Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 46

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 46
46 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021 Nei, veistu, þessi menntun sem ég hef opnar marga möguleika og ég gæti bætt við mig sérhæfingu; bæði sem hjúkrunarfræðingur og bráðatæknir. Mörg svið eru mjög spennandi en núna vil ég fyrst og fremst viðhalda þeirri færni og getu sem ég hef en ég stefni alltaf hærra. Seinna á starfsævinni gæti ég hugsað mér að sinna kennslu og einnig hef ég áhuga á rannóknarvinnu sem tengist utanspítalaþjónustu á Íslandi, það er lítið um slíkt en gæti svo sannarlega nýst til að bæta þjónustuna.“ Í hverju felast mestu áskoranirnar í starfi þínu sem sjúkraflutningamaður? ,,Þær geta heldur betur verið fjölbreyttar og krefjandi, enda enginn dagur eins í sjúkraflutningum. Við sinnum margvíslegum verkefnum en auðvitað erum við fyrst og fremst boðuð út til að sinna veikum og slösuðum. Skjólstæðingar okkar eru á öllum aldri og ekkert tilfelli er eins. Umhverfið getur líka verið áskorun; alls konar aðstæður á sjó og landi. Það getur verið einn skjólstæðingur, það getur líka verið hópslys. Oft á tíðum er fólk að upplifa sínar verstu stundir þegar við komum á staðinn og því fylgir oft mikil geðshræring, aðstandendur eru jafnvel líka á staðnum og þurfa utanumhald. Þótt við reynum að vera sem best undirbúin að öllu leiti þá er það ekki alltaf nóg, erfið útköll eru stór áskorun þar sem getur reynt verulega á andlegu hlið okkar sjúkraflutningamanna. Það er mjög misjafnt hvað hreyfir við fólki í þessu starfi og þá er félagastuðningur og rétt úrvinnsla áfalla mikilvægur þáttur.“ Hvað er það besta við starfið? ,,Það besta er þegar allt gengur upp; þegar við komumst fljótt og örugglega á staðinn og náum að skila skjólstæðingi okkar í betra ástandi á sjúkrahús til frekari meðferðar. Maður upplifir líka mikið þakklæti frá skjólstæðingum og aðstandendum sem er alltaf góð tilfinning. Góðir samstarfsfélagar og starfsandi er líka lykilatriði og gerir góðan dag enn betri.“ Hvað gerið þið vinnufélagarnir til að efla liðsandann? ,,Á Selfossi, þar sem ég starfa, er mjög öflugt og skemmtilegt lið í sjúkraflutningum. Þeir sem eru á vakt saman eyða óhjákvæmilega meiri tíma saman og þá er nauðsynlegt að það sé gott samstarf og góður andi til að allt gangi upp. Vaktirnar fara oft í líkamsrækt saman, borða og vinna föst verk saman. Svo eru haldnar verklegar æfingar og fræðslur þegar tækifæri gefst til. Við höfum einnig gert okkur glaðan dag, utan vinnutíma, með því að fara út að borða saman, í leikhús eða bíó. Árshátíðir, jólahlaðborð, ráðstefnur og þess háttar kemur vonandi sterkt inn aftur eftir skrítna tíma.“ Að lokum; Hvar sérðu sjálfan þig eftir tíu ár? ,,Eftir tíu ár reikna ég fastlega með að vera áfram starfandi í heilbrigðiskerfinu. Hver veit nema sjúkraflutningar verði þá orðið eitt af sérsviðum innan hjúkrunar. Draumurinn væri að flétta þessar starfsgreinar meira saman og geta verið að hluta til starfandi á sjúkrabíl og inn á spítala að hluta, eins og er gert í löndum víða í kringum okkur. Eftir tíu ár verða svo vonandi sjúkraþyrlur á sveimi, góð rafræn sjúkraskráning, uppfærðir vinnuferlar og hágæða utanspítalaþjónusta hér á landi. Á sumum sviðum erum við en þá í torfkofum miða við önnur lönd. Það má allavega segja að það séu ótal spennandi möguleikar í boði með þessa menntun sem ég hef og ég ætla að klárlega að nýta mér það í framtíðinni.“ „Mér finnst besta að vinna í blönduðum hópi og mikilvægt að ekki sé verið að kyngreina einstaklinga heldur velja frekar þann sem er hæfastur hverju sinni.“ Viðtal

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.