Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 31

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 31
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 31 á að fara í köld ker í sundlaugum, það er krafturinn, orkan og „mýktin“ sem heillar mig við sjósundið, auk þess er þetta líka svo góð slökunarstund með góðum konum. Tekur það langan tíma að venja líkamann (og hugann) við að synda í köldum sjó? Mér finnst alltaf dálítið erfitt að fara úti í fyrst. Sumar okkar taka öndunaræfingar og vilja ekki láta tala við sig á meðan þær eru að einbeita sér. Aðrar skella sér út í strax, með krafti. Ég þarf alltaf að telja niður, og ef það er sólskin horfi ég í áttina að sólinni og tel niður áður en ég læt vaða. Ég hef líka tekið eftir því að ef maður er undir miklu álagi, og þá sérstaklega andlegu álagi, er erfiðara að fara úti í. Ef maður er illa hvíldur er líka mjög erfitt að vera úti í köldum sjónum en maður er samt alltaf fullur af orku þegar maður kemur upp úr. Hvað hefur sjósund umfram hefðbundna líkamsrækt? Mér finnst ekki hægt að bera þetta saman þar sem þetta er ekki beint líkamsrækt, sjósund er meiri hugrækt en líkamsrækt. Hvaða árstími er bestur til að byrja í sjósundi? Ég tel best að byrja á vorin, í maí til dæmis. Hittist þið allt árið um kring og þá líka í frosti og snjó? Já, við höfum gert það, alltaf á mánudögum klukkan rúmlega fjögur og allir áhugasamir hjúkrunarfræðingar eru velkomnir að slást í hópinn með okkur. Sjósund

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.