Úrval - 01.08.1955, Síða 39

Úrval - 01.08.1955, Síða 39
TIL PRÓFS 1 LÆKNISFRÆÐI 37 klipptur úr Esquire. „Góðan daginn,“ sagði ég og setti upp læknisbros. „Góðan daginn,“ svaraði hún glaðlega. „Viljið þér segja mér hvað þér heitið?“ spurði ég kurteis- lega. „ „Sjálfsagt. Ég heiti Molly Dit- ton, ég er ógift, tuttugu og tveggja ára gömul, hraðritari að atvinnu, hef verið það undan- farin fjögur ár. Eg á heima í Ilford og hef aldrei farið til út- landa.“ Hjartað í mér hoppaði af fögnuði: hún var gamalreynd í faginu! „Hafið þér verið hér fyrr?“ spurði ég. „Þér virðist kunna ganginn í þessu.“ Hún hló. „Ötal sinnum. Ég skal veðja að ég veit meira um veikindi mín en þér.“ Málið lá ljóst fyrir! Það er ein gullvæg regla, sem gildir um sjúkdómsgreiningarprófin — að spyrja sjúklinginn! Hún hafði svo oft verið til prófs og heyrt svo oft bollalagt um sjúkdóm sinn, að hún kunni án efa öll læknisfræðiheiti í sambandi við hann. Ég varð aðeins að gæta þess að halda vel á spilunum. Ég spjallaði við hana um Ilford og um kostina við að búa þar, um hraðritun og áhrif hennar á taugarnar, um karlmenn og um giftingarmöguleika hennar (þá flissaði hún), um veðrið og hvert hún ætlaði í sumarfríinu. „Vel á minnst,“ sagði ég með uppgerðarkæruleysi, „hvað er eiginlega að yður?“ „Að mér — ég er með mitral- stenos eftir liðagigt, en ég er alveg kompenseruð og hef góð- an prognósis. Ég er með præ- syptoliskt blásturshljóð yfir broddinum, en aortalokurnar eru í lagi og ég er ekki með neinar krepitationir í lungna- broddunum. Thyroidea er dá- lítið stækkaður — hann verður hrifinn ef þér takið • eftir því. Ég fæ aldrei flimmer og engin meðul.“ „Þakka yður kœrlega fyrir,“ sagði ég. Sá þybbni varð stór- hrifinn þegar ég þuldi upp það sem sjúklingurinn hafði sagt mér, eins og það væri mín eigin sjúkdómsgreining. „Fyrirtak,“ sagði hann og var allur eitt bros. „Þér tókuð líka eftir thyroidea . . . það er veru- lega ánægjulegt að til skuli vera einn ungur maður, sem kann að nota augun. Ár eftir ár hef ég þrástagast á því við nemendur mína að nota augun — en til einskis. Ágæt diagnósa, drengur minn! Takið nú hérna við op- talmóskópinu og segið mér hvað þér sjáið í auga gömlu konunn- ar þarna.“ Hjarta mitt, sem hafði hafið sig til skýja eins og lævirki, féll nú til jarðar aftur. Prófessor- inn rétti mér lítið, svart tæki með sjónglerjum, sem notað er til að skyggna auga. Ég hafði oft séð það á spítalanum, en aldrei haft tíma til að kynna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.