Úrval - 01.08.1955, Síða 112

Úrval - 01.08.1955, Síða 112
110 ÚRVAL meiri fagnaðarlæti og fleiri mót- tökuathafnir. I Delhi var það sama sagan, og Pandit Nehru, sem hélt okkur veizlu, reyndist mér sem faðir. Hann ráðlagði mér eindregið að fara til Lon- don, því að einskis mætti láta ófreistað til þess að jafna þessa hörmulegu deilu. Hann fór með mig heim til sín, opnaði fata- skápa sína og gaf mér margs- konar fatnað, því að ég var að heita mátti fatalaus. Hann gaf mér líka skjalatösku, svo að mér fannst sem ég væri ekki lengur fátækur Sérpi, heldur kaupsýslumaður eða diplornat. Konan mín og ég vorum 16 yndislega daga í London. Við fórum í leikhús og verzlanir og skoðuðum merka staði og loks veitti drottningin okkur áheyrn í Buckinghamhöll. Að lokinni veizlu í hallargarðinum vorum við leidd inn í stóra mót- tökusalinn. Þar voru staddir all- ir leiðangursmennirnir ásamt f jölskyldum sínum, og drotting- in og hertoginn sæmdu okkur heiðursmerkjum og verðlaunum. Við vorum líka hálfan mánuð í Sviss í boði Svissneska Alpa- rannsóknafélagsins. Þar hitti ég gamla kunningja og fékk auk þess tækifæri til að klífa Alp- ana. Þegar við snerum aftur heim til Indlands, vonaði ég að nú væri þessu öllu lokið, og að ég gæti aftur orðið gamli Tenzing. En heima tóku líka við enda- lausar veizlur og blaðamanna- viðtöl. Ég hafði alltaf haft gam- an af að labba um göturnar í Darjeeling, en nú komst ég að raun um, að ég varð að gera það eldsnemma á morgnana, ef ég átti ekki að hafa heilan hóp af fólki á eftir mér. Það var stöðugur straumur af gestum, jafnt nótt sem dag, sumir rudd- ust jafnvel inn um lokaðar dyr og glugga. Það komu menn frá allskonar félögum og fyrirtækj- um, sem vildu fá mig til að skrifa undir og samþykkja hitt og þetta. Leiðangurinn hafði mikla þýð- ingu fyrir mig persónulega, því hann varð til þess að stjórnin ákvað að stofna f jallgönguskóla í Darjeeling. Skólinn heitir Fjall- göngustofnun Himalaja og til- gangur hans er að auka þekk- ingu Indverja á fjöllum og fjallaferðum. Ég er forstöðu- maður skólans — og sé um alla kennslu og þjálfun. Auk þess hef ég fengið góða borgun fyrir blaðagreinar og ýmsar indverskar borgir og stofnanir hafa sent mér rausn- arlegar fjárhæðir, svo að ég þarf ekki lengur að lifa í fá- tækt. Sumir hafa litið á þetta af vinsemd og skilningi, en aðrir hafa orðið öfundsjúk- ir, og jafnvel ásakað konu mína fyrri tildur og uppskafnings- hátt, af því að hún er farin að nota regnhlíf í votviðri. Nýja húsið, sem ég keypti, stendur í brekku í útjaðri Dar- jeeling, þar sem útsýni er gott
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.