Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 75

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 75
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 75 Sálræn áföll og heilsufarslegar afleiðingar Fæstir komast í gegnum lífið án áfalla og talið er að um 70% fólks verði fyrir að minnsta kosti einu alvarlegu áfalli á lífsleiðinni (Kessler o.fl., 2017). Flestir sem verða fyrir áföllum finna fyrir andlegri vanlíðan sem lagast oftast með tímanum. Verði einkenni viðvarandi í marga mánuði eða ár getur viðkomandi þróað með sér áfallastreituröskun (e. Post Traumatic Stress Disorder, PTSD) (World Health Organization (WHO), 2019) sem gerist í um 8% tilfella (Kessler o.fl., 2017). Helstu einkenni áfallastreituröskunar eru að endurupplifa atburðinn ítrekað, svefntruflanir, martraðir, sektarkennd, sjálfsásakanir, reiði, að forðast það sem minnir á atburðinn, tilhneiging til að einangra sig og kvíði (WHO, 2019). Áföll á unga aldri og endurtekin áföll geta aukið líkur á áfallastreituröskun (Kessler o.fl., 2017). Áföll af mannavöldum, eins og nauðgun, ofbeldi og einelti, geta enn frekar aukið þá hættu (Wamser-Nanney og Vandenberg, 2013). Viðbrögð fólks við áföllum eru einstaklingsbundin og eru ýmsir þættir taldir hafa áhrif þar á, svo sem persónugerð, erfðir, umhverfisþættir, aldur og fjöldi áfalla (Hornor, 2015; Kessler o.fl., 2017). Streituvaldandi atburðir og langtímastreita geta haft djúpstæð áhrif á ónæmisviðbrögð líkamans og þannig leitt til heilsubrests og skertra lífsgæða. Bólgur eiga þar stóran hlut að máli því rannsóknir sýna að áfallastreituröskun ásamt kvíða og þunglyndi geta aukið á bólgumyndun í líkamanum sem aftur eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, alzheimer- sjúkdómi, sykursýki af gerð 2, liðagigt og húðsjúkdómum eins og sóra (Hagström o.fl., 2018; Yan, 2016). Hafi einstaklingur orðið fyrir áföllum í æsku er áhættan enn meiri (Danese og Lewis, 2017). Einnig er aukin hætta á að fólk með áfallastreituröskun reyki og misnoti vímuefni og slík hegðun getur síðan ýtt undir hættuna á að fá aðra sjúkdóma (Bryan, 2019). Margir langvinnir sjúkdómar eru að uppruna bólgusjúkdómar og þróast á mörgum árum, s.s. sjálfsónæmissjúkdómar, iktsýki og hjarta- og æðasjúkdómar. Það gerir þá sem orðið hafa fyrir sálrænum áföllum mun berskjaldaðri fyrir slíkum sjúkdómum (Yan, 2016). Niðurstöður íslenskrar fyrirbærafræðilegrar rannsóknar sýna, að fólk með iktsýki telur mikla streitu vegna áfalla, eins og hjónabandserfiðleika, álags í vinnu og niðurbrjótandi samskipta, hafa leyst iktsýkina úr læðingi (Sigríður Jónsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir, 2008). Sálræn áföll af völdum vanrækslu í æsku og líkamlegs eða andlegs ofbeldis sem og kynferðis- ofbeldis geta valdið tilfinningalegri vanlíðan og sjúkdómum á borð við kvíða, þunglyndi, fælni, áfallastreituröskun og andlegri örmögnun. Einstaklingarnir kljást við erfiðar tilfinningar á borð við skömm, reiði og tilfinningu um að vera einskis virði. Auk þess getur slíkt ofbeldi haft í för með sér ýmis líkamleg einkenni, svo sem magabólgur, mígreni, offitu, verki, gigt og fleiri stoðkerfisvandamál (Sigríður Hrönn Bjarnadóttir o.fl., 2014). Þeir sem verða fyrir áföllum á barnsaldri eiga einnig frekar við skapgerðarbresti að stríða á fullorðinsárum (Stinson o.fl., 2016; Wamser-Nanney og Vandenberg, 2013). Rannsókn Hagenaars og samstarfsmanna (2011) á því hvort fjöldi áfalla skipti máli eða það hvort áfall átti sér stað í æsku eða á fullorðinsárum sýnir að einstaklingar geta þróað með sér þunglyndi og aðra andlega kvilla óháð fjölda áfalla og aldurs við áfallið. Þeir sem höfðu orðið fyrir mörgum áföllum fundu frekar fyrir sektarkennd, skömm, reiði, einangrun og viðkvæmni en þeir sem höfðu orðið fyrir einu áfalli. Eins beindist reiði þeirra sem höfðu orðið fyrir mörgum INNGANGUR „Þetta breytti lífi mínu“ Reynsla fólks af dáleiðslumeðferð við afleiðingum sálrænna áfalla Ritrýnd grein | Scientific paper Höfundar MARÍA ALBÍNA TRYGGVADÓTTIR Verkmenntaskólinn á Akureyri SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR Háskólinn á Akureyri ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR Háskólinn á Akureyri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.