Úrval - 01.10.1955, Síða 58
Gátan um þorstleysi úlfaldans ráðin.
Úr „Discovery",
eftir O. L. Boltz.
HINN furðulegi hæfileiki úlf-
aldans til þess að ferðast
dögum saman án þess að drekka
hefur löngi verið mönnum undr-
unarefni. Einu sinni var gefin
sú skýring, sem raunar má enn
sjá í sumum alfræðibókum, að
úlfaldinn safni vatni í hnúfinn
á bakinu, en þetta er ekki rétt
— hnúfurinn er úr fitu. Sumir
hafa fullyrt, að hann safni vatni
í eitthvert magahólfið — því að
úlfaldinn er jórturdýr, eins og
kýrin, og hefur margskiptan
maga. Sú kenning fær heldur
ekki staðizt.
’ Þessi mikli leyndardómur hef-
ur nú verið afdjúpaður, að
minnsta kosti að því leyti, að
við getum lýst hvernig úlfaid-
inn fer að því að geyma vatns-
forða sinn. Þessi uppljóstrun er
árangur lífeðlisfræðilegra rann-
sókna á úlfaldanum, undir for-
ustu ráðgjafanefndar UNESCO
um rannsóknir á þurrlendis-
svæðum jarðarinnar. Rannsókn-
irnar gerði hópur vísindamanna
undir stjórn Schmidt-Nielsens
prófessors við Duke-háskóiann
í Bandaríkjunum. Rannsóknir
þessar, sem stóðu í heilt ár, fóru
fram í Ben Abbes, en það er
staður í Saharaeyðimörkinni,
Algierhlutanum, um 800 km frá
sjó, og kemst hitinn þar oft
upp í 60° C.
Til þess að skilja hvernig úlf-
aldinn leysir þann vanda að
verja sig þorsta, skulum við
fyrst athuga okkur sjálf. Efna-
skiptin í líkamanum geta ekki
farið fram án vatns, og líf okk-
ar er undir því komið, að við
séum stöðugt að taka til okkar
vatn og iosa okkur við það. Við
losum okkur við það á tvenn-
an hátt: gegnum nýrun og með
svitanum; ef við svitnum ekki
nægilega mikið, hækkar blóð-
þrýstingurinn.
Hjá úlfaldanum er þessu allt
öðruvísi háttað; nokkur sér-
kenni í líffærastarfsemi hans
leggjast á eitt um það að gera
honum kleift að komast lengi af
án þess að taka til sín vatn.
Hann gefur t. d. frá sér mjög
lítið vatn gegnum nýrun, kring-
um hálfan lítra á dag, jafnvel
þegar hann getur drukkið eins
og hann lystir. Maðurinn gefur
frá sér margfalt meira. Annað
sérkenni hans er það, að hann
svitnar að heita má ekki. Að
þessu leyti hefur úlfaldinn al-
gera sérstöðu. Líkamshiti hans
getur hækkað úr 34° í 40° án