Úrval - 01.08.1955, Page 15

Úrval - 01.08.1955, Page 15
Höfunduriim hefur samið ýmsar alþýðlegar bækur um vísindaleg: efni. UPPHA FSEFNIÐ IJr útvarpserindi, prentuðu í mánaðarritinu „Gehört — gelesen". eftir Otto YVilli Gail, Miinchen. EGAR frummaðurinn kveikti sér eld í fyrsta sinn vitandi vits, steig mannkynið mesta framfaraskref sitt til þess tíma. Ekkert framfaraskref mann- kynsins var neitt svipað að mik- ilvægi, þangað til enska eðlis- fræðingnum Ernest Rutherford tókst í fyrsta sinn að kljúfa frumeindina árið 1919. En mað- urinn mun trauðla látasérnægja að hafa náð valdi á eldinum eða frumeindakjamanum, heldur mun hann líka vilja seilast til stjarnanna, sennilega þegar á þessari öld. Hann mun kanna plánetugeiminn eigi síður en iður frumeindanna. Gullgerðarmennirnir gömlu höfðu gert sér mikið far um að finna ,,upphafsefnið“, sem allt annað efni ætti rætur sínar til að rekja. Þeir töldu, að væri það fundið, hlyti að vera hægt að búa til hvert annað efni, til dæmis gull. Þessi hugmynd þeirra var rétt. Slíkt upphafs- efni er til. Frumeindir allra efna eru sams konar að því leyti, að all- ar eru þær gerðar af efniskjarna hlöðnum viðlægu rafmagni, sem örsmáar frádrægar rafmagns- hleðslur, svonefndar rafeindir, sveiflast umhverfis í hlutfalls- lega víðum brautum. Hvort frumeind telst til járns, gulls, ildis („súrefnis") o. s. frv., það fer eingöngu eftir tiltekinni tölu, sem sé fjölda viðlægra hleðslna í kjarnanum. Sé ein þeirra numin á brott, breytist til að mynda ildi í lyfti („köfn- unarefni“), klór í brennistein, kvikasilfur í gull. Það er að vísu síður en svo, að auðvelt sé að kljúfa frumeindarkjarnann á þann hátt. Kjarneindirnar (,,núkleónurnar“) eru svo rammlega saman reyrðar, að engar aðferðir venjulegrar efnafræði duga til að losa um þær. Tengikraftar kjarneind- anna eru miljónum sinnum sterkari en kraftar þeir, sem tengja saman sjálfar frumeind- ir efnanna. Það var einmitt á- stæðan til þess, að tilraunir gullgerðarmannanna hlutu að mistakast. En eðlisfræði nútímans kann aðferðir til að koma til leiðar slíkri samþjöppun orkunnar, að jafnvel frumeindarkjarninn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.