Úrval - 01.10.1952, Qupperneq 77
HROLLVEKJAN
75
leik: tinsoldátar sem hrynja
niður fyrir skotum úr bauna-
byssum. Dauðinn í hrollvekj-
unni er vissulega ekki síður
ópersónulegur, en hann er skoð-
aður í gegnum stækkunargler.
Stækkunargler sem notað er af
ískaldri ástríðu, sem kannar all-
ar hliðar dauðastríðsins út í æs-
ar og til síðasta andvarps.
Og því varnarlausara sem
fómardýrið er, því betra! Kon-
an sem þrýstir sér æpandi upp
að vegg meðan hanzkaklæddur
morðinginn mjakast nær með
hæðnisbros á vör, barnið sem
hlustar eitt og yfirgefið í tungl-
skinsbjörtu herberginu á fóta-
takið sem nálgast og sér hurð-
ina opnast hægt og skuggann
teygja sig inn — þessi fórnardýr
eru ekki sýnd aðeins til þess að
spenna taugar áhorfandans til
hins ýtrasta. Þau eru notuð í
ákveðnum sálfræðilegum til-
gangi. Með hjálp þeirra getur
áhorfandinn nefnilega létt á
sektarvitund sem kann að þjaka
hann. Þeim getur hann af
ímyndaðri einlægni helgað alla
samúð sína, sem að sjálfsögðu
magnast í hlutfalli við varnar-
leysi fórnardýrsins. Svo getur
hann rólegur, að við ekki segj-
um með tandurhreinni sam-
vizku, svalað æsingaþorsta
sínum. Og þó kannski fyrst og
fremst hinni hatursfullu of-
beldishneigð sem er eins og
broddar á meira eða minna dul-
vitaðri vanmetakennd.
Hrollvekjan er með öðrum
orðum samvizkulaus spekúla-
sjón í frumstæðustu hneigðum
mannsins, í blundandi eyðilegg-
ingarhvöt hans, dulvituðum
menningarf jandskap hans. Hinn
frumstæði blóðþorsti hennar
kemur enn skýrar í ljós vegna
hins glæsta munaðar sem er um-
gerð hennar. Hún er í innsta eðli
sínu ófrjó. Hún gerir mennina
að fávísum glæpamönnum,
móðursjúkum öskuröpum og
skuggalegum slagsmálahund-
um. Hún kæfir allt bros, drep-
ur allar mannlegar eigindir.
Hún gerir óttann, kvalalostann,
þjáninguna að takmarki í sjálfu
sér. Hún breytir veruleikanum
í stöðuga martröð. Og um fram
allt hagnýtir hún sér dauðann
af kaldhyggju sem væri með
öllu óskiljanleg nema af því að
hún stjórnast fyrst og fremst
af gróðasjónarmiði.
Það skal fúslega viðurkennt,
að margar hrollvekjur eru mjög
vel gerðar: þeim er stjórnað af
mikilli kunnáttu og þær eru
frábærilega vel leiknar. En það
er tóm og köld yfirborðslist
sem örsjaldan á nokkuð skylt
við sanna list. Og hversu kunn-
áttusamleg sem ljósmyndunin
er og hversu áhrifarík sem lýs-
ingin er geta þær aldrei leynt
þeirri staðreynd að hrollvekjan
er hættuleg sem þjóðfélags-
fyrirbæri. Það er kominn tími
til að menn geri sér ljóst hvern
þátt hún á með ísmeygileik sín-
um í þeim hrottaskap sem sí-
fellt gætir meir í lífi nútímans.