Úrval - 01.12.1950, Blaðsíða 14
10
ÚRVAL
fara aftur, þegar hún hefur
sannfærzt um, að ég muni
koma að heimsækja hana. Hin
langvinna barátta er afstaðin.
Hún hefur lært að laga sig eft-
ir hinu nýja umhverfi.
Þau ár, sem liðin eru síðan
ég leiddi barnið mitt inn í heim
þess sjálfs, hef ég hvað eftir
annað fundið huggun í þeirri
staðreynd, að líf hennar, eins og
annarra, hefur bætt við sam-
eiginlegan þekkingarforða okk-
ar mannanna. Ekkert barn á að
lifa til þess eins að því sé sýnd
umönnun og hlíft við öllum
áföllum. Sérhvert barn hefur
sinn skerf fram að leggja, jafn-
vel þó að það sé hjálparvana.
Það er einhver orsök að öllum
vanheilindum, og ef hægt er að
finna hana, getur það kannski
orðið til þess að unnt verði að
fyrirbyggja, að önnur börn fæð-
ist eins.
Sálfræðingar hafa þegar orð-
ið margs vísari af rannsóknum
á andlega vanþroska börnum.
Þeir hafa komizt að raun um,
að þótt greindarvísitala van-
þroska barns sé mjög lág, getur
það leyst af hendi miklu meira
en ætla mætti, ef rétt er að far-
ið, því að félagsvitundin er alla-
jafna þroskaðri en greindin, vit-
undin um það hvernig það eigi
að hegða sér og löngunin til að
hljóta hylli annarra. Með því að
hagnýta sér þessa þekkingu má
mikið gera fyrir börnin. Og hún
hefur einnig komið að gagni
við uppeldi heilbrigðra barna.
Við vitum um sumar orsakir
meiðsla á heila, bæði fyrir og
eftir fæðingu, en við þurfum að
vita meira. Við vitum til dæm-
is, að ef kona fær svonefnda
„þýzka mislinga“ sem er kon-
unni tiltölulega meinlaus sjúk-
dómur, ef hún fær þá einhvern-
tíma á fyrstu þrem mánuðum
meðgöngutímans, er hætta á að
barnið verði fáviti, en við vitum
ekki hversvegna. Fávitar geta
fæðzt í hvaða fjölskyldu sem
er. Við verðum að komast að
því hvað veldur slíku.
Öleystu verkefnin eru því
mörg, þó að skylt sé að viður-
kenna, að ýmislegt hefur þegar
áunnizt. Við vitum t. d., að um
helming allra fávita í Banda-
ríkjunum er hægt að kenna hag-
nýt störf. Rannsóknir hafa leitt
í ljós, að til eru 19 starfsgrein-
ar, sem fullorðnir menn með
greind sex ára barns geta leyst
af hendi.
Allt eru þetta góð tíðindi,
sem vekja vonir, og vonin er