Úrval - 01.10.1952, Qupperneq 91
Knut Hamsun
Grein úr ,,Vinduet“,
eftir Sigurd Hoel.
MÁNUÐI áður en önnur
heimsstyrjöldin brauzt út.
varð Knut Hamsun áttræður.
Allur heimurinn hyllti hann.
Hann var ekki aðeins dáður,
hann var elskaður, sem sJcáldiö
öllum öðrum framar í hópi
hinna miklu rithöfunda samtíð-
arinnar.
Hefði hann dáið þá, mundi
hafa reynzt þungbært en auð-
velt að skrifa eftirmæli hans.
Samúð hans með nazistum var
alkunn, en hvaða máli skipti
hún? Hún var ekki annað en
lítill blettur á fagurri ásjónu,
duttlungar mikils skálds.
Nú, þegar hann er dáinn, get-
um við sagt: Veslings maðurinn,
hann lifði tólf árum of lengi.
En jafnframt vitum við að það
er alltof snemmt að skrifa eftir-
mæli skáldsins og mannsins
Knuts Hamsun. Síðustu ár hans
voru stórbrotinn harmleikur,
og í þeim harmleik erum við
öll leikendur, nauðug viljug.
Ekkert okkar stendur svo hátt
eða álengdar að hann eða hún
geti setzt í dómarasætið og
kveðið upp lokadóminn.
*
Hinn 1. maí 1940, meðan
styrjöldin í Noregi var í al-
gleymingi, sendi Knut Hamsun
frá sér eftirfarandi áskorun:
Norðmenn:
Þegar englendingar í skefjalausri
villimennsku sinni réðust inn í Jöss-
ingfjörð og svívirtu sjálfstæði vort,
gerðuð þið ekkert. Þegar englending-
ar lögðu svo tundurdufl með fram
ströndum vorum til þess að færa
styrjöldina inn í norskt land, höfðust
þið heldur ekkert að.
En þegar þjóðverjar hertóku Noreg
og komu í veg fyrir að styrjöldin
kæmi til landsins — þá brugðuð þið
við: Þið hlupuð til stuðnings hinum
landflótta konungi okkar og einka-
ríkisstjórn hans og gripuð til vopna.
Það stoðar ekkert þótt þið hafið
náð í sína byssuna hver og froðu-
fellið framan í þjóðverja: á morgun
eða enhvern annan dag verður varp-
að á ykkur sprengjum.
England getur ekk hjálpað ykkur
nema með nokkrum smáhópum hér
og þar sem flakka um dalina og betla
mat.
Norðmenn: Kastið byssunum og
haldið heim.
Hann skrifaði margt þessu
líkt árið 1940, sem var mikið
annaár hjá honum. Þá töldu
bæði hann og aðrir að hann gæti
safnað um sig fylgi í allri ring-
ulreiðinni. En sú hætta var lítil,
eins og kom á daginn, og fór
minnkandi með hverjum mán-