Úrval - 01.10.1955, Page 26

Úrval - 01.10.1955, Page 26
24 ÚRVAL í vestrænum stíl og myndirnar á vegg'junum voru eftirlíking- ar af verkum hollenzkra meist- ara. Chu virtist vera maður um fertugt. Hann klæddist ekki hinum venjulega vinnufatnaði, heldur nýtízkulegum, víðum stuttjakka eins og margir fyrr- verandi góðborgarar Shanghai. Hann fór ekki í launkofa með það, að faðir hans væri búsettur erlendis og ætti þar verksmiðju. Sjálfur á hann verksmiðju, sem framleiðir sokka, nærfatnað og dúka, og hefur 800 manns í þjónustu sinni. Saga Chu líkist mjög sögu Wengs, með þeirri undantekn- ingu þó, að hann var ekki á barmi gjaldþrots, og að hann gat, eftir að kommúnistar tóku Shanghai, ef ekki afsalað sér pöntunum, þá að minnsta kosti fjárhagslegum stuðningi frá ríkinu. Einnig hann segir, að framleiðsla sín hafi aukizt síðan 1949. Fyrir 1949 flutti hann inn egypzka bómull. Síðan hef- ur hann, eins og allar aðrar verksmiðjur, notað kínverska bómull, sem ríkisstjórnin selur. Þó að ríkisstjórnin hafi tvisvar fyrirskipað verðfestingu, segir hann, að reksturshagnaðurinn sé nægilegur. Chu má ekki borga arð án samþykkis yfirvaldanna. Senni- lega var það ein ástæðan til þess að hann fór fram á, að ríkið gerðist hluthafi í fyrirtæk- inu. Honum er þó frjálst að greiða sér forstjóralaun, sem hann getur lifað góðu lífi af. Hann hefur, eins og fyrir bylt- inguna, f jóra þjóna, bíl og heim- iliskennara fyrir börnin. Eins og Weng gerir hann ráð fyrir, að verksmiðjan verði fyrr eða síðar þjóðnýtt, en telur þó, að hann muni áfram hafa nægileg laun. 0-0-0 SJÁLPSSTJÖRN UM PRAM ALLT. Maður nokkur gengur fram og aftur fyrir framan kvenhatta- verzlun og ekur barnavagni. 1 vagninum er ungbam, sem öskrar af öllum lífs og sálar kröftum. Maðurinn þuldi i sífellu fyrir munni sér: „Vertu nú rólegur, Axel! Þú verður að stilla þig, Axel!“ Roskin kona gekk framhjá, staðnæmdist, leit blíðlega til bamsins og sagði svo við manninn: „Það er ánægjulegt að sjá föður, sem er svona þolinmóður við barnið sitt. Og hann heitir Axel, anginn litli?“ „Nei,“ sagði maðurinn samanbitnum vörum, „hann heitir Ólafur. Ég heiti Axel!“ — Allt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.