Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 59

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 59
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 59 Laun eru alltaf til umræðu þegar kemur að hjúkrunar- fræðingum og umönnunarstéttum almennt hjá ríkinu sem og álag og kulnun í starfi. Sandra B. Franks, stjórnarmaður í BSRB og formaður sjúkraliðafélags Íslands, kemst svo að orði: Vandi spítalans á undanförnum árum hefur ekki síst verið skortur á heilbrigðisstarfsfólki, sér í lagi sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum. Aukið álag og launaskerðingar verða ekki til að bæta þann vanda. Eðlilegra væri að leita allra leiða til að draga úr álagi og bæta kjörin til að fjölga í þessum mikilvægu fagstéttum (Sjúkraliðafélag Íslands, 2019). Það er áhyggjuefni hve mikið brottfall er í hópi starfandi hjúkrunarfræðinga og hve margir horfa til annarra starfa utan heilbrigðiskerfisins (Cheval o.fl., 2019). Nauðsynlegt er að gera vinnuumhverfið meira heillandi, draga úr álagi í starfi og leita markvisst uppi þá þætti sem skapa óánægju til þess að geta bætt úr þeim. Mannauðurinn er mikilvægur og ef stofnanir missa út úr kerfinu fólk með mikla reynslu tekur bæði tíma og kostar peninga að fjárfesta í nýjum starfsmönnum. Margar einingar hafa síðustu ár glímt við mönnunarvanda og nú eftir 1. maí, þegar stytting vinnuvikunnar tekur gildi, má vænta þess að enn meira gap komi til með að myndast sem erfitt verður að fylla. Er það mat stjórnenda að erfitt verði að ráða fólk þar sem umsóknir undanfarin misseri hafa oft og tíðum verið fáar og jafnvel engar. Á 16 rúmadeild á Landspítalanum er staðan ekki vænleg. Fullmannað er 16,1 stöðugildi en er í dag mönnun í 12,1 stöðugildi. Mætti því strax í dag ráða inn 4 hjúkrunarfræðinga í 100% starf. Svipaða sögu er að segja af fleiri deildum innan Landspítalans og heilbrigðisstofnunum á landinu (Gerður Beta Jóhannsdóttir, munnleg heimild, 28. apríl 2021). Stjórnvöld verða að stuðla að því að heilbrigðisstofnanir landsins séu samkeppnishæfar þegar horft er til starfskrafta hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta. Þetta er stórt og ærið verkefni. Starfshópur, sem heilbrigðisráðherra skipaði, hefur skilað tillögum um betri menntun og mönnun heilbrigðisstétta sem mikilvægt er að fara vel yfir til þess að stuðla að vel mannaðri heilbrigðisþjónustu (Heilbrigðisráðuneytið, 2020a). Heilbrigðisáætlun stjórnvalda er sett fram sem leiðarvísir í átt að bættu heilbrigðiskerfi Íslendinga. Ábyrgðin um faglega mönnun innan heilbrigðiskerfisins liggur hjá stjórnendum stofnana, en stjórnvöld bera ábyrgð á að háskólar landsins séu í stakk búnir og hafi nægilegt bolmagn til að útskrifa þann fjölda heilbrigðisstarfsmanna sem samfélagið þarfnast. Eftir nokkurra ára bið eftir aðgerðum af hendi stjórnvalda varð úr faghópur til að setja saman áætlun og tillögur um hvernig megi fjölga útskrifuðum hjúkrunarfræðingum. Þar er gert ráð fyrir fjölgun nemanda næstu árin, samhliða auknu fjármagni til háskólanna. Geta þeir því nýtt fjármagnið til að styrkja innviði og bæta í kennslu innan sem utan skóla. Námsvettvangur hjúkrunarfræðinga er um allt land á hinum ýmsu stofnunum. Staðreyndin er þessi, ekki er nægilegt framboð af hjúkrunarfræðingum. Starfsálag á þá er mikið og vinna þeir oft umfram vinnuskyldu sína. Þetta eykur hættu á skertri starfsánægju, kulnun og verri þjónustu. Ef marka má rannsóknir er þessi vandi ekki á undanhaldi. Aukinn fjöldi sjúklinga, sem hver hjúkrunarfræðingur þarf að sinna, veldur því að afdrif sjúklinga eru ekki eins góð, alvarleg atvik og dánartíðni þeirra vegna legu á sjúkrahúsi hafa aukist. Því eru hjúkrunarfræðingar lykilstarfsmenn þegar horft er til öryggis sjúklinga. Eins og staðan er í dag er heilbrigðiskerfið komið að þolmörkum hvað þetta varðar og með auknum fjölda alvarlegra atvika, hjúkrunarfræðinga sem telja sig óörugga og hafa ekki undan að sinna starfi sínu eins og þeim þykir boðlegt er erfitt að segja að öryggi á íslenskum heilbrigðisstofnunum sé tryggt. Þeir sem starfa á gólfinu gera allt sem þeir geta til að ná því besta fram í viðvarandi vítahring manneklunnar. Núverandi ástand eykur hættu á alvarlegum mistökum. Áhugavert verður að sjá hvort það næst að framfylgja heilbrigðisstefnunni sem gildir til ársins 2030, þar sem ábyrgð er lögð á lykilstarfsmenn innan heilbrigðiskerfisins. Einnig þarf að hlúa að starfsfólki þegar miklar breytingar eiga sér stað eins og heilbrigðisáætlunin gerir ráð fyrir á komandi árum. Miklar breytingar urðu á vinnutíma með styttingu vinnuvikunnar nú í upphafi árs 2021 og verður ærið verkefni fyrir stjórendur að að tryggja viðunandi mönnun miðað við nýjar forsendur. Skortur á viðmiðum og mælikvörðum varðandi lágmarksmönnun eða viðunandi mönnun gerir það að verkum að verkefnið að bæta mönnun verður heldur óáþreifanlegt og fljótandi. Það stendur hvergi í lögum eða reglum hversu mikið er nóg eða hvaða atriði séu höfð til hliðsjónar við það mat. Við búum við þann veruleika að það er skortur á hjúkrunarf- ræðingum. Á meðan svo er þurfum við ef til vill að endurhugsa starfsumhverfi þeirra samhliða breyttu vinnufyrirkomulagi og nýrri tækni. Góð þverfagleg samvinna milli fagstétta er mikilvæg því hún eykur árangur og starfsánægju. Skortur á starfandi hjúkrunarfræðingum eykur þörfina á að nýta réttu starfsmennina á réttum stað þannig að fagleg nálgun verði sem best og sjúklingar fái bestu mögulegu umönnun. Það er engum hjúkrað ef enginn hjúkrar. LOKAORÐ Fræðigrein
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.