Úrval - 01.08.1955, Blaðsíða 50
Hér g-reinir frá furðulegum dæmum um
sporvísi ástralskra frumbyggja.
Ferilskyggnir blökkumenn.
Grein úr ,,The Wide World Magazine",
eftir Even K. Patterson.
T^NGINN sem kemur til norð-
urhéraða Ástralíu getur
komizt hjá að heyra talað um
hve þýðingarmikið starf feril-
skyggnir blökkumenn leysa af
hendi. Löggæzlu á þessu afar-
víðlenda svæði (sem er meira en
samanlögð stærð Þýzkalands,
Frakklands og Italíu), annast
fámennur hópur lögreglumanna.
Allir sem einn játa þessir menn
það fúslega, að hinn ágæti ár-
angur starfs þeirra sé mikið að
þakka hinum ferilskyggnu
blökkumönnum.
Þessir sporhundar í manns-
mynd. eru starfandi við allar
lögreglustöðvar í óbyggðum
Norður-Ástralíu. Þeir eru tald-
ir slóðskyggnastir allra manna
í heimi og geta rakið slóðir
manna og dýra óraleiðir um
hverskonar landslag. Leikni
þeirra í þessu efni er beinlínis
óhugnanleg, en maður getur
ekki gert sér neina grein fyrir
list þeirra nema maður hafi séð
þá að starfi. Villimenn þessir
hafa undursamlega hvassa sjón
og auk þess eitthvert „sjotta
skilningarvit", er gerir þeim
unnt að rekja næstum því ó-
sýnilega slóð án minnsta hiks,
Þar sem þróun þessa hæfi-
leika ræður miklu um hæfní
manna að sjá sér farborða á
þessum slóðum, eru drengir
þjálfaðir í að þekkja og rekja
slóðir allra þarlendra dýra strax
og þeir fara að geta gengið.
Eftir skamma stund eru þeir
orðnir leiknir í að rekja slóðir
ýmissa smádýra, eins og snáka,
rotta, froska og eðla, sem eru
ósýnilegar hvítum mönnum.
Þegar leikni er fengin í að rekja
þesskonar slóðir, eru slóðir
stórra og þungra dýra eins og
hesta, nautgripa og manna eins
og opin bók fyrir slíka meist-
ara á þessu sviði.
Það má þykja furðulegt, að
leiknustu og huguðustu snuðr-
arar lögreglunnar í Norður-Ást-
ralíu hafa allir verið lögbrjótar
— aðallega manndráparar — er
setið hafa í fangelsum árum
saman. Þegar þeir losna úr
fangelsinu, ráðast þeir til lög-
reglunnar og hjálpa henni að
hafa hendur í hári annarra
lögbrjóta.
Einn hinn ásjálegasti þessara
aðstoðarmanna lögreglunnar, er