Úrval - 01.12.1950, Side 105

Úrval - 01.12.1950, Side 105
ÆVISAGA A. CONAN DOYLE 101 frá staðreyndum, sem auðvelt væri að hrekja með opinberum skýrslum. Áður en hægt var að koma vitinu fyrir Flood, höfðu blöðin gert sér mikinn mat úr þessum misskilningi hans. I aug- um Conan Doyles var þetta meira virði en hin lofsamleg- ustu ummæli. Hann gat skrifað skáldsögur, sem blekktu fólk svo, að það áleit þær óyggjandi sannleika. Hann var byrjaður á skáld- sögunni Girdlestone & Co., þeg- ar hann kynntist Louise Haw- kins. Ástæðan til kunningsskapar þeirra var einn af þessum óskilj- anlegu harmleikjum lífsins, sem gerir mönnum svo erfitt að trúa á miskunnsama forsjón. Ná- grannalæknir Doyles, dr. Pike, bað hann að líta á sjúkling fyr- ir sig. Þetta var í marzmánuði 1885. Sjúklingurinn hét Jack Hawkins, sonur ekkju einnar, er bjó í Southsea. Sjúklingurinn þjáðist af heila- bólgu, og Doyle varð þegar ljóst, að hann hafði aðeins verið kall- aður til hans fyrir siðasakir, því að sjúkdómurinn hlaut að leiða til dauða, fyrr en síðar. Ekkjan var illa stödd, því að enginn vildi hýsa sjúklinginn til lengdar vegna kastanna, sem hann fékk öðru hverju. Fyrir tilmæli dr. Pikes, féllst Conan Doyle á að taka hann heim til sín og stunda hann þar. En pilturinn var svo langt leiddur, að hann dó eftir nokkra daga. Sem betur fór, hafði dr. Pike skoðað sjúklinginn kvöldið áður en hann lézt. Allt, sem í mann- legu valdi stóð, hafði verið gert til að bjarga lífi hans. Að öðr- um kosti hefðu illgjarnar tung- ur getað spillt fyrir áliti Doyles. Og þetta var svo sem nógu slæmt. Þegar svört líkkistan var borin út úr húsi Doyles, huldi hann andlitið í höndum sér. Hann áleit það fyrstu skyldu sína að votta móðurinni og syst- urinni, Louise, samúð sína; en í raun og veru voru það þær, sem hugguðu hann. Þannig hófust kynni hans og Louise Hawkins. Hún var tutt- ugu og sjö ára gömul, blíðlynd og óeigingjörn stúlka. Hann varð ástfanginn af henni og þau trú- lofuðust í apríl. Hinn 6. ágúst 1885 gekk Art- hur Conan Doyle að eiga Louise Hawkins. Móðir hans var ráða- hagnum mjög fylgjandi. * Hjónabandið hafði mjög örv- andi áhrif á ritstörf hans. Hann hafði að vísu samið nokkrar góð- ar sögur, svo sem Skipstjórinn á Pólstjörnunni og Keinplatz- tilraunin, en nú ætlaði hann að semja skáldsögu, sem gerði hann að frægum rithöfundi. Hann hafði enga trú á Girdle- stone & Co. Ef hann átti að nota hugmyndirnar, sem sóttu á hann, varð hann að skrifa um eitthvað, sem var bæði eftirtekt- arvert og nýstárlegt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.