Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Side 72

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Side 72
72 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1 . tbl. 99. árg. 2023 hjúkrunarfræðinga yfir allar deildirnar komið niður í 49%. Á viðkomandi tímabili lækkaði hlutfall hjúkrunarfræðinga af heildarmannafla við daglega hjúkrun við rúm sjúklinga á öllum deildunum nema einni. Önnur verkefni en bein hjúkrun sem hafa áhrif á hjúkrunarálag og mönnun Hafa ber í huga þegar rætt er um hjúkrunarálag að Rafaela- hjúkrunarþyngdarmælingarnar mæla aðeins beina hjúkrun. Þegar metið er vinnuálag í heild á deildum þarf að taka fleira með í reikninginn s.s. fjölda nemenda, umbóta og gæðastarf og sí- og endurmenntun, fjölda sérgreina á deild, sértæk verkefni deilda sem þjóna spítalanum í heild (s.s. endurlífgunarteymi) o.fl. Til að skýra það ósamræmi sem fram kemur í upplifun hjúkrunarfræðinga og starfsemistölum þarf því að huga að þessum þáttum sem og öðrum sem eru enn minna sýnilegir og mælanlegir. Eins og áður hefur komið fram þá hefur íslenskt samfélag breyst mjög mikið á undanförnum áratugum, ekki bara lýðfræðilegar breytingar s.s. fjölgun aldraðra heldur líka aðrir þættir eins og tilkoma flóknari meðferða, tækniþróun, upplýsingasamfélagið, breyttar kröfur um gæði þjónustunnar, auknar áherslur á sýkingavarnir, umfangsmeiri samskipti bæði innan og utan sjúkrahússins, fjölgun sjúklinga sem lifa með fjölþætt heilbrigðisvandamál og alvarlega sjúkdóma og síðast en ekki síst fjölgun samstarfsstarfsmanna með erlent ríkisfang og erlendra sjúklinga. Á árunum 2015-2022 fjölgaði hjúkrunarnemum að meðaltali um 3,1% á ári (úr 443 í 540), erlendum sjúklingum um 23% (úr 2.091 í 5.402) fyrir legur og 10% fyrir komur (úr 8.436 í 14.657) og erlendum hjúkrunarfræðingum um 103% á ári (úr 21 í 172). Allir þessir þættir hafa bein og óbein áhrif á starfsumhverfi þeirra sem starfa við hjúkrun (Nemaskrá LSH 2023; Landspítali, hagdeild 2023). Til að auka innsýn í hvað það gæti verið sem valdi því að hjúkrunarfræðingar á Landspítala upplifi aukið álag í starfi, framkvæmdi einn höfunda greinarinnar (KHJ) örkönnun sem samanstóð af 23 krossaspurningum sem lagðar voru fyrir tólf reynda hjúkrunarfræðinga á spítalanum. Niðurstöður þessarar örkönnunar voru þær að þátttakendur töldu að álag í starfsumhverfi hefði aukist jafnt og þétt síðastliðin 10 ár. Þegar horft er til einstakra þátta þá töldu þeir að aðstæður á deild hefðu þar mest að segja og þá fyrst og fremst vegna fjölgunar erlendra samstarfsmanna. Að sama skapi töldu þeir að hjúkrun sjúklinga með erlent ríkisfang yki verulega á álag í stöfum hjúkrunarfræðinga. Aðrir þættir sem taldir voru valda umtalsvert auknu álagi var fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum, vaxandi áreiti/truflun við dagleg störf, aukin sjúkdómsbyrði sjúklinga, fjölgun sjúklinga í ofþyngd og auknar áherslur á sýkingavarnir. Í ljósi niðurstaðna þessarar óformlegu könnunar er mikilvægt að farið verið í að skoða ítarlegar með stærra úrtaki álagstengda þætti í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga á spítalanum og áhrif breytinga á útfærslu heilbrigðisþjónustu á dagleg verkefni þeirra. Breytingar á þjónustuformi Eins og fram hefur komið hér að framan þá fjölgaði legudögum aðeins um 0,7% á ári á árabilinu 2015-2019 þrátt fyrir að landsmönnum fjölgaði um 1,5% á ári á sama tíma, hlutfall aldraðra ykist sem og erlendum ríkisborgurum og ferðamönnum. Aukin hjúkrunarþyngd bendir til þess að þeir sem eru inniliggjandi á legudeildum séu veikari og hafi meiri hjúkrunarþarfir. Því má leiða líkum að því að þeir sem eru ekki eins alvarlega veikir þiggi þjónustu annars staðar. Markviss vinna hefur átt sér stað á Landspítala á undanförnum áratug í að færa þjónustu af legudeildum á dag- og göngudeildir og nú síðast í fjarheilbrigðisþjónustu. Þeir sem takast á við langvinna sjúkdóma eru einmitt oft í meðferð og eftirliti á þessum þjónustustigum og mjög oft er haldið utanum þjónustu sem þeim er veitt af hjúkrunarfræðingum. Á meðfylgjandi mynd 5 má sjá að þó svo að komum á dag- og göngudeildir hafi ekki fjölgað eins mikið og ætla mætti þá hefur símtölum, tölvupóstum og fjarvöktun fjölgað umtalsvert (Hagdeild 2023). Leiða má líkum af því að einfaldari komur á dag- og göngudeildir hafi færst í aðra þjónustu utan spítalans en sú staðhæfing krefst nánari greiningar. Göngudeildarþjónusta Landspítala byggir að miklu leyti á störfum hjúkrunarfræðinga og stjórn þeirra á rekstri. Margar hverjar eru hjúkrunarstýrðar og aðkoma sérfræðinga í hjúkrun hefur aukist jafnt og þétt undanfarinn áratug. Margir sérfræðingar í hjúkrun veita þjónustu á dag- og göngudeildum þó svo að þeir teljist ekki til fastra starfsmanna þar og gerir það erfiðara fyrir að áætla nákvæmlega mönnun á þessum einingum. Helstu meðferðir sérfæðinganna eru að greina og meta þarfir skjólstæðinganna, veita ráðgjöf, fræðslu og stuðning, aðstoða við að leysa dagleg vandamál og draga úr andlegum áhrifum veikindanna og bæta líðan. Önnur meginverkefni sérfræðinga í hjúkrun er að meta árangur af veittum hjúkrunarmeðferðum. Miklar breytingar hafa átt sér stað í skurðþjónustu á undanförnum áratug og má nefna að við undirbúning fyrir skipulagða skurðaðgerðir voru sjúklingar á árum áður lagðir Tafla 2. Samanlagður daglegur fjöldi starfsmanna við hjúkrun sjúklinga á sólarhring 2015-2021 á 15 vefrænum legudeildum á Landspítala. Samanlagður meðalfjöldi hjúkrunarfræðinga á sólarhring Samanlagður meðalfjöldi sjúkraliða/annarra á sólarhring Samtals meðalfjöldi starfsmanna við hjúkrun sjúklinga á sólarhring Hlutfall hjúkrunarfræðinga af mannafla við daglega hjúkrun sjúklinga 2015 150 125 275 54% 2016 154 131 285 54% 2017 152 137 289 52% 2018 140 143 283 50% 2019 138 155 292 47% 2020 152 164 316 48% 2021 157 163 321 49% Hjúkrun – grunnstoð heilbrigðiskerfisins

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.