Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 25
1. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 25 stundir í lífi fjölskyldu og það að vera til staðar er það mikilvægasta í báðum tilfellum, útskýrir Dóra hugsi. En hvaða áskoranir reyndust þér erfiðastar? „Þegar maður sem hjúkrunarfræðingur upplifir að maður sé ekki sáttur við þá meðferð eða nálgun sem beitt er, að hægt væri að gera betur. Þá á ég til dæmis við varðandi einkennameðferð sjúklings og samtal við sjúkling og fjölskyldu hans. Það eru mjög margar áskoranir, ósáttar fjölskyldur og ósætti innan fjölskyldna skjólstæðings. Einnig er gífurlega erfitt að horfa upp á það þegar sjúklingar eru með mikil og erfið einkenni s.s. verki, ógleði eða kvíða, sérstaklega ef sjúklingurinn afþakkar lyf og aðra aðstoð. Í dag er hægt að verkjastilla sjúklinga betur en áður, en það getur líka verið áskorun að fá sjúklinga til að samþykkja verkjameðferð. Sjúklingar sem eru í afneitun varðandi hlutskipti sitt og glíma við vanlíðan er erfitt að horfa upp á.“ Dóra segir að þegar krabbameinssjúklingar nálgist lokastig sjúkdómsins verði þeir oft sljóir, sofi mikið og tjái sig minna. Þess vegna finnst henni svo mikilvægt að taka „samtalið“ um leið og sjúklingur greinist með ólæknandi krabbamein. „Þá getur sjúklingur fengið tækifæri til að tjá sig, hvað hann vill gera við tímann sem er eftir, einnig varðandi meðferðarúrræði og annað sem skiptir hann máli. Ættingjar geta þá sömuleiðis undirbúið sig og notað tímann með ástvininum.“ Dóra svarar aðspurð að hún myndi frekar vilja vita ef hún væri deyjandi en að deyja skyndidauða. „Þegar ég var ung hefði ég valið skyndidauða en í dag myndi ég vilja vita það og geta undirbúið mig og fjölskylduna. Ræða hlutina áður en ég fer. Ég held að þegar fólk er bráðkvatt sé sorgarferlið oft erfiðara, fólk hefur ekki tíma til að kveðja og tækifæri til að gera upp hluti sem eru óuppgerðir. Auk þess fá aðstandendur oft minni stuðning þegar ástvinur er bráðkvaddur. Sorgarsamtök eru mikilvæg í þessu samhengi því að sorgarúrvinnsla skiptir svo gríðarlega miklu máli fyrir líðan og heilsu. Þar langar mig að nefna Sorgarmiðstöðina, sem sinnir fræðslu og ráðgjöf til syrgjenda og þeirra sem vinna að velferð syrgjenda. Það er oft gott að hitta fólk sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu. Ég sá gjarnan á setustofunni á líknardeildinni að ættingjar sjúklinganna tengdust og fóru að spjalla. Þeir sýndu hver öðrum umhyggju, enda aðstæður viðkvæmar og svipaðar hjá báðum fjölskyldum. Þetta er dýrmætt.“ Manneklan lýjandi Hvað er það eftirminnilegasta sem þú hefur gert sem hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir? „Það sem er svo æðislegt við hjúkrun er hvað hún er fjölbreytt, það er hægt að starfa svo víða. Ég hef unnið við ljósmæðrastörf, glasafrjóvgun, við kennslu, á öldrunardeild, í heimahjúkrun og svo lengst af við hjúkrun krabbameinssjúklinga. Ég var deildarstjóri á líknardeildinni í Kópavogi í 11 ár. Það að vera deildarstjóri getur verið ákaflega lýjandi, sérstaklega hvað manneklu varðar. Ég hætti sem deildastjóri þegar komið var að því að endurnýja ráðninguna mína í annað sinn. Mér fannst þetta orðið gott og langaði að enda starfsferilinn í almennri hjúkrun. Þaðan fór ég til baka á bráðadeild að sinna sjúklingum með blóðsjúkdóma, á deild 11 G, sem núna er orðin aftur að krabbameins- og blóðlækningadeild eins og þegar ég byrjaði að hjúkra krabbameinssjúklingum á Íslandi árið 1996. Núna er deildin bara stærri. Þá var markmiðið að minnka deildareiningarnar en núna er verið að sameina og stækka deildir. Mér hefur alltaf fundist vinnufélagarnir skipta miklu máli, að það sé góður andi, gott samstarf og teymisvinna. Mér hefur líka alla tíð fundist skemmtilegast að vinna með sjúklingum.“ Við látum þetta verða lokaorðin og kveðjum frábæran viðmælanda. „Mig hafði lengi langað til að starfa við líknarhjúkrun og beið eftir að líknardeildin yrði opnuð, áhugi minn og ástríða lá þar.“ Myndin er tekin í Pýreneafjöllunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.