Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 45
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 45 Hvað varð til þess að þú ákvaðst að sækja um nám í hjúkrunarfræði á sínum tíma? ,,Þegar ég var í 10.bekk var boðið upp á starfskynningu og ég valdi að fara á sjúkrahúsið á Ísafirði og var þar í tvo daga. Mér fannst spítalaumhverfið mjög spennandi og gaman að vinna með skjólstæðingunum. Ég valdi því að fara í sjúkraliðanám sem ég kláraði 19 ára gömul árið 2006. Í framhaldinu fór ég að vinna á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík en mér fannst ég samt hvergi nærri búin með mína menntagöngu svo það lá beinast við að hefja nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri sem ég kláraði árið 2012.“ Hvernig fáum við fleiri karlmenn í hjúkrunarfræði? ,,Ég held að áframhaldandi fræðsla um starfið og fjölbreytileikann sem það hefur upp á að bjóða muni skila sér á endanum. Því miður er hjúkrunarstarfið oft of mikil tölvuvinna og skráning, að mínu mati. Þótt það sé mikilvægt þá tel ég að meiri „hands on“ hjúkrun og samskipti við skjólstæðingana myndi auka áhuga á starfinu. Auk þess tel ég starf hjúkrunarfræðinga ekki metið að verðleikum með tilliti til launa, þegar launin verða betri munum við sjá fleiri karlmenn í okkar stétt.“ Hver var aðdragandinn að því að þú fórst í sjúkraflutningar? ,,Þegar ég starfaði á Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík frá árinu 2007 til 2018 var ég fyrst beðin um að prófa að taka nokkrar vaktir á sjúkrabíl og það má segja að ég hafi strax fengið brennandi áhuga. Ég kláraði grunnmenntun í sjúkraflutningum og starfaði á sjúkrabíl í hlutastarfi með vaktavinnu á sjúkrahúsinu. Svo langaði mig í frekara nám en fann ekkert sem hentaði mér í sérhæfingu í hjúkrun á þeim tíma. Áhugi minn á utanspítalaþjónustu var hvati til frekari menntunar á því sviði og því fór ég í bráðatækninám, í Massachusetts í Bandaríkjunum, sem ég kláraði árið 2018. Hefur þú upplifað fordóma í starfi vegna kyns þíns? Já, pottþétt en ég get ekki nefnt eitthvað sérstakt dæmi sem situr í mér. Það hefur orðið mikil fjölgun á konum í sjúkraflutningum og dregið verulega úr fordómum að mínu mati. Mér finnst besta að vinna í blönduðum hópi og mikilvægt að ekki sé verið að kyngreina einstaklinga heldur velja frekar þann sem er hæfastur hverju sinni. Það má alltaf gera betur samt og við sjáum vonandi fleiri konur í stjórnunarstöðum innan sjúkraflutninga í framtíðinni enda margar öflugar.“ Hvernig finnst þér hjúkrunarfræðimenntunin nýtast í sjúkraflutningum? ,,Ég myndi segja að hjúkrunarfræðimenntun og sjúkraflutningar væru eins og gin og tonic. Þetta eru náskyldar greinar, þar sem hjúkrunarfræði veitir djúpa og góða þekkingu á mjög breiðu sviði, svo fer maður grynnra í ótal marga hluti á sviði bráðaþjónustu og lærir að vinna mjög markvisst eftir vinnuferlum í sjúkraflutningum. Þetta tvennt saman skilar öflugri starfsmanni í báðum starfsgreinum. Að vera hjúkrunarfræðingur í grunninn hefur nýst mér afar vel í starfi á sjúkrabíl; þekking og reynsla af störfum á bráðamóttöku og úti á landi er sérstaklega dýrmæt. Ég tel að þetta tvennt fari sérstaklega vel saman á landsbyggðinni þar sem flestir sjúkraflutningarmenn eru hlutastarfandi, þá er nauðsynlegt að halda sér vel við og það getur maður gert í störfum inn á spítala. Þó svo flutningar séu færri á landsbyggðinni þá veikist fólk þar og slasast alveg jafn alvarlega, flutningar eru lengri og ekki fullbúin bráðadeild í næsta nágrenni. Í þannig aðstæðum reynir oft mikið á og þá getur reynsla og menntun skipt máli.“ Langar þig að læra meira og þá hvað? ,,Held mig langi alltaf að læra eitthvað meira. Nú þegar maður er orðin sjúkraliði, hjúkrunarfræðingur og bráðatæknir er þá ekki bara læknisfræði næst? Viðtal

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.