að handleiða hjúkrunarfræðinga sem eru að byrja í starfi á mínum
vinnustað (BUGL). Við erum oft með flókin og þung mál og oft verður erfitt.
Þá er handleiðsla vettvangur til að losa spennu, sortera sjálfan sig og finna
út úr ýmsum málum. En nálgunin er ólík eftir því hvort þú ert að handleiða
nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga, sem eru að byrja í sínu starfi, þar sem fókusinn
er meira á fagímyndina, eða hvort þú ert að handleiða einhvern sem er með
mikla fagþekkingu og áralanga reynslu. Þetta er fjölbreytt og handleiðsla getur
bæði verið fyrir einstaklinga og hópa. Við höfum til dæmis lengi verið með
vikulega hóphandleiðslu í Fjölskyldumeðferðarteymi BUGL. Einnig hefur verið
handleiðsla fyrir teymi spítalans á hinum ýmsu deildum. Á BUGL hafa einnig verið
að þróast, síðustu 15 árin, á landsvísu samráðsteymi í heimabyggð sem eru innan
heilsugæslu, félagsþjónustu, barnaverndar og skóla. Þar má líka segja að fagfólk
okkar sé með ákveðna handleiðslu; á vinnubrögð, á mál og fleira.“
Handleiðsla