Úrval - 01.10.1952, Síða 34
32
tJRVAL
as að krökt var af grænni blað-
lús á hveitiakri sem ekki hafði
verið borinn á verksmiðjuáburð-
ur, en á öðrum, sem borið hafði
verið á, var lítið af blaðlús.
Sú fullyrðing að verksmiðju-
áburður drepi ánamaðka og
gagnlegar jarðvegsbakteríur
fær heldur ekki staðizt. Á Rot-
hamsted tilraimarstöðinni í
Harpenden í Englandi hefur
talning leitt í ljós að ánamaðkar
eru engu færri í reitum sem bor-
inn hefur verið á verksmiðju-
áburður en í áburðarlausum
reitum, og að ánamaðkarnir í
áburðarreitunum eru stærri og
feitari en í áburðarlausu reit-
unum. Margar tilraunir í
Bandaríkjunum sýna að súper-
fosfat örvar bakteríugróðurinn
í jarðveginum. Notkun verk-
smiðjuáburðar mun að öðru
jöfnu auka hin lífrænu efni
jarðvegsins og stuðla þannig að
f jölgun bæði ánamaðka og bak-
tería.
í stuttu máli: fullyrðingarn-
ar um skaðsemi verksmiðju-
áburðar eiga sér enga stoð í
veruleikanum. Verksmiðju-
áburður og lífræn efni í jarð-
veginum er hvortveggja nauð-
synlegt til að fá góða uppskeru.
Ef hætt yrði að nota verk-
smiðjuáburð mundi það hafa í
för með sér almenna hungurs-
neyð.
Veiðimaður: „Einu sinni þegar ég sat að snæöingi í frumskóg-
inum kom ljón aftan að mér og vissi ég ekki af því fyrr en ég
fann það anda aftan á hálsinn á mér. Og hvað heldurðu ég hafi
gert?“
Þreyttur hlustandi: „Brett upp kragann, býst ég við.“
— Illustrated Weekly.
★
Amerísk kvikmyndaleikkona var að sækja um vegabréf.
„Ógift?“ spurði afgreiðslumaðurinn.
„Stundum,“ svaraði leikkonan.
— Norsk Ukeblad.
★
„Heyrðu, hérna stendur í blaðinu að orðaforði miðlungskven-
manns sé ekki nema 500 orð.“
„Það er ekki mikill höfuðstóll, en veltan, maður, veltan.“
— Illustrated Weekly.
★
„Ég vildi ég gæti séð mig með annarra augum, séð mig eins.
og aðrir sjá mig.“
„Það yrði ekki til neins, þú mundir ekki trúa þínum eigin aug-
um.“ — English Digest.