Úrval - 01.10.1952, Blaðsíða 29
SÁLFRÆÐINGAR ATHUGA EÐLI DRAUMA
27
ingar. Hún segir að þú sért á
reki á ísjaka eða villtur í frosti
og byl.
Dulvitundin reynir með öðr-
um orðum að koma með skyn-
samlega skýringu á líkamlegum
skynjunum þínum — án þess
að vita hvað olli þeim.
Er hœgt að láta mann
dreyma? Já, það er mjög auð-
velt. Tilraunir sem David Klein,
prófessor við háskólann í Tex-
as í Bandaríkjunum, gerði
sýndu að hægt er að láta sof-
andi mann dreyma um næst-
um hvað sem er, með því einu
móti að örva lítillega skilning-
arvit hans. Klein prófessor not-
aði ýmsar aðferðir til að láta
tilraunamenn sína dreyma:
hann lét leika þýtt á orgel,
halda ilmvatnsglasi að vitum
þeirra, snerta þá með köldum
málmi, lyfta öðrum gafli rúms-
ins, og margt fleira.
Eru líkur til a'ð ákveðnar teg-
undir matar geti framkallað
drauma? Já. Við háskóla einn í
miðríkjum Bandaríkjanna tóku
sálfræðingar þetta atriði til
nákvæmrar rannsóknar. Þeir
gerðu mörg hundruð tilraunir
og komust að þeirri niðurstöðu,
að eftirfarandi fæðutegundir,
meðal annarra, hafi tilhneig-
ingu til að framkalla drauma:
melónur, bananar, grófur korn-
matur og nýr ananas. Aftur á
móti virðist ananas í dósum
ekki hafa nein draumvekjandi
áhrif. Rannsóknirnar leiddu
einnig í Ijós, að minni líkur eru
til að menn dreymi ef þeir
borða ekki áður en þeir fara að
sofa, heldur en ef þeir fara
mettir í rúmið.
Er erfiit að skýra drauma?
Já. Draumar okkar nota oftar
en hitt flókin tákn til að tjá
það sem bærist í dulvitund okk-
ar. Það er ekki á færi nema
reyndra sálkönnuða með stað-
góða þekkingu á fortíð og per-
sónuleika draumamannsins að
skýra þessi tákn rétt. Draumur
sem táknar ótta og öryggisleysi
hjá einum hefur kannski þver-
öfuga merkingu hjá öðrum. Hjá
einum manni táknar kannski
kona með blæju leyndar ástir
og rómantík, en hjá öðrum sorg
og dauða. Skýring draumtákn-
anna byggist algerlega á fyrri
i'eynslu draumamannsins. Þess-
vegna getur jafnvel ekki sér-
fræðingur skýrt drauma nema
hann hafi fyrst vandlega rann-
sakað og kynnt sér fortíð og
persónuleika draumamannsins.
Er menn að dreyma þegar
þeir ganga t svefni? Já. Svefn-
gengillinn breytir draumum
sínum í líkamlega athöfn. Ýmis-
legt í sambandi við svefngöngu
er vísindamönnum enn ráðgáta,
en eftirfarandi atriði telja
menn sig hafa sannreynt: í
svefngöngu er líkama svefn-
gengilsins algerlega stjórnað af
dulvitundinni, sem notar hann
til að tjá duldar óskir. Svefn-
ganga er allajafna merki um
löngun til flótta, til að losa sig
úr erfiðleikum. Þessvegna reyn-
4*