Úrval - 01.08.1955, Page 34

Úrval - 01.08.1955, Page 34
32 ÚRVAL una í skriflegu fengum við líka fyrir fjórum árum. Hvernig er þarna inni í dag?“ „Ágætt. Ég ætla að fara að færa þeim kaffi.“ „Áfbragð. Settu nóg af sykri útí! Lítið sykurmagn í blóðinu veldur önuglyndi." „Það skal ég gera. Og gangi þér nú vel!“ „Þakka þér fj'rir, William.“ Sjötti „prófsveinninn“ var stúlka. Smágerð og snotur, sá ég, sennilega frá Royal Free. Hún sat bein og kyrr á stólnum með hendur í skauti. Stúlkur — þær sem gæddar eru kvenlegum þokka, ekki þær sem eru kon- ur einungis vegna smávægilegra anatómískra eiginleika —■ slík- ar stúlkur eru ekki vel settar á munnlegum prófum. Prófess- orarnir óttast svo mjög að verða fyrir áhrifum af kynþokka þeirra, að þeir eru byrstari við þær en þær eiga skilið. En þessi stúlka hafði búið sig undir próf- ið af mikilli fyrirhyggju. Dragt- in hennar var lýtalaus, en ekki glæsileg, hárgreiðslan var snyrtileg, en ekki eggjandi, and- litssnyrtingin smekkleg en yfir- lætislaus og augnatilliti sínu hafði hún lagt til þessa auð- mjúku aðdáun, sem karlmönn- um geðjast svo vel að í konu- augum. Hún mundi án efa spjara sig. Ég sat úti í horni og fitlaði við slaufuna mína. Maður er alltaf boðaður of snemma til munnlegs prófs, og nú átti kaffi- hléið að lengja kvölina enrt meira. Það var ekki annað að gera en vopna sig þolinmæði og hugsa um eitthvað sem allra fjarst því er beið manns, til dæmis knattspyrnu eða fótleggi stúlkunnar andspænis mér. Allt í einu var hurðinni hrundið upp og inn sentist unglingspiltur með hitasóttargljáa í augunum. „Það gekk ekki svo bölvanlega," sagði hann andstuttur við kæru- leysingjann. Þeir voru bersýni- lega frá sarna spítala. „Ég fékk Sir Rollo Doggert og Stanley Smith,“ sagði piltur- inn hreykinn. Við kinkuðum kolli öll, þessir tveir prófessor- ar voru verst þokkaðir af öll- um prófessorum í London. „Doggert byrjaði á að spyrja mig um einkenni akrodyni,“ hélt hann áfram. ,,Ég var svo hepp- inn, að ég hafði flett því upp í gærkveldi og kunni það alveg.“ ,,Akrodyni!“ hrópaði sá taugaóstyrki. „Guð minn góður, því er ég búinn að gleyma!" ,,Ég sá strax, að eina ráðið við hann var að taka hann eins og jafningja — hann fyrirlítur hundslega auðmýkt. Ég romsaði því upp úr mér öllu sem ég vissi um akrodyni, og þegar ég var búinn sagði hann: „Ágætt, á- gætt“.“ „Spurði hann um nokkuð ann- að?“ spurði vinur hans ákafur. „Já, auðvitað. Hann spurði mig hvað ég mundi gera ef ég væri að spila golf með sykur- sýkissjúklingi og hann fengi allt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.