Úrval - 01.08.1955, Page 85

Úrval - 01.08.1955, Page 85
LÝST SKURÐAÐGERÐ Á LUNGA 83 aðstoðarlæknir, og réttir hon- um hnífinn. Læknirinn lítur í síðasta sinn á röntgenmyndirn- ar af lunga frú Kristensson, sem hanga fyrir framan hann, þreifar eftir rifbeinunum, bregður hnífnum á hörundið og sker langan skurð frá síðunni og aftur á mitt bak. Blóðið sprettur fram og rennur yfir hvítt hörundið. Franski lækn- irinn er til taks. hann þurrkar blóðið með stórum grisjuvöndl- um, sem hjúkrunarkonan réttir honum. Skurðlæknirinn dýpkar skurðinn varlega. Það blæðir meira úr hörundi ungs fólks en gamals, segir hann við mig lágri röddu. Hann leggur frá sér hnífinn og tekur langa nál, sem tengd er við rafmagn. Nál- in hitnar og hann svíður með henni æðaendana og stöðvar þannig blóðrennslið. Blóðrennslið hefur nú minnk- að. Þá grípur hann hnífinn aft- ur og sker nú gegnum fituvef og vöðva. Nýjar æðar kubbast sundur og hann verður aftur að leggja frá sér hnífinn. Mest- ur tími skurðaðgerðar fer í að stöðva blóðrennslið. En nú er ekki lengur hægt að svíða. Hjúkrunarkona réttir lækninum hvert áhaldið á fætur öðru; mér sýnist þau líkjast mest skærum, en það eru æða- klemmur, sem eiga að loka æðunum. Læknirinn heldur áfram að skera, en staldrar annað slagið við til að festa æðaklemmur. Að lokum eru þær orðnar svo margar, að ég kem ekki tölu á þær. Nú byrjar hann að losa þær aftur, en bindur fyrir hverja æð með silkiþræði í staðinn. Þessir þræðir eru ekki teknir aftur, þeir eru látnir vera og skiptir miklu máli, að þeir séu vel hnýttir. Nú kemur yfirlæknirinn inn. í hvítum tréskóm, hvítum bóm- ullarbuxum, hvítri treyju, með húfu og grisju fyrir vitunum. Hann er færður í græna kirt- ilinn, kryplaðan og dauðhreins- aðan. Allt gengur hljótt fyrir sér. Enginn hrekkur við, eftir- væntingin vex ekki svo að merkt verði. Hér er ekki á ferðinni ,,ofurmenni“, sem allir bera óttablandna lotningu fyr- ir. Hann gengur til aðstoðar- lækna sinna ræðir við þá í hljóði og tekur við verkfærun- um. Þetta er heldur ekki upp- stilling fyrir æsandi kvikmynd um „hvítklædda menn“. Það er raunverulegur uppskurður, tafl um líf og örlög einnar konu. Hlutverk þessa hvítklædda fólks er að leysa þetta verk af hendi án þess að út af beri. Sú leikni, sem fæst með langri æfingu, léttir þeim starfið. Mest af því er venjubundið, eins við hverja aðgerð. Allir vinna hljóðlega og fumlaust. En vaninn fær þó aldrei að slæva athyglina and- artak. Krafan um nákvæmni og vakandi athygli er ósveigj- anleg. Engar tvær skurðaðgerð- ir ganga eins fyrir sér. Manns-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.