Úrval - 01.10.1952, Page 30
28
tTRVAL
ir svefngengillinn að komast út
úr húsinu og notar til þess
næsta útgang — hurð, glugga
eða öryggisleið vegna eldsvoða.
Ef honum tekst að komast út,
heldur hann áfram göngunni
þangað til hann er stöðvaður
eða vaknar af draumnum.
Svefngengill sem býr yfir
duldri löngun til að stela eða
beita ofbeldi, er vís til að gera
tilraun til slíks í svefngöngu.
Ótal dæmi eru um það að svefn-
genglar hafi framið innbrot,
morð, og jafnvel sjálfsmorð.
Sérfróðir menn eru sammála
um, að enda þótt svefnganga sé
ekki eðlilegt fyrirbrigði og beri
vott um harðvítuga innri tog-
streitu, eigi hún ekkert skylt
við geðbilun, og engin hætta sé
á að hún leiði til geðveiklunar.
Hér er aðeins um það að ræða
að dulvitundin tekur við stjórn
líkamans meðan vitundin sefur.
Hvernig þessi „stjórnarskipti“
verða er vísindamönnum jafn-
hulin ráðgáta og svefninn sjálf-
ur.
Dreymir konur ööruvísi
drauma en karlmenn? Til að
finng, svar við þessari spurn-
ingu rannsökuðu sérfræðingar
við háskólann í Wisconsin í
Bandaríkjunum drauma karla
og kvenna úr ýmsum stéttum
þjóðfélagsins. Þeir komust að
þeirri niðurstöðu, að karl-
menn dreymi yfirleitt miklu
skemmtilegri drauma en konur.
I draumum kvenna ber miklu
meira á ótta, kvíða og skelf-
ingu. Rannsóknin leiddi í ljós,
að martröð var helmingi al-
gengari hjá konum en körlum.
Að áliti þessara sálfræðinga
hneigjast konur meira til að
veita kvíða, ótta og innri tog-
streitu útrás í draumum sínum
en karlmenn. Rannsóknin leiddi
einnig í ljós að draumar kvenna
eru litríkari en karla.
Er hœgt aö sjá hvort sof-
anda mann er að dreyma eða
eklá? Já. Athugið augu hans.
Ef augun eru á hreyfingu und-
ir augnalokunum, er nokkurn-
veginn víst að hann er að
dreyma. Dr. Edmund Jacobson,
sem haft hefur á hendi víðtæk-
ar rannsóknir á draumum og
svefni við háskólann í Chicago,
uppgötvaði þetta þegar hann
var að rannsaka líkamleg við-
’brögð sofandi manna. Hann
uppgötvaði, að þegar mann
dreymir eru vöðvamir í ein-
hverjum hluta líkamans í at-
höfn. Oftast voru þetta augn-
vöðvarnir.
Næst þegar þið virðið fyrir
ykkur sofandi mann, þá athug-
ið hvort augun hreyfast undir
augnalokunum. Ef þau era á
iði, þá vekið hann gætilega —
og munuð þið þá komast að
raun um, að hann var að
dreyma.
Það er svo erfitt að hugsa, að sumir kjósa heldur að
dæma. — Otto Weiss.