Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2023, Síða 90
90 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1 . tbl. 99. árg. 2023
„Svo átti maður bara að vera tilbúinn“
Að hefja störf sem hjúkrunarfræðingur:
„Ég hélt ég vissi eitthvað um hjúkrun“
Fyrir fram gefnar hugmyndir um starfið endurspegluðu oftast
ekki hið raunverulega starfsumhverfi. „Ég hélt ég vissi eitthvað
um hjúkrun þegar ég byrjaði og svo vissi ég ekkert um hjúkrun“
(Brynja). Þátttakendur töldu margt ólært við útskrift. „Mér
fannst ég enn þá vera hjúkrunarfræðinemi fyrsta árið nema
bara að það stóð annað nafn á skírteininu mínu. Það breyttist
ekkert! Ég vissi nákvæmlega jafn mikið daginn fyrir útskrift
og daginn sem ég fékk skírteinið í hendurnar“ (Brynja), og að
faglega færni yrði að þróa í starfi: „Það var einhvern veginn ekki
í boði að vera nýútskrifaður. Þú varst annaðhvort bara nemi eða
hjúkrunarfræðingur“ (Björk).
Viljinn til að sanna sig í starfi olli því að þátttakendur unnu
of mikið, tóku of margar aukavaktir og slepptu pásum. Þeir
töldu sig þurfa að setja mörk til að varna því að vera settir í
aðstæður sem þeir réðu ekki við en skorti oft öryggi til þess:
„Ég átti erfitt með að segja nei og það er svona aðeins að ganga
betur núna … fyrstu tvö, þrjú árin fannst mér ég alltaf þurfa
að bjarga deildinni“ (Dagný). Sumir töldu að takmarka þyrfti
hversu margar aukavaktir hjúkrunarfræðingar mættu taka
NIÐURSTÖÐUR
Yfirþema rannsóknarinnar er svo átti maður bara að vera
tilbúinn, sem lýsir reynslu þátttakenda af því að finnast gerðar
óraunhæfar kröfur til þeirra miðað við starfsreynslu en þeir
upplifðu að vera hent út í djúpu laugina þegar þeir hófu störf:
„það verður að taka tillit til þess að við erum ekki öll eins. Við
erum bara mistilbúin til starfa þegar við erum nýútskrifuð“
(Vaka). Þátttakendur upplifðu misræmi milli væntinga og
veruleika, að þeir ættu enn margt ólært við útskrift og að það
tæki 1-3 ár að finna öryggi í starfi. Viljinn til að sanna sig var
til staðar en þeim fannst erfitt að forgangsraða og setja mörk,
það kæmi með tímanum. Meginþemu rannsóknarinnar voru
sex: 1. Að hefja störf sem hjúkrunarfræðingur: „Ég hélt ég vissi
eitthvað um hjúkrun“. 2. Mikilvægi stuðnings í upphafi starfs:
„Það væri óþægilegt ef ... ég gæti ekki talað við einhvern“.
3. Samskipti á vinnustað: „Við verðum að reyna að vera
almennileg við hvert annað“. 4. Álag og ábyrgð í starfi: „Fólk
hélt ég væri með allt á hreinu“. 5. Viðhorf til starfsins: „Þú
getur ekki gert þetta nema með hjartanu“. 6. Væntingar til
stjórnenda: „Bara vera til staðar“. Undirþemu voru 24 en yfirlit
yfir þau og rannsóknarniðurstöður í heild sinni er að finna í
mynd 2.
Mynd 2. Heildargreiningarlíkan, yfirlit yfir helstu niðurstöður rannsóknar.
Að hefja störf sem
hjúkrunar-
fræðingur:
„Ég hélt ég vissi
eitthvað um
hjúkrun…“
Enn margt ólært
við útskrift; tekur
1-3 ár að finna
öryggi
Misræmi á milli
væntinga og
veruleika
Viljinn til að sanna
sig; erfitt að
forgangsraða og
setja mörk
Óraunhæfar
kröfur miðað við
starfsreynslu
Stuðningur í
upphafi starfs:
„Óþægilegt ef ég
gæti ekki talað við
einhvern“
Stuðningur ekki
nógu markviss
né einstaklings-
miðaður
Mikilvægt að geta
talað við einhvern
sem skilur starfið
Skilningur á því að
maður kann ekki
allt mikilvægur
Stuðningsleysi
getur dregið úr
starfsánægju
Samskipti á
vinnustað:
„Við verðum að
vera almennileg við
hvert annað“
„Svo átti maður bara að vera tilbúinn“
Samskipti versna
þegar álag er mikið
Góð samskipti
stuðla að aukinni
vellíðan í starfi
Maður þarf að
vinna sér inn
virðingu
Óheilbrigð stétta-
skipting; getur
valdið vanlíðan í
starfi
Álag og ábyrgð
í starfi:
„Fólk hélt ég væri
með allt á hreinu“
Erfitt að aðskilja
vinnu og einkalíf
Álag og ábyrgð á
við þá vönu sem
bitnar á gæðum
hjúkrunar
Áhrif á andlega og
líkamlega heilsu;
alltaf hætta á
kulnun
Hræðsla við að
gera mistök
Viðhorf til starfsins:
„Þú getur ekki gert
þetta nema með
hjartanu“
Að vera ekki metin
að verðleikum;
í launum og
framkomu
Oft hugsað
um að hætta
Margir gallar við
starfið en kostirnir
vega oft þyngra
Erfitt að vera
fastur í
vaktavinnu
Væntingar til
stjórnenda:
„Bara vera
til staðar“
Gott utanumhald;
vera til staðar
Reglulegt samtal
og virk hlustun
Þess gætt að
álag og ábyrgð
sé í samræmi við
reynslu og færni
Stuðlað að
starfsþróun;
styrkleikar
ræktaðir