Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Blaðsíða 69
1. tbl. 99. árg. 2023 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 69
Mikil fjölgun þjónustuþega Landspítala með annað móðurmál
en íslensku, á skömmum tíma, er sérstök áskorun fyrir þá
sem þar starfa. Óhindruð samskipti er mikilvægasta tólið sem
hjúkrunarfræðingar nota við vinnu sína. Það að þiggjandi
og veitandi heilbrigðisþjónustu tali ekki sama tungumál,
hefur verið metin mesta hindrunin við að veita viðeigandi,
árangursríka og tímanlega hjúkrunarþjónustu. Túlkaþjónusta
leysir ákveðinn vanda, en henni fylgja töluverðir annmarkar
svo sem takmarkað aðgengi að túlkum, tafir vegna
skipulagningar og aðgengis, trúnaður við sjúklinga og vellíðan
þeirra (Ali, P.A. og Watson, R. 2019, Gerchow, L. 2021).
Hjúkrunarþyngd, mönnun og hjúkrunarálag
Veigamikill þáttur í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga
er mönnun við hjúkrun og að mönnun sé í samræmi við
hjúkrunarþarfir eða hjúkrunarþyngd sjúklinga. Samkvæmt
niðurstöðum rannsóknar á starfsumhverfi og líðan
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á Landspítala reyndust
marktæk jákvæð tengsl á milli mönnunar og starfsánægju
og marktæk neikvæð tengsl á milli mönnunar og einkenna
kulnunar (Jana Katrín Knútsdóttir, 2019). Mönnun við
hjúkrun tengist einnig öryggi sjúklinga og benda rannsóknir
til að tengsl séu á milli andláta sjúklinga á sjúkrahúsum,
undirmönnunar hjúkrunarfræðinga (Needleman 2011;
Griffiths o.fl. 2018; Zaranko o.fl. 2022) eða hjúkrunarálags
(Fagerström o.fl. 2018). Þetta samband er orðið vel þekkt
(Griffiths og Dall‘Ora, 2022) og fjöldi rannsókna (Needleman,
2011; Ball o.fl. 2018; Griffiths o.fl. 2018; Zaranko o.fl. 2022)
og kerfisbundin yfirlit (Kane o.fl. 2007; Shekelle, 2013) sem
vitna þar um. Einnig eru vísbendingar um að hærra hlutfall
hjúkrunarfræðinga (e. skill-mix) af heildarmannafla við
hjúkrun sjúklinga á sjúkrahúsi tengist lægri tíðni andláta
(Aiken o.fl. 2016; Griffiths o.fl. 2016). Mönnun við hjúkrun
hefur einnig verið tengd öðrum öryggisútkomum sjúklinga
Mynd 2. Hlutdeild erlendra ríkisborgara í fjölda lega og legudaga á Landspítala og fjölda íbúa á Íslandi 2010-2022.
4%
6%
7%
4%
6%
7%
5%
6%
7%
5%
6%
7%
5%
6%
7%
4%
7%
8%
4%
7%
9%
6%
7%
11%
5%
8%
13%
8%
10%
14%
7%
9%
14%
7%
10%
15%
7%
10%
17%
0%
2%
4%
6%
8%
10%
12%
14%
16%
18%
Legudagar einstaklinga 67 ára og eldri á
Landspítala
Legur einstaklinga 67 ára og eldri á
Landspítala
Fjölda einstaklinga á Íslandi 67 ára
og eldri
svo sem andlátum tengdum fylgikvillum (e. failure to rescue)
(Kane o.fl. 2007; Griffiths o.fl. 2016), byltum, þrýstingssárum,
lyfjaatvikum (Griffiths o.fl. 2016) og öryggisatvikum
(Fagerström o.fl. 2018). Tengsl hjúkrunarálags og algengi
hjúkrunarnæmra útkoma hafa einnig verið metin mismunandi
mikil eftir tegundum deilda (Milstein og Scheyoegg, 2020).
Af þessu má ráða að mikilvægt er að afla upplýsinga
um mönnun við hjúkrun, hjúkrunarþyngd sjúklinga og
hjúkrunarálag. Finnska hjúkrunarþyngdarflokkunarkerfið
Rafaela, sem nú er í notkun á 27 deildum á Landspítala, var
þróað til notkunar á sjúkrahúsum í Finnlandi (Fagerström,
2014). Upplýsingar úr kefinu má m.a. nota til þess að
meta hvort jafnvægi sé á milli hjúkrunarþarfa sjúklinga og
mönnunar við hjúkrun, greina hvort hjúkrunarálag er innan
viðmiða fyrir ákjósanlegt álag, fylgjast með breytingum á
hjúkrunarþyngd sjúklinga og bera saman hjúkrunarþyngd
mismunandi sjúklinga t.d. eftir DRG-flokkum (Fagerström,
2014). Einnig má nýta upplýsingar úr kerfinu til þess að styðja
við áætlanagerð um mönnun og til þess að meta kostnað og
framleiðni hjúkrunarþjónustu (Kautto, 2016).
Á þeim deildum sem nota Rafaeal-hjúkrunarþyngdar-
flokkunarkerfið á Landspítala er hjúkrunarþyngd sjúklinga
metin daglega. Hjúkrunarþyngd sjúklings er metin út frá sex
hjúkrunarþáttum og getur sjúklingur raðast í eitt af fjórum
mögulegum þyngdarþrepum í hverjum þætti og þannig
flokkast með frá sex og upp í 24 stig. Í OPCq-mælitækinu sem
notað er á vefrænum legudeildum eru hjúkrunarþættirnir
eftirfarandi: Skipulagning og samhæfing hjúkrunar;
öndun, blóðrás og sjúkdómseinkenni; næring og lyfjagjöf;
persónulegt hreinlæti og vessar; hreyfing, virkni, svefn og
hvíld; kennsla, leiðsögn og andlegur stuðningur (Fagerström,
2014). Sjúklingum er skipað í hjúkrunarþyngdarflokka
eftir fjölda stiga. Hjúkrunarþyngdarflokkarnir eru fimm,
Breytingar á starfsumhverfi og verkefnum hjúkrunarfræðinga á Landspítala á árunum 2005-2019