Úrval - 01.08.1955, Qupperneq 68
ÚRVAL
66
Samfara þessu er rómantísk
óskhyggja um hamingjusamt og
áhyggjulaust náttúrulíf á sól-
bjartri Suðurhafsey undir svign-
andi pálmum, f jarri böndum sið-
menningarinnar og sívaxandi
kröfum samfélagsins til ein-
staklingsins. Tækniþróunin hef-
ur skapað hjá okkur fjölmarg-
ar þarfir, sem magna hjá okkur
óseðjandi löngun í efnaleg
gæði.
í hinum áköfu deilum síðustu
áratuga um barnauppeldi hefur
æ ofan í æ verið vísað til á-
standsins meðal náttúrufólks
sem fyrirmyndar, þar sem börn-
unum er frjálst að veita at-
hafnaþrá sinni útrás, þar sem
fá eða engin bönn þekkjast, og
þar sem börnin fá því tækifæri
til að þroskast og verða að
frjálsbornu og glaðlyndu fólki.
Án þess að umtalsverðri þekk-
ingu á náttúrufólki og náttúru-
börnum sé til að dreifa, eru sum-
ir uppi með það álit, að við gæt-
um skapað betri heim með því
að ala börn okkar upp á sama
hátt og ,,villimenn“, en þessir
góðu menn virðast ekki hafa
hugleitt, að hin verðandi frjálsu
og hömlulausu börn þurfa að sjá
sér farborða í samfélagi þar sem
úir og grúir af hömlum og tak-
mörkunum, en ekki í náttúru-
samfélagi þar sem ráða allt önn-
ur lögmál.
Sá þjóðflokkur, sem oftast er
vísað til, eru Trobriandar, en
þjóðfræðingurinn dr. Bronislaw
Malinowski rannsakaði ítarlega
lifnaðarhætti þeirra á árum
fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Hann dvaldi tvö ár meðal þeirra
og lærði að tala mál þeirra. Hef-
ur hann skrifað stórmerkt rit
um þessar rannsóknir sínar, og
er sá fróðleikur, sem hér fer á
eftir sóttur þangað.
Trobriandeyjarnar eru kóral-
eyjaklasi í norðaustur frá Nýju
Guineu, um 8° fyrir sunnan
miðbaug. Stærsta eyjan er um
90 ferkm að stærð. Hitabeltis-
loftslag ríkir á eyjunum, en sval-
ir hafvindar tempra hitann.
Vesturhluti eyjunnar eru lágar
savannasléttur, austurhlutinn er
hálendari, og eru þar frumskóg-
ar, pálmalundar og frjósemi
mikil og náttúrufegurð. Þorpin
eru þannig byggð, að kofarnir
mynda tvo hringi umhverfis op-
ið svæði, þar sem hátíðir, dans-
ar og trúariðkanir fara fram.
I ytri hringnum eru íverukof-
arnir og er aðeins eitt herbergi
í hverjum kofa, þar sem öll f jöl-
skyldan hefst við. I innri hringn-
um eru geymslur þar sem hver
fjölskylda geymir matarforða
sinn: yamrætur, taro og aðra
rótarávexti, sem ásamt fiski,
sem steiktur er yfir opnum eldi,
er aðalfæða eyjarskeggja. Milli
þessara tveggja kofaraða er að-
algatan, þar sem f jölskyldurnar
sitja að loknu dagsverki fyrir
framan kofa sína og skeggræða.
Við skulum fylgjast einn dag
með lífinu í þorpi nálægt strönd-
inni. Á morgnana fara karl-
mennirnir til veiða í lónunum