Úrval - 01.10.1952, Qupperneq 2
SPURT OG SVARAÐ.
1. Eru ekki landssvæði í Asíu
við norðurtakmörk skóganna, enn-
fremur við hæðatakmörk þeirra
í fjallahéruðum Asíu, Suður-Ame-
ríku, Nýja-Sjálands og jafnvel
Ástralíu og Suður-Afriku, þar
sem sumarhiti og úrkoma er
svipað og hér á landi? Ef svo
er, vaxa þá ekki á þessum slóðum
ýmsar tegundir trjáa, berjarunna
og annarra nytjajurta, sem eru
óreyndar hér, en líkur til að hér
gætu vaxið?
2. Hverskonar tré er eucalypt-
ustréð (barr- eða lauftré) og
hvaða eiginleikar gera það svo
óvenjuverðmætt ? Eru nokkrar
líkur til að hægt væri að fá stofna
af því, sem gætu dafnað hér á
landi?
Svar: Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri hefur góðfúslega
svarað þessum spurningum á eft-
irfarandi hátt: 1 Austurasíu eru
héruð með svipuðum sumarhita
og hér er, og munu þau taka yfir
norður hluta Kurileyja og hluta
af Kamtschatka. Þar vaxa nokkr-
ar tegundir barrviða m. a. Kuril-
eyjalerkið, sem án efa gæti þrif-
ist með ágætum hér á landi. Syðst
í Suður-Ameríku og á Eldlandi er
loftslag líkt og hér á Suðurlandi.
Þar vaxa þrjár tegundir lauftrjáa
og ein barrviðartegund. Tvær
tegundir lauftrjánna eru nú til
hér.
Á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu,
svo og í Suður-Afríku munu eng-
ir staðir, er svipar tii Islands hvað
veðurfar snertir. Þó er ekki fyrir
það að að synja að uppi í há-
fjöllum Suðureyjarinnar á Nýja-
Sjálandi megi finna svipað veður-
far og hér er. Um gróður á þeim
slóðum er mér ekki kunnugt.
Án efa má finna margs konar
gróður á þeim stöðum, sem svipar
til Islands hvað veðráttu snertir
er þrifist gæti hér á landi, bæði
tré, runna og aðrar nytjajurtir.
Annað mál er það, að ná þessum
gróðri hingað heim. Bæði er slíkt
kostnaðarsamt, og auk þess eru
sum þessara landa nærri lokuð.
2. Eucalyptustré eru áströlsk að
uppruna og lifa aðeins í heitu
loftslagi. Til þeirra teljast sumar
hávöxnustu og hraðvöxnustu trjá-
tegundir jarðar. Viður margra
þeirra er forkunnar góður. Sumar
tegundirnar hafa náð góðum
þroska um sunnanverða Evrópu,
í Suður-Ameríku og víðar. Senni-
lega mun engin tegundin geta
lifað hér á landi. Þetta eru lauf-
tré af myrtuættinni.
Vegna rúmleysis verða svör við
tveim öðrum spurningum frá sama
lesanda að biða næsta heftis.
TTPVA 1 RitstJ'óri: Gísli Ölafsson, Leifsgötu 16. Af-
17 JL r Ax X7 greiðsla Tjarnargötu 4, pósthólf 365, Reykjavík.
Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 10.00 hvert hefti í lausasölu.
Áskriftarverð 52 kr. árgangurinn, sem greiðist fyrirfram. Áskrifend-
ur í Reykjavík geta hringt i síma 1174 og beðið um að greiðslan
verði sótt til sín. Utanáskrift tímaritsins er: tJrval, pósthólf 365,
Reykjavík.
tTTGEFANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.