Úrval - 01.10.1955, Blaðsíða 37
HVERNIG SKÝJAKLJÚFUR VERÐUR TIL.
35
sinn. Þeir verða að koma á ná-
kvæmlega tilsettum tíma, ella
myndu þeir valda umferðar-
stöðvun. Af því að hvergi er
geymslurúm, verða þær vörur
sem koma að morgni að vera
komnar á sinn stað, múr- og
naglfastar, eftir fáeina klukku-
tírna til þess að aðflutningarnir
tefjist ekki.
Allar áætlanir verður að
samræma vinnuhraða verka-
mannanna, sem virðast hafa
óskráð lög um það hvað sé
hæfilegt dagsverk. Fyrir 25
árum, þegar sjö menn voru um
hvert, starf sem losnaði, var
þcss krafizt af múrara að hann
hlæði 700 múrsteina á dag. Nú
eru þeim ætlaðir 400 á dag í
New York. Vinnuflokkur járn-
smiða, sem hnoða nagla, hnoð-
ar um 250 nagla á dag. Ég sá
einn slíkan vinnuflokk, sem
ekki hafði lokið þeirri áætlun,
sem hann hafði sett sér. Verk-
stjórinn þurfti ekki að áminna
þá, þeir voru jafnóánægðir með
sjálfa sig og knattspyrnuflokk-
ur, sem hefur tapað leik.
Snemma á þessari öld gerðu
blöðin mikið veður út af þeirri
hættu að New York sykki und-
an þunganum af öllum skýja-
kljúfunum, sem þá voru að
rísa einn af öðrum. Sannleik-
urinn er hinsvegar sá, að með
hverjum nýjum skýjakljúf, sem
reistur er, verður borgin létt-
ari. Útveggir Socony Mobil
skýjakljúfsins eru úr ryðfríu
stáli (sem vegur aðeins 2 pund
hvert ferfet en veggur hlaðinn
úr múrsteini vegur 48 pund
hvert ferfet); fullbyggð mun
byggingin vega um 177.500 lest-
ir. En meira en 250.000 lestir af
mold og grjóti var grafið upp
úr grunninum og flutt burtu úr
borginni.
Grjót þetta varð að sprengja
úr klöpp mitt í sannkölluðum
frumskógi af pípum og leiðsl-
um, sem lágu allt í kringum
grunninn, að ekki sé talað um
þá tugi hektara af glerrúðum
í skýjakljúfunum allt í kring og
neðanjarðarbrautina, sem hefur
stöð í sjálfri lóðinni. Það var
vandaverk sambærilegt við það
að sprengja handsprengju í
fullri eggjakörfu. En eina tjón-
ið, sem vitað er að sprenging-
arnar ollu, var sprunga sem
kom í hurð hinum megin göt-
unnar og lyfjaglas sem féll of-
an af hillu í lyfjabúð í um 20
metra fjarlægð.
Það er hættulegt verk að
reisa skýjakljúfa. Þar til fyrir
tíu árum áætluðu tryggingar-
félög, að eitt dauðaslys yrði
fyrir hverja milljón dollara,
sem færu í bygginguna. Sömu
hættur eru enn fyrir hendi: að
stjórna stórri rennibraut, sem
flytur til þung stykki á svæði
innan veggja þar sem verka-
menn úr 20 mismunandi iðn-
greinum eru að starfi; að koma
fyrir stálbita, sem getur sópað
mönnum er standa tæpt, ef
vindhviða nær taki á bitanum
þar sem hann hangir í bóm-