Úrval - 01.08.1955, Page 66
'64
ÚRVAL
draumur að geta sezt að kvöldi
með inniskó á fótunum og not-
ið pípu sinnar við snarkandi
arineld er veruleiki. Við munum
seinna setjast að vestur í
Bandaríkjunum, og þá munum
við taka með okkur dýrmæta
eign, sem ég á konunni að þakka
— vitund um það að við lifum
á okkar eigin heimili, hvort með
öðru og hvort fyrir annað, án
þess að finna þörf hjá okkur til
að leita upplyftingar í skemmt-
analífi útífrá.“
Sömu tilfinningar bergmál-
uðu í orðum fyrrverandi höf-
uðsmanns og þýzkrar konu
hans, sem nú búa í Bandaríkj-
unum: ,,Við lifum bæði fyrir þá
ró og kyrrð, sem við finnum í
því að vera saman að loknu
dagsverki. Konan mín vinnur
heimilisstörfin og ég vinn á
skrifstofu, og að kvöldi erum
við tvær vinnandi manneskjur,
sem leitum hvíldar. Henni
finnst jafnvel sitt hlutverk
betra en mitt.“
Ameríkumenn erlendis furða
sig á hve fólk fer mikið í hjóla-
túra, göngutúra og skógartúra
— ekki aðeins ungt fólk, held-
ur einnig roskin hjón og heilar
fjölskyldur. Sérstaklega verður
þeim tíðrætt um hve náið sam-
band foreldra og barna helzt
lengi, oft fram yfir tvítugsald-
ur barnanna. „Þau taka þátt í
lífi foreldra sinna og skemmta
sér með þeim fram á fullorðins
ár,“ sagði amerísk kona við
mig, og undrun hennar leyndi
sér ekki. „Þau hafa svo miklu
minna úr að spila en við, en
samt njóta þau alls miklu bet-
ur en við.“
Lúterskur prestur, sem í
starfi sínu meðal amerískra her_
manna erlendis hefur kynnzt
sömu viðhorfum og ég, sagði
við mig: „Við Ameríkumenn
höfum einhvernveginn misst
sjónar á þeim markmiðum, sem
við höfðum áður. Við ættum að
læra af eldri menningarþjóð-
um. Fjölskylclulíf verður að
byggjast á öðru en sjónvarps-
tæki, þvottavél og ísskáp. Hér
er verk að vinna fyrir amerísk-
ar konur, fyrst og fremst. Ame-
rískir karlmenn hafa þegar
sýnt, að þeir muni ekki láta
sinn hlut eftir liggja — en það
eru evrópskar konur, sem gef-
ið hafa þeim tækifæri til að
sýna það.“
□-------□
Þegar erfiðleikamir eru að sliga þig og þú sérð enga leið
út úr þeim, þá minstu þess, að demant er ekki annað en kola-
moli, sem orðið hefur að þola mikinn þrýsting í langan tima.
■—• English Digest.